Melkorka - 01.06.1953, Blaðsíða 7
SAMBÝLISHÚS
Eftir Ingu Þórarinsson
Bent Waagensen verkfræðingur og Jenny
Rubin félagslegur ráðgjafi, báðir danskir,
bjuggu í’ Svíþjóð á stríðsárunum og rann-
sökuðu þá sænsk sambýlishús. Niðurstöð-
urnar settu þeir frarn í bók, sem út kom
1949: Kollektivhuset og dets forudsætnin-
ger.
Á tímabilinu kringum fyrri heimsstyrj-
öldina liófu menn í ýmsum löndum að gera
'dlraunir til að koma upp sambýlishúsum.
Hvergi tókst að leiða tilraunirnar svo lil
lykta að þeim væri haldið innan skynsam-
legra efnahagslegra takmarka.
Þegar húsameistarinn Sven Markelius
byggði árið 1935 sambýlisliúsið við Jóns Ei-
ríkssonargötu á Kungsholmen í Stokkhólmi,
þótti það merkur viðburður og utan- og
innanhússmyndir voru birtar í heimsblöð-
unum, en það var mikil auglýsing á iélags-
legum byggingarháttum í Svíþjóð. í husinu
eru 57 íbúðir, flestar eins og tveggja her-
bergja íbúðir, innréttaðar á nútíma vísu,
sólríkar með fögru útsýni. í eldhúsinu er op
lyrir matarlyftuna. Ef fólk vill síður borða í
ýeitingasalnum pantar það einungis mið-
dégisverðinn í gegnum hússímann og lætur
senda sér matinn upp. Að aflokinni máltíð
et’u diskarnir, sem notaðir hafa verið, látnir
inn í lyftuna og að síðustu lenda þeir í stóru
uppþvottavélinni í eldaskála hússins. Ó-
breina þvottinn lætur fólk í þvottarennuna
(tváttnedkastet) og fær hann aftur þveginn,
strokinn og viðgerðan, ef þess er óskað.
Harnanna er gætt í vöggustofunni og brauð-
i® nieð morgunkaffinu eða handa gestum
bvöldsins kaupir fólkið í brauðbúðinni,
sem er við anddyrið. Húshjálp getur fólk
melkorka
fengið hjá fastráðnu þjónustuliði byggihg-
arinnar. Leigan er svipuð og fólk verður að
gjalda lyrir samsvarandi íbúð í nýtízku
leiguhúsum. Þar að auki er tillag upp á
nokkrar þúsundir sænskra króna. Fyrir all-
an sambýlisútbúnað er goldið aukreitis. Það
verður ekki ódýrt að búa í sænsku sambýlis-
húsi, jafnvel þótt kostnaðurinn sé töluvert
láegri en í amerísku og ensku fjölskyldu-
iiótelunum svonefndu.
Waagensen og Rubin lialda því fram að
sambýlishúsið sé takmarkað byggingarfyrir-
komulag, sem aðeins geti þróazt til fulls, ef
í húsinu búi einvörðungu fjölskyldur, sem
hafa raunverulega efni á að nota alla mögu-
leika þess. Þannig hefur það ekki verið í
Sambýlishús d Gullbergshœðinni i Gautaborg
39