Sumargjöfin - 22.04.1926, Side 8

Sumargjöfin - 22.04.1926, Side 8
8 SUMARGIOFIN Menningarmælikvarði. Þegar við athugum menninguna í heimin- um, berum saman ástand á ýmsum tímum og ýmsum stöðum, þá virðist þægilegt að hafa einhvern mælikvarða, fil þess að fara eftir. Járnbrautir hafa oft verið notaðar að menn- ingarmælikvarða og ályktað þannig, að þar sem miklar væru járnbrautir, væri og mikil menning, og svo hið gagnstæða. A þenna hátt yrði okkar land hart úti, þar sem það er annað landið af tveimur í álfunni, sem engar hefir járnbrautir. Sumum þykir notkun þessa mælikvarða bera vott um of mikla efnishyggju, og vilja nota bókaútgáfu, í hlutfalli við mann- mergð, að mælikvarða. Væri þessi mælikvarði notaður, mundi þó ekki úr vegi að grenslaat eftir, hvers konar bækur eru mest keyptar og lesnar. Þá hafa nokkrir notað sápunotkun fyrir menningarmælikvarða, álykfað þannig, að þar sem mikil sápa er notuð, er og mikil menning. En það er aðgætandi, að nokkur hluti þjóð- ar, getur látið mikið af sápu fara til ónýtis og annar hluti hennar notað litla sem enga sápu. Til er fjórði mælikvarðinn, sem jeg fyrir mitt leyfi er sannfærður um að ljósast sýnir hina raunverulegu siðmenningu hverrar þjóð- ar, það er hve ant hún lætur sjer um æsku- lýð sinn. Hve mikið fje hún leggur fram í þarfir hans, og hve skynsamlega hún ver því. Það er hinn sannasti mælikvarði á menning- una. Þær 350 þjóðir, sem hnöttinn byggja, gera flestallar eitthvað meira og minna fyrir velferð barna sinna, en mjög er það misjafnt bæði að vöxtum og gæðum, og ekki virðist eins óðfluga framför eiga sjer stað á neinu sviði og einmitt þessu. Meginið af þeim ráð- stöfunum, sem gerðar hafa verið í þarfir barnanna, hafa orðið. á síðustu 50 árum. Merkur Englendingur og sjerfræðingur á þessu sviði Percy Aldlen segir, að þegar Victoría drotning hafi komið til valda, hafi ekki verið til svo mikið sem ein sétning í lögum þjóðarinnar, sem bar vott um um- hyggju fyrir börnum hennar, og sama hafi mátt segja um allar þjóðir. Mest verður breytingin um aldamótin síðustu, það er stór breyting eða rjettara sagt framþróunarstökk. Sá einfaldi og sjálfsagði sannleiki rennur upp eins og sólskin eftir svartabyl, að það eru einmitt börnin, sem hægt er að móta, og eftir eitt eilífðarinnar augnablik eru þau búin að taka öll málefni heimsins í sínar hendur, og meðferð þeirra á þeim fer þá eftir því, hve vel þau voru úr garði búin. Mönnum er smámsaman að skiljast, að það, sem mest áherslan er lögð á, er oft fánýtt kák, en það, sem alt veltur á er vanrækt. Að byrgja brunninn. Mönnum er t. d. að skiljast, að viturlegra væri að verja einhverju af miljónunum, sem nú er varið til að lengja kvalir dauðvona manna, til þess að koma í veg fyrir sjúk- dóma. Sjerstaklega til þess að kenna mæðr- um að fara skynsamlega með börn sín fyrir og eftir fæðinguna, æfilangt ástand byggist á því að miklu leyti. Einhver lofsverðasta fyrirmynd á þessu sviði er fjelag á Nýja Sjálandi er nefnist Neiv Zealand Society for the health of women and children. Stofnandi þess og stjórn- andi er dr. Truby King. Englendingar ijetu sjer sæma, að fá hann sunnan úr Nýja Sjá- landi, til þess að »organisjera« svipuð fjelög og hann hafði sett þar á stofn. Hann er frægur um heim allan fyrir starf sitt, og fjölmörg fjelög hafa verið stofnuð víða um heim með sama sniði og hans. Fje- lag hans nær nú um alt landið og er kostað af ríkinu. Það hefir 35 miðstöðvar víðsvegar um landið. Á hverri aðalstöð er ein hjúkr- unarkona eða fleiri. Þær gefa mæðrum ráð og aðstoð heima fyrir og ferðast einnig út um nágrennið. Þegar hjónaefni kaupa sjer k

x

Sumargjöfin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sumargjöfin
https://timarit.is/publication/613

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.