Valur 25 ára - 11.05.1936, Blaðsíða 11

Valur 25 ára - 11.05.1936, Blaðsíða 11
1911—1936 VALUR 25 ÁRA 11 II. flokkur 1922. um í K.F.U.M. „sem með siðprýði, áhuga og félagslyndi gjörðuð mér gleði og K.F.U.M. sóma á leikvellinum og annarstaðar“, stendur í tileinkuninni. Þessi litla bók, sem nú mun í fárra manna eigu, varð hinum ungu og upprennandi knatt- spyrnumönnum i K.F.U.M. ómet- anleg hvöt. I lienni var kvæði mikið i 10 þáttum, samtals 100 erindi, sem liöf. nefndi: Sumar- líf í K.F.U.M. Enn fremur voru þar tvær ræður, önnur (Sursum corda) flutt i Lágafellskirkju á gönguför knattspyrnufélags K.F. U.M. sunnudaginn 16. júlí 1911, hin (Fair play) flutt við vigslu knattspyrnuvallar K.F.U.M. 6. ágúst sama ár. En loks eru i rit- inu þrjú kvæði, sem hvert manns- barn í K.F.U.M. hefir síðan marg- oft lesið og sungið og flestir munu raunar hafa lært. Það væri freistandi að taka hér upp allmikið úr þessari merku bók, en því miður leyfir rúmið það ekki. Þó getum vér eigi stilt oss um að tilfæra 47. erindi hins mikla kvæðis. Það er á þessa leið: Leikurinn kennir list þá mönnum, limum teitir vel að beiti, reilcni út með auga, að fótur ávalt sæti bragði mætu. Ekkert fum má svinnum sæma, sé æ ró í kappi fróu, rósamt geð á markið miðar, mun sú stilling kenna snilli. Ræða sú, er síra Friðrik flutti við vígslu knattspyrnuvallarins, er mjög lærdómsrilc og markar Ijóslega stefnu knattspyrnustarfs- ins i K.F.U.M. Þar leggur hann hinum ungu vinum sínum lífs- reglur, sem þeir munu allir liafa talið sér skylt og sæmandi að fylgja. Eftirfarandi kafli úr ræð- unni sýnir ljóslega, hve merkileg- an grundvöll síra Friðrik lagði með henni að starfi Vals: „Þér ungu menn, sem standið nú í röðum reiðubúnir að ganga inn á hið nýj a svæði til leiks, sýn- ið að þér getið leikið með kappi og fjöri og þó sem göfugir, ungir menn, sem fullkomlega hafið vald yfir yður. — Náið þessu valdi, livað sem það kostar. Náið valdi yfir limum yðar; æfið augun að sjá fljótt, hvað gjöra skal, æfið fæturna, til þess að þeir gefi mátulegt spark eftir því, sem augað reiknar út, að með þurfi; æfið liendurnar til þess að fálma ekki út i bláinn, til þess að gjöra einmitt þær hreyfingar, sem við eiga; látið liendur og handleggi verða svo sjaldan sem unt er fyr- ir knettinum; æfið tungu yðar, svo að engin óþarfa orð heyrist. Leggið alla stund á að leggja fegurð inn í leik yðar, látið aldrei kappið bera fegurðina ofurliði. Látið ekki likamann vera i 18 hlykkjum, heldur látið hvern vöðva vera stæltan og allan lík- amann í þeirri stellingu, sem feg- urst er. Verið þar á svæðinu, sem yður ber að vera, hverjum samkvæmt skyldu sinni og varist blindan ákafa og fum. Allur þjösnaskap- ur veri langt frá yður. Kærið yður ekki um að vinna með röngu eða ódrengilegu bragði. Þeir sterlcari holi alclrei hinum yngri og linari frá réttum leik. Segið ávalt satt og venjið yður á að segja til, ef yður verður eitt- hvað á og jála það. Hælist aldrei vfir þeim, sem tapa, og gleðjist líka yfir vel- leiknu sparki lijá mótleiksmönn- um yðar. Látið aldrei ófagurt pex eða þráttanir skemma leikinn. Verið fljótir að hlýða þeim, sem leik stjórna, einnig þó að þeir séu yngri. Leiðréttið og segið til með hóg- værð þeim, sem óæfðari eru og kallið engan lclaiifa, þótt örðugt gangi í fyrstu......Munið ávalt eftir því, að leikur vor er ekki aðeins stundargaman, heldur á hann að vera til þess að gjöra oss betri, göfugri, heiðarlegri og karlmannlegri með hverri æfing. Og samlíf vort á leiksviðinu og utan þess á að efla kristindóm vorn og vera guði til dýrðar.“ — Þannig marlcaði hinn góði for- ingi stefnu hins unga knatt-

x

Valur 25 ára

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valur 25 ára
https://timarit.is/publication/624

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.