Valur 25 ára - 11.05.1936, Page 25
19 11 — 1 9 3 6
VALUR 25 ÁRA
25
kappróðurinn fram fyrir hádegi
fyrri þjóðliátiðardaginn. Er hann
ákaflega „spennandi“.
Iþróttirnar eru það, sem mest
ber á á hátíð þessari, enda eru
Vestmanneyingar löngu lands-
kunnir fyrir íþróttaafrek sín og
áliuga. Þar eru ræður fluttar,
messa sungin (á sunnudaginn) og
prýðilegur hlandaður kór fylti
Dalinn með söng sínum. Bjarg-
menn klifu, að manni virtist þver-
lmýpt björgin, í hvítum húning-
um. Því næst sýndu þeir hjargsig
á þeim stöðum, sem ekki er fært
nema fuglinum fljúgandi og æfð-
um og áræðnum bjargmönnum
i böndum. Það var tilkomumik-
ið, að sjá þá sveifla sér til og
frá um bergið, eins og fugla, og
öllum, og elcki síst þeim, er aldr-
ei höfðu séð bjargsig áður, verð-
ur það ógleymanlegt.
Flugeldarnir í hinum ýmsu
litum, og brennan á Fjósakletti
í miðnæturrökkrinu, varpaði æf-
intýraljóma yfir Dalinn, með
sinni dumbrauðu birtu. Þarna
var dansað lengi nætur, undir
hrífandi tónum liarmonikunnar.
Ungir og gamlir fundu dansköll-
un hjá sér þetta kvöld. Hingað
og þangað heyrist söngur, uppi
í hlíðinni, inni í tjöldunum, á bíl-
unum, sem þjóta eftir Dalvegin-
um, og þótt einn og einn tónn
sé ofurlítið lijáróma, getur það
engin áhrif liaft á gildi söngsins
þetta kvöld, því það er þjóðhátíð
— og þá eru allir glaðir.
Þegar dimt er orðið, og fólkið
hefir kveikt í tjöldum sínum, líta
þau út, úr dálítilli fjarlægð, eins
og sjálflýsandi liús.
Á sunnudaginn fór fram siðari
kappleikurinn. Var hann ekki
eins góður af okkar hálfu eins
og sá fyrri, enda leit lengi út fyr-
ir, að jafntefli yrði. En á siðustu
mínútunni gerir Valur mark, svo
leikurinn endar 3:2, og má segja
að hepnin liafi verið með okk-
ur í það skiptið.
Öll dvölin í Eyjum var okkur
liin skemtilegasta. Þjóðhátiðin,
með allri sinni tilbreytni, gleym-
um við ekki, og ekki heldur fólk-
inu, sem við kyntumst og okkur
leíð svo vel lijá.
Eg nota tækifærið og þakka
Vestm.eyingum fyrir siðast og
vona, að ekki liði langt, þangað
til við getum endurnýjað og lif-
að upp aftur Þjóðhátíðina 1932.
Tala eg hér fyrir munn allra fé-
laga minna.
Ferðin heim gekk vel, nema
hvað einn og einn varð lystar-
laus og fékk uppköst; var þetta
kallað sjóveiki! Ánægðir yfir
ferðalaginu stigum við á land í
Reykjavík árla morguns 15. ágúst
1932. Heill Vestmannaeyjum og
Vestmanneyingum!
Valur og Vestmanneyingar.
Dagskrá
Knattspyrnufélagsins „Valur“ á 25 ára afmælishátíð þess dagana 10.—14. maí.
Sunnudaginn 10. maí:
Kl. 2 sameinast Valsmenn við hús K.F.U.M. og
ganga þaðan í skrúðgöngu til hins nýja vallar
síns. Þar fer fram vígsla vallarins með ræðu,
fluttri af síra Friðriki Friðrikssyni. Þvi næst fer
frarn kappleikur milli III. flokks Vals og III.
flokks „IIauka“. — Um kveldið kl. 8 verður
skemtun fyrir III. og IV. flokk í húsi K.F.U.M.
Mánudaginn 11. maí:
Afmælisritið kemur út. — Kl. 7,20 fer fram við-
tal við formann Vals í útvarpinu um félagið og
knattspyrnuna í heild. —- KI. 8 verður afmælis-
veisla í Oddfellowliöllinni.
Þriðjudaginn 12. maí:
Lúðrasveit leikur á Austurvelli kl. 8 til 8^4. —
Farið þaðan suður á Iþróttavöll. Þar fer fram
kappleikur milli IV. flokks Vals og IV. flokks
K. R. (10 mín. livor hálfleikur) og þar næst milli
I. flolcks Vals og I. flokks K. R., sem er afmælis-
kappleikurinn.
Miðvikudaginn 13. maí:
Kl. 8i/2 keppir II. flokkur Vals og II. flokkur
Víkings á nýja Valsvellinum.
Fimtudaginn 14. maí:
Kl. 8*4 keppir B-lið Vals og B-lið Fram á nýja
Valsvellinum.
NEFNDIN.