Melkorka - 01.06.1957, Page 3

Melkorka - 01.06.1957, Page 3
MELKORKA TÍMARIT KVENNA Ritstjúrn: Nanna Ólafsdóttir, Reykjalilið 12, Rcykjavik, simi 3156 Þóra Vigfúsdóttir, Þingholtsstrœti 27, Reykjavik, simi 5199 Útgefandi: Mál og menning ADDA BÁRA SIGFÚSDÓTTIR: Sögulegur áfangi Sömu laun fyrir sömu vinnu Nýlega náðist merkur áfangi i peirri bar- áttu, sem verkalýðssamtökin og kvennasam- tökin hafa náð fyrir þessu einfalda mann- i'éttindamáli. Alþingi hefur heimilað ríkis- stjórninni að fullgilda jafnlaunasamþykkt alþjóðavinnumálastofnunarinnar og þar með er ríkisstjórnin skuldbundin til að vinna að þvi að koma á fullu launajafnrétti. Af þessu tilefni óska islenzkar konur hver annarri til liamingju, þegar þœr mœtast á förnum vegi þessa dagana. Með þessari samþykkt er mikill sigur unninn, sigur, sem sizt af öllu má vanmeta, þó að lokamarkinu sé enn ekki náð. Baráttan fyrir launajafnrétti er orðin löng \og liörð og smám saman hefur þokazt i rétta átt. Verkalýðsfélögunum hefur orðið mikið ágengt, en ofmœlt mundi vera, að þau hafi notið stuðnings ríkisvaldsins i þeirri baráttu hingað til, þó að nokkrar kvenréttindakonur hafi getað fengið því framgengt við þingmenn fyrir meira en tiu árum, að launajafnrétti skyldi rikja hjá op- inberum stofnunum. Þeir svartsýnu munu sennilega benda á þá staðreynd, að konur í þjónustu hins op- inbera hafi yfirleitt lægri laun en karlar, þegar um almenn skrifstofustörf sé að ræða, þrátt fyrir hið lagalega jafnrétti, og þannig megi alltaf sniðganga lagaákvæði og sam- þykktir. Hér er því til að svara, að þvi að- eins er hægt að sniðganga lög og reglur, að þeir sem órétti eru beittir þoli slikt, án þess að bindast samtökum \og krefjast þess að réttum lögum sé fylgt. Ríkisstjórnin hefur skuldbundið sig til að vinna að því að koma á launajafnrétti. Til þess að svo megi verða, þarf að endur- skoða alla launasamninga, þar sem svo er ákveðið, að karlar skuli hafa ein laun og konur önnur, þó að um sé að ræða einstakl- inga með sömu menntun við sama starfið, eins og t. d. er ákveðið í samningum verzl- unarmanna i Reykjavik, og ennfremur þarf að endurmeta öll verk, sem talin hafa verið kvennaverk sérstaklega og launuð i sam- ræmi við það. Það er verkefni islenzkra kvennasamtaka og verkalýðshreyfingarinnar að sjá um, að þessi endurskoðun verði fram- kvæmd hið fyrsta <og hvergi verði hvikað frá þeirri reglu, að sömu laun beri að greiða fyrir jafnverðmæta vinnu. MFLKORKA 35

x

Melkorka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.