Melkorka - 01.06.1953, Blaðsíða 22

Melkorka - 01.06.1953, Blaðsíða 22
Eno-inn vill verða of feitur o Þarfnast feitt fólk ekki eins mikillar nær- ingar og grannvaxið fólk? Verulegur hluti af næringunni fer til þess að halda líkams- hitanum við svo að liann sé jafn ætíð, en feitir menn liafa fitulag undir höndunum sem heldur líkamanum heitum og þarfnast þeir ekki eins mikils til að halda líkamshit- anum við og hinir mögru. Þeir sem eru grannholda mega því leyfa sér að borða langtum meira en ella. Sumum er svo farið að þeir hafa tregari efnaskipti en almennt er, brennslan er hægari og þeir þarfnast minni næringar. Þeim er gjarnt til offitu. Ef mikið kveður að þessu getur það valdið sjúklegri offitu. En hjá allmörgum konum eru efnaskiptin rétt mátulega treg til þess að þeim hættir til að fitna. Þetta fólk þarf ein- mitt að gæta þess að borða ekki fitandi mat. Og auk þess er vert að muna að það er um- fram allt ofát og hreyfingarleysi sem offit- unni valda. En sé þess gætt að borða það sem líkamanum er nauðsynlegt til heilsu og þrifa, en það forðazt sem feitur líkami lief- ur nægar birgðir af, hlýtur holdafarið að batna. Varizt að borða íleiri hitaeiningar en þörí er á Með orðinu hitaeining er átt við það hitamagn er framleiðist í líkamanum er næringin brennur þar. Næringargildi eða magn hitaeiningar hinna ýmsu fæðuteg- unda hefur verið mælt. Ef við fáum í fæð- unni fleiri hitaeiningar en við þörfnumst hlýzt af því offita. Ef við eigum að gera okk- ur vonir um árangur af tilraun til megrun- ar, er ráð að telja ofan í sig hitaeiningarnar og hafa þær færri en hæfilegt þykir lianda Jieilbrigðum. Þá reynum við að finna hve margar hita- einingar líkaminn þarfnast daglega og er þá ekki miðað við þyngdina eins og hún er, heldur eðlilega þyngd. Til þess að léttast verðum við að borða 500—1000 hitaeining- um minna daglega en annars mundi. 11,5 gr. af feiti eru 100 hitaeiningar. Ef við borðum 1000 hitaeiningum minna dag hvern en við þörfnumst, verður að taka þær af birgðum líkamans, en við það hlýtur hann að léttast um 100 gr. daglega eða 800 gr. á viku og er liér miðað við menn sem hafa eðlilega ör efnaskipti. Til þess að finna hve margra hitaeininga líkaminn þarfnast daglega verðum við að margfalda þyngdina með 35 því líkaminn þarfnast 35 lntaeininga fyrir hvert kg. Eull- orðin kona er vegur 62 kg. þarfnast 2200 hitaeininga ef hún vinnur í sæti sínu en vinni hún innanhúss. í verksmiðju eða ann- að álíka þarfnast hún 44 hitaeininga á kg. og verða það 2740 hitaeiningar á degi hverj- um. Hvað eigum við að borða? Fleira er þó, sem gæta skal. Það þarf að gæta þess að líkaminn fái öll efni sem hann þarfnast. Hér skal þó minnzt á tvennt sem vert er að varast. í tveimur sneiðum af brauði með ítölsku salati eru 600 hitaein- ingar en í tveimur sneiðum smurðum með nautasteik aðeins 240 hitaeiningar. í einum bolla af súkkulaði með rjóma eru 500 hita- einingar og í einni rjómaköku 200 hitaein- ingar eða jafnmikið og í einum bauta. Þá er rétt að geta um fleiri fæðutegundir sem hafa margar hitaeiningar miðað við þyngd, fyrst af þeim má telja súkkulaði. í einum mola af konfekti eru 100 hitaeining- ar. Sæt vín, svo sem h'kjör, eru ákaflega fit- 54 MELKORKA

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.