Nýtt land - 01.01.1937, Page 11
N Y T T L A N D
9
irbúningsvinnsla þess framkvæmd af
verkamönnum frá nærliggjandi bæj-
um.
10. Ýtarleg rannsókn verði látin
fara fram að tilhlutun liins opinbera
á hitasvæðum viðs vegar um landið,
og þá sérstaklega á möguleikum fyrir
liitaveilu lil Reykjavíkur og Hafnar-
fjarðar. Sé það leilt í ljós, hvar skil-
yrði eru bezl lil virkjunar í nágrenni
þeirra l>æja, áætlun gerð um fram-
kvæmd verksins og kostnað og því
hrundið í framkvæmd svo fljótl sem
auðið er.
Um leið og 13. þing Alþýðusam-
bands Islands samþykkir ofanritaða
starfsskrá i trausti þess, að fullkomin
framkvæmd hennar á næslu tveimur
árum feli í sér ómetanlegar hagsbæt-
ur fyrir vinnandi stéttir landsins og
sé hin styrkasta vörn gegn yfirvofandi
liætlu af íhaldi og fasisma, skorar það
á alla frjálslynda menn i landinu, i
livaða stétl og flokki sem þeir standa,
að sameinast um hana og gera fram-
kvæmd hennar að ómótstæðilegri
kröfu allra lýðræðis- og frelsisvina i
þessu landi, en hafnar, eindregið og i
eitt skipti fyrir öll, öllum „samfylk-
ingar“- og samningatilboðum Komm-
únistaflokks Islands, þar sem það álít-
ur, að framgangi þessarar starfsskrár,
sein stefnir að verndun og eflingu lýð-
ræðisins í landinu geti ekki verið
stuðningur að því, heldur óbætanlegur
hnekkir, að gerður sé samningur við
flokk, sem elcki verður treyst lil að
vinna á grundvelli lýðræðisins að um-
bótum á bag íslenzkrar alþýðu, þar
sem það er ómótmælanleg staðreynd,
að hinn svokallaði Kommúnistaflokk-
ur Islands er ekki sjálfur ráðandi
gerða sinna og stefnu, en er stjórnað
af miðstöð i erlendu einræðisríki, og
fyrir liggja yfirlýsingar um, að mark-
mið hans sé ekki lýðræðislegar um-
bætrr, heldur einræði eins flokks.
Alþýðuflokkurinn fullnægir einn
fyllilega öllum kröfum, sem gera má
um sósialistiskan flokk, sem starfar á
lýÖræðisgrundvelli að þjóðfélagsum-
bótum, og á Kommúnistaflokkur Is-
lands þvi engan tilverurétt, nema fyr-
ir þá, sem aðhvllast markmið lians,
einræðið.
Fyrir þvi felur 13. þing Alþýðusam-
l)ands Islands sambandsstjórn siniii
og þingmönnum Alþýðuflokksins for-
ustuna um framkvæmd ofanritaðrar
starfsskrár, leggur fyrir þá að hefja
þegar að sambandsþingi loknu öflugt
starf fyrir framgangi liennar, en ef
sýnt verður innan þriggja mánaða frá
slitum sambandsþings, að liún fáisl
ekki i heild sinni í öllum aðalatrið-
um lögð til grundvallar löggjafarstarfi
og stefnu núverandi ríkisstjórnar á
næstu árum, að slita samvinnu um
ríkisstjórniiia og leggja þessa slarfs-
skrá fram sem lágmarkskröfur Al-
þýðuflokksins fyrir kjósendur lands-
ins.
13. þing Alþýðusambands Islands
skorar að síðustu á alla meðlimi sam-
bandsins, flokksmenn og alla alþýðu
í landinu, að liafa vakandi auga með
Ýramgangi þessarar starl'sskrár, treysta
samtök sín um land allt og vera við-
búnir, hvenær sem er, að ganga til
kosninga og styðja Alþýðusambandið
og Alþýðuflokkinn á hvern þann liátt,
sem nauðsyn krefur.“
Frá því að Alþýðusambandsþinginu
lauk, 10. nóvember, hefur málgögnum
allra flokka orðið tiðrætt um starfs-
skrána.Nýja dagblaðið og Tíminn bafa