Melkorka - 01.06.1957, Blaðsíða 4
NANNA ÓLAFSDÓTTIR:
Fæðingin er sársaukalítil
Rœtt við prjdr mœður
Á undanförnum árum hefur verið talað
um þjáningarlausar barnsfæðingar, sem
konur geti tileinkað sér með afslöppunar-
æfingum. Að tala um þjáningarlausar fæð-
ingar mun ofílagt, en þegar bezt tekst til
mun konum finnast að engar þjáningar
fylgi samanborið við fæðingu án afslöppun-
ar.
Upphafsmaður þessarar aðferðar var
brezkur læknir að nafni Grantley Dick-Read.
Hann tók eftir því, að konum, sem voru ró-
legar gekk miklu betur að fæða en hinum,
sem voru taugaæstar. Hann fór þá að kynna
sér hvernig ástandið væri með fiumstæðum
þjóðum og niðurstaðan varð sú, að liann
taldi konur menningarþjóðfélaganna svo-
kölluðu þola meiri þjáningar við barnsfæð-
ingar en konur hinna frumstæðari þjóðfé-
laga. í fáum orðum sagt, hann kenndi menn-
ingunni um hvernig komið væri. Þannig
hóf hann að leita hinna dýpri raka til þess-
arar breytingar og rak sig þá á hvíldarleysi
og taugaspennu, sem óhjákvæmilega fylgir
háþróuðu nútíma þjóðfélagi. Hér varð því
að reyna að ráða bót á og hann kom sér
niður á afslöppunar- og öndunaræfingar
samfara fræðslu um fæð'inguna og vann
þannig gegn ótta og kvíða konunnar fyrir
fæðingunni og konurnar fengu mjög nauð-
synlega hvíld meðan á meðgöngutímanum
stóð. Til marks um það, að þessi aðferð er
talin koma að haldi er það, að danski Ijós-
mæðraskólinn hefur fasta kennslu í henni,
en skólinn er í sambandi við fæðingar- og
kvensjúkdómadeild Ríkisspítalans danska.
Hér á landi hefur a. m. k. ein ljósmóðir,
frú Hulda Jensdóttir í Hafnafirði, kynnt
sér þessa aðferð. Byrjaði hún að kenna af-
slöppunaræfingar fyrir tæpum tveim árurn
og er nú talsverð reynsla fengin í þessum
efnum hér í bæ og í Hafnarfirði. Það mun
mega fullyrða, að æfingarnar hjálpa öllum
konum, en eins og gefur að skilja er nokk-
uð mismunandi hve vel tekst, og kemur þá
margt til greina. Þrátt fyrir alla tækni hefur
enn ekki fundizt önnur aðferð til að létta
konum fæðingar en umræddar afslöppunar-
og öndunaræfingar.
Ég sneri mér til þriggja kvenna, sem
nokkra reynslu hafa af þessum æfingum fyr-
ir barnsburð, fyrst frú Þórdisar Tryggva-
dóttur, Suðurgötu 8B, en hún eignaðist sitt
3. barn fyrir nokkrum vikum.
..Þekktir þú reynslu annarra kvenna aj
afslöppunarœfingum, þegar þér datt í hug
að byrja á þeimV'
„Ja, ég hafði heyrt um eina konu aðeins,
og að hún væri mjög hrifin af árangrinum
af æfingunum. Síðan veit ég, að þær eru
orðnar fjölmargar."
,,Þá fórst þú af staðV’
„Já, og sá ekki eftir því. Ég get ekki þakk-
að það öðru en þessum æfingum hve mér
gekk vel með þetta 3. barn, sem var 17
marka drengur og langstærsta barn mitt.
Hin tvö átti ég án þess að nota áður æfingar
og gekk sæmilega vel að fæða bæði, þó lá ég
alveg hálfan sólarhring án þess að geta stig-
ið í fæturna og mér fannst ég kveljast óskap-
lega seinustu 6 klukkustundirnar a. m. k.,
í bæði skiptin — og bjóst við hinu sama í
þetta skipti líka.“
„Hvenær um mcðgöngutimann eiga þess-
ar œfingar að byrja?“
36
MELKORKA