Valur 25 ára - 11.05.1936, Blaðsíða 18
18
1 9 1 i_i 9 3 6
VALUR 25 ÁRA
Aldarfjórðungur er síðan Yalur
hóf göngu sína. Tuttugu og fimm
ár -— tuttugu og fimm ára starf-
semi, sem leitt hefir til þess að
samtök hinna ungu drengja 1911,
urðu að öflugu félagi, voldugu og
stóru félagi sem nú situr í æðsta
sessi, sem því er mögulegt að ná
á sínu sviði, að vera „besta knatt-
spyrnufélag fslands.“
Á slíkum tímamótum verður
manni litið um öxl. Litið aftur í
tímann og rifjar upp gamlar og
nýjar endurminningar. Endur-
minningar um gleði og ánægju
eftir unninn leik eða unnið mót.
Endurminningar um glaðværa
fundi og æfingar og bollaleggingar
um stórhuga láform og hátt sett
takmörk. Við minnumst vina
vorra sem við höfum starfað með
í félaginu og síðast en ekki síst
þeirra manna er forystuna tóku
og leiddu félagið svo farsællega
fram til dáðríkra starfa og sigurs.
Þegar mest syrti að fyrir félag-
inu, er það 10 ára gamalt var að
lognast út af, vegna áhugaleysis
hinna eldri félaga, þá kom fram á
sjónarsviðið ungur maður, sem
setti sér það takmark, að sjá Val
sigra í öllum flokkum. Hann bar
og giftu til að leiða félag sitt að
takmarkinu.
Axel Gunnarsson kaupmaður
gekk ungur í Val, varð snemma
góður knattspyrnumaður en
meiddist í liné, svo að hann varð
að hætta knattspyrnuiðkun að
eins rúmleag tvítugur.
Kringum 1920 er félagið, eins
og áður er sagt, alveg að lognast
útaf, sökum þess hve fáir sóttu
æfingar í 1. aldursflokki, enda
þótt Valur hefði þá unnið einu
sinni knattspyrnumót í 2. flokki.
Var 1. fl. algerlega hættur að taka
þátt í knattspyrnumótunum, en
3. flokkur enginn til, þvi Væringj-
ar tóku í þá daga þátt í knatt-
spyrnu í þeim flokki, en það þótti
ekki fært að halda úti tveim knatt-
spyrnuflokkum frá K. F. U. M., á
sama móti. Um það leyti var tals-
verl um það rætt í félaginu, að
leysa það alveg upp og vildu sumir
samlagast Víking. Setti Axel sig
eindregið á móti því og var studd-
ur af mörgum þeim er síðar urðu
hans bestu samstarfsmenn í félag-
inu. 1922 gefur Axel fyrst kost á
sér í stjórn félagsins og er þá þeg-
ar kosinn i stjórnina ásamt tveim
eldri félögum. Varð lítið úr sam-
starfi innan stjórnarinnar, þvi
annar meðstjórnandi Axel fluttist
úr bænum þá um sumarið, en
hinn var ærið athafnalítill. Var þvi
sjálfgert fyrir Axel að takast for-
ystuna á hendur, enda sýndi það
sig að öðrum var síst betur til þess
trúandi.
Þetta fyrsta sumar Axels i stjórn
Vals mun hafa orðið honum nokk-
Guðm. H. Pétursson.
Jón Sigurðsson, læknir.
uð dýrt. I sjóði var enginn eyrir
handbær. Boltakaup og annað, það
er til félagsins þurfti, borgaði Ax-
el úr eigin vasa eins og alt væri að
eins fyrir liann gert. Auk þess
kostaði liann einn sigurveislur
fyrir kapplið þau, er unnu hæði
2. flokks mótin það sumar. Þó eg
taki fram fjárútlát Axels þetta
fyrsta ár vegna algers peninga-
leysis félagsins, þá má geta þess
að hann, um mörg ár, var stærsta
féþúfa félagsins.
Axel Gunnarsson situr i stjórn
félagsins í samfleytt 10 ár og
lengst af formaður, og þótti öllum
mikill skaði að brottför hans úr
stjórninni. Var hann altaf sjálf-
kjörinn fulltrúi félagsins út á við
og átti lengi sæti í Knattspyrnu-
ráði Reykjavíkur.
Æfingum stjórnaði liann um
langt skeið og réði jafnan mestu
um kapplið félagsins í öllum
flokkum.
Eins og áður er getið, naut liann
aðstoðar ananra manna i viðreisn
sinni, og ber þá helst að nefna þá
.Tón Sigurðsson lækni og Guð-
mund H. Pétursson prentara, sem
var um langt skeið þjálfari félags-
ins og oft mjög ráðagóður.
Jón Sigurðsson geklc í Val er
Væringjar hættu að iðka knatt-
Frh. á bls. 43.