Sumargjöfin - 22.04.1926, Side 13

Sumargjöfin - 22.04.1926, Side 13
SUMARGjOFIN 13 ferðin þar hefir verið, og er víða enn, að hýða, þegar hinn brotlegi er of ungur, til þess að sæta venjulegri hegningu. ]eg hefi heyrt margan Islending harma hið horfna gullaldarástand, þegar vöndurinn var ómissandi áhald á hverju heimili. Mjer virð- ist það hópskoðun hjer, að þjóðin sje að ger- spillast af agaleysi. Nú skulum við hlusta á dóm reynslunnar. Hver árangur verður af hýðingunum á Eng- landi? Skýrslurnar sýna, að af hverjum 100 hýddum unglingum koma 76 aftur fyrir lög og dóm. Það eru einir 24 af hundraði sem læknast. En 94 a. h. læknast með eftirlits- aðferðinni. Með hýðingunni er afbrotamaðurinn brenni- merktur, hann er dreginn niður á bekk með öðrum glæpamönnum. Missir sjálfsvirðingu og stælist upp í hatri og mótþróa. Hann ásakar sig ekki fyrir að hafa framið glæpinn, heldur fyrir að hafa farið svo klaufalega að, að það komst upp. Hann leggur sig allan í að beita sem mestri snild, og endar oft með því, að verða »prófessiónal« glæpamaður. Nú sýna skýrslurnar, að meira en helm- ingur glæpamanna byrjar innan við 16 ára aldur. Þá fer okkur að skiljast, hverja þýð- ingu það hefir, að ná í afbrotamanninn og snúa honum inn á rjetta braut, skoða hann sem sjúkling, sem þarf lækningar, og bræða og móta manngullið í hjarta hans við hlýju ástúðar og skilnings, en skoða hann ekki sem óvin guðs og manna, sem öllum sje skylt að kasta steini að. Hitt er að slá í vindinn, að stinga manni inn í steininn jafnótt og hann kemur þaðan út og fremur nýtt lögbrot. Það verður hjer sem annarstaðar að stemma á að upptökum. Það verður að grafa fyrir rætur orsakanna og uppræta þær. Englend- ingar virðast á góðri leið með að tæma fang- elsin, með því að ná í unglingana, þegar þeir eru að stíga fyrsta glæpasporið og leiða þá inn á braut heiðarlegra athafna. Þrátt fyrir ágæti hinnar amerísku eftirlits- aðferðar, á hún þó ekki við alla. Það hefir því miður kastað skugga á hana, að einn og einn unglingur verður ekki læknaður með henni. Þótt það sjeu ekki nema um 6 0/o sem ekki læknast, komast 6Ögurnar af þeim í há- mæli og verða mjög áberandi. Það er hljótt um hina 94, af þeim fara engar sögur. Hvernig stendur nú á því, að þessi eftir- lttsaðferð á ekki við alla? Það er t. d. af því, að sumir menn eru svo vitgrannir, að þeir geta ekki borið ábyrgð á gerðum sínum. Þótt þeir hafi góðan ásetn- ing stoðar það ekki, þeir falla við fyrsta and- blæ freistinganna. Þessir menn geta oft ekki borið ábyrgð á gerðum sínum, þjóðfjelagið verður að gera það, með því að ætla þeim sjerstakt heimili við þeirra hæfi. Þá eru aðrir, sem fremja ýms afbrot vegna líkamlegrar veiklunar. Bandaríkjamenn ætla þeim sjúkrahús og hressingarhæli, og Eng- lendingar tala mjög um að koma þeim upp líka. Þá eru enn nokkrir, sem hafa meðfædda glæpahneigð. Þeim verður að ætla sjerstakt heimili, því að af þeim stafar andlegt sótt- næmi. Þeir eru líklegir til foringja fyrir glæpa- fjelögum, og geta eitrað alt umhverfið á stutt- um tíma. Ályktun. Hvað getum við nú lært af reynslu annara í þessu efni? og hverra framkvæmda er okk- ur mest þörf? Eftir þeirri þekkingu, sem jeg hefi af á- standi okkar, bæði af afspurn og eigin raun, er okkur orðin full þörf á barnaheimili. En ekki ætti það að vera stórt, og engan að senda þangað, sem önnur ráð eru með. Þar á umfram alt að vera nóg af margháttuðu starfi, og val á stjórnendum vandað, svo sem auðið er. En hversu mikil þörf sem er á þessu heim- ili, er þó langtum meiri þörf á eftirlitsaðferð þeirri, sem drepið er á hjer að framan. Ekki

x

Sumargjöfin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sumargjöfin
https://timarit.is/publication/613

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.