Melkorka - 01.06.1957, Blaðsíða 20
Er þér lagið að klæðast vel?
Til þess þarf umhyggju langtum fremur
en fémuni.
Það er engin trygging fyrir því að vera
vel til fara, að eiga ósköpin öll af fötum, og
hinsvegar er hægt að klæðast ágætlega með
litlum efnum, sé þess gætt að allt eigi sam-
an. Sitt á við hvert aldursskeið og hvert
aldursskeið fyrir sig hefur eitthvað fram yfir
hin. En til þess að árangurinn verði sem
beztur, verður að taka tillit til kostanna svo
að þeir njóti sín sem bezt og til gallanna, ef
nokkrir eru, að breiða yfir þá og hylja þá ef
unnt er.
Einfaldi frakkinn. Það má viðhafa ý nis-
lega tilbreytni við einfaldan, einlitan
frakka, setja á liann nýja og nýja kraga, og
jafnvel uppslög. Það má hafa þetta úr
skinni, flaueli og jafnvel nælonefnum þeim,
sem nú eru komin á markaðinn og líkjast
skinnum. Einnig má breyta til með því að
hafa fallegan hálsklút eða einfaldan skraut-
grip, það fer eftir ýmsum ástæðum hvort
betur á við.
Kjólar. Sama máli gegnir um einfaldan og
kjarnorku- og vetnissprengjur; allar götur
síðan fyrstu kjarnorkusprengjurnar voru
sprengdar yfir Hiroshima og Nagasaki hafa
menn haft þekkingu á þessum lielztu eigin-
leikum þeirra; tæknileg þróun síðan hefur
margfaldað ógnirnar af þessum mannkyns-
morðtólum og nú sýnist svo, að kjarnorku-
vísindamönnum þyki meir en nóg um gá-
lausa umgengni forustumanna Jjjóðanna við
hættuna.
Því brjóta þeir í blað og snúa viðvörunum
sínum beint til almennings, særa hann að
sýna skilning og framtak í brýnasta vanda-
máli tímans og knýja fram bann við tilraun-
um með kjarnorku- og vetnissprengjur.
einlitan kjól, og raunar er þar miklu auð-
veldara um tilbreytni, því að auk Jress sem
skipta má um kraga og uppslög svo oft sem
vera skal, — livítt pikkí fer ætíð vel — má
skipta um liti endalaust, en gæta þess Jró að
velja litina í samræmi við litinn á kjólnum.
Einnig má hafa litla klúta, skrautgripi,
herðasjöl, belti með vösum, eða belti sem
bundið er snoturlega um mjaðmirnar.
Það er skynsamlegt að hafa tvo aðalliti á
kjólum og frökkum, og kaupa svo hatt, skó,
Iianzka og tösku í samræmi við Jnað.
Dragt er mjög hagkvæmur klæðnaður hér
á landi, ekki sízt ef valin er dragt með
tveimur pilsum, öðru þröngu til sjaldliafn-
ar en hinu víðara til hversdags. En gætið
þess vandlega að hafa treyjuna alltaf með
pilsinu sem við hann á, en veia aldrei í
henni utan yfir sumarkjól. Ef Jdú átt enga
sumarkápu, verðurðu annaðhvort að vera
yfirhafnarlaus úti, eða að vera í dragt, pilsi
og treyju. Forðast skaltu líka að hafa klút
bundinn eftir rússneskum sið, um Jrað verð-
um við sjálfsagt sammála. Ef þú setur á þig
klút, bindurðu hann snoturlega, og þú hef-
ur hann alltaf hreinan og nýstrokinn. Og
enn eitt, hafðu alltaf lága hæla við buxur,
því háir hælar eru fáránlegir.
52
MELKORKA