Melkorka - 01.06.1957, Blaðsíða 10

Melkorka - 01.06.1957, Blaðsíða 10
um við alveg blind. Við bjuggum í smá kofa sem var vatnslaus og ljóslaus, við þræl- uðum allan daginn og höfðum þó naum- ast ofan í okkur. En nú sjáið þið þetta ágæta hús og það sem við eigum hér inni. Við iiöfum getað menntað börn okkar. Dóttir okkar er tannlæknir. Nú líður okkur ágæt- lega bætti hún við. Konan bað okkur nú að koma með sér út á hlað, hún kvaðst ætla að sýna okkur bökun- arofninn sinn. En bökunarofninn var hola niður í jörðina um 11/£ m að dýpt og tæpur metri að þvermáli. Veggir holunnar voru hlaðnir hellusteini en eldur var kyntur í botni. Síðan sýndi ln'in okkur sporöskju- lagaðan púða úr hvítum striga. Hún sagðist láta útflatt deig á púðann og síðan þrýsta lionum á málmplötu sem er látinn yfir ofn- inn. Við höfðum orð á því að þessi baksturs aðferð iilyti að vera erfið og spurðum hvort það væri ekki óþægilegt að liggja á hnján- um við baksturinn, en gamla konan sagðist ekki fyrir nokkurn mun vilja missa ofninn sinn. Við borðuðum oft brauð sem þannig voru bökuð, þá daga sem við dvöldum í Erevan. Þau eru lík á bragðið og íslenzkt fiatbrauð, en nálægt fjórum sinnum stærri urn sig og töluvert þynnri. Nú var förinni haldið áfram að heimiH bústjórans. Úr bílnum sáum við til beggja handa bómullar- og hveitiakra. Þegar kom- ið var að melónuakrinum var numið staðar og okkur boðið að skoða hann og fá okkur melónu. Þarna uxu gríðarstórar vatnsmel- ónur grænröndóttar að utan og bleikar að innan. Ég sleit upp eina heljar stóra mel- ónu og komst með hana alla leið heim. Tólf manns borðuðu af henni og var Jró afgangur. Loks komurn við að liúsi bústjórans og tók kona lians á móti okkur með þessum orðum: Hús jtetta er ykkar hús. Var okkur sagt að slíkt ávarp væri armensk kurteisi og þýddi að við ættum að láta eins og við værum heima hjá okkur. Síðan var okkur sýnt húsið sem var töluvert stærra en hús gömlu hjónanna. Þarna voru þrjú herbergi á hæð og eldhús og geymsla í kjallara. Við komum meðal annars inn í svefnherbergi hjónanna og var það stórt og bjart. Yfir rúmunum voru livít gobelin teppi og ofan á þeim tveir stórir og þykkir koddar og hand- saumaður Ijósadúkur yfir hvorum kodda. Þessi rúmbúnaður var allstaðar á rúmum í Sovétríkjunum þar sem við komum og þótti okkur hann mjög fallegur. Er okkur hafði verið sýnt húsið leiddi húsfreyja okkur að veizluborði, sem var íslenzka sendinejndin með armenskum gestgjöfum d samyrkjubúi. 4? MELKORKA

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.