Nýtt land - 01.01.1937, Side 17
N Ý r T L A N D
15
um vinnunám, sem kostað er af hinu
opinbera. Reyni sambandsstjórn að
liafa áhrif á, að í stjórn um tilhögun
og framkvæmd slíkrar fræðslu verði
skipuð ein kona og að stúlkur eins
og piltar verði látnar verða hennar að-
njótandi — og fái þær kaup eins og
piltarnir. Þá beili sambandsstjórn sér
einnig fyrir því, að vinnunámið verði
aukið.
Sérnám kvenna. 13. þing Alþýðu-
sámbands íslands skorar á þingmenn
Alþýðnflokksins að beita sér fyrir því,
að samþykkt verði lög um stofnun
húsmæðraskóla í Reykjavík, þar sem
kennd verði almenn iiúsverk, mat-
reiðsla, meðferð barna og ennfremur
ýmis nauðsynlegustu bóltleg fræði.
Telur þingið, að rétl væri, að kennsla
i meðferð barna færi fram i sambandi
við barnaheimili.
Fræðsla nm þjóðfélagsmál. 13. þing
Alþýðusambands Islands felur sam-
bandsstjórn og fræðsluráði að vinna
að þvi, að mönnum gefist kostur á
fræðslu um þjóðfélagsmál og stjórn-
mál á námsskeiðum í slærslu bæjun-
um.
Fræðsla um Icynferðismál. 13. þing
Alþýðusamband Islands ályktar, að
nauðsynlegt sé, að komið verið upp
fræðslu í kynferðismálum í skólum
landsins, og telur, að fræðslaiun þess'
mál eigi á byrjunarstigi að koma fram
óbeint við kennslu í náttúrufræði og
öðrum námsgreinum, þar sem því
verður við komið.
Framkvæmd laga um fávitahæli. 13.
þing Alþýðusambands Islands skorar
á trúnaðarmenn flokksins að lierða á
framkvæmd laga um fávitahæli.
Leikvellir og dagheimili. 13. þing
Alþýðusambands íslands skorar á
trúnaðarmenn flokksins og félaganna
í bæjum og kauptúnum að beila sér
meir en gert liefur verið fyrir sam-
eiginlegri gæzlu yngri og eldri barna
utan skólanna, leikvöllum og dag-
heimilum, og séu þessir verustaðir
barnanna eigi aðeins leikstöðvar
þeirra, heldur líka eins konar skólar.
Skorar þingið á þingmenn flokksins
að beita sér fyrir aukinni fjárveitingu
i þessu skyni þegar á næsta Alþingi.
Sumardvöl barna og mæðra í sveit.
13. þing Alþýðusambands íslands tel-
ur, að trúnaðarmönnum flokksins beri
að beita sér fyrir þvi, að kaupstaða-
börnum sé komið mörgum saman til
sumardvalar í sveit. Vill þingið minna
á, að alþýðusamtökin í nágrannalönd-
unum beita sér fyrir barnatjaldbúðum
í sveit, og lítur svo á, að þeim mætti
einnig við koma hér á landi. Þá tel-
ur þingið, að æskilegt væri, að lieima-
vistarskölar sveitanna }7rðu notaðir
sem sumardvalarstaður barna og
mæðra úr kaupstöðum. Skorar þingið
á þingmenn flokksins að beita sér fyr-
ir aukinni fjárveitingu i þessu skvni
þegar á næsta þingi.
Háskóli Islands. 13. þing Alþýðu-
sambands Islands ályktar að fela sam-
bandsstjórninni að skipa sérstaka
nefnd til að atliuga liag og starfsemi
Háskóla Islands. Skal nefnd þessi
leggja fyrir sambandsstjórnina frum-
varp til nýrra háskólalaga, er miði að
því, að gera skipulag Háskólans alþýð-
legt og við þarfir og hæfi ríkis og al-
mennings og samræma stjórnarfar
hans við þá slaðreynd, að Háskólinn
er opinber stofnun, kosluð af al-
mannafé.
Sérnám bílstjóra. 13. þing Alþýðu-
sambands íslands skorar á rikisstjórn-