Melkorka - 01.06.1957, Síða 7

Melkorka - 01.06.1957, Síða 7
°g maður sé nývaknaður að morgni. Það segir sig sjálft, að störfin verða manni létt- ari. Enda finnst mér ég hafa minna fyrir lífinu með þessi tvö börn, og hef ég þó enga aðstoð, en ég hafði fyrst eftir að ég átti fyrra barnið og hafði þá aðstoð, þar sem var tnóðir mín.“ „Hvað um maiseðilinn, er hann eftir ákveðnum reglumY‘ „Maður á að borða hollan mat, grænmeti og léttan kost, ekki þunga fæðu, rúgbrauð en ekki franskbrauð o. s. frv., svo að barnið verði ekki stórt, og maður sjálfur ekki of feitur. Lítið barn og heilbrigt er æskilegast. Reykingar á maður ekki að stunda með f>arn á brjósti, ég fyrir mitt leyti kann held- ur ekki við það og geri það ekki undir þeim kringumstæðum. Annars reyki ég eins og Itver annar. Víns á maður náttúrlega ekki að neyta.“ ,,Hvað finnst yður um að vera á svona uámskeiði i hópi kvenna, sem likt er dstatt um?“ „Umgengnin við liinar konurnar er gagn- leg. Hið andlega ástand verður annað. Ég íteyrði fljótt af spurningum, sem þær báru upp, að mitt ástand var ekki verst, aðrar attu erfiðara. Annars lield ég, að tvær hliðar séu á svona hópfundum. Spurningar eru kannski bornar upp, sem maður sjálfur I'afði ekki uppburði að gera og þá fær mað- Ur að sjálfsögðu svarið við þeim. En svo er aftur hitt, að maður liefur e. t. v. viðbótar- spurningar, sem manni finnst of persónu- *egar til að koma með í annarra áheyrn. Nú þá er að hvísla þeim að ljósmóðurinni, eftir á.“ „Flytfa lœknar fyrirlestra á þessum nám- skeiðum?“ „Jónas Bjarnason læknir flytui fyrirlestur a námskeiðunum og er eiginmönnum boðið þangað sérstaklega og upplýsingar gefnar þeim. Þetta er líka spurningatími, sem faðir °g móðir geta notfært sér. Annars gengur sumum konum erfiðlega að fá eiginmennina á þennan fund.“ Melkorka Hvað segir fæðingalæknirinn? Sem snöggvast náði ég tali af Pétri H. J. Jakobssyni yfirlækni á fæðingadeild Lands- spítalans og spurði bann hvað hann segði nm Jiessar afslöppunaræfingar. Hann svar- aði eitthvað á þessa leið: Vandinn er ekki leystur með Jieim, en öll fræðsla í sambandi við það sent á að ske, er mjög jákvæð. Einn- ig að notist sú hvíld, sem gefur milli hríð- anna, þegar að fæðingu er komið. Og þá ber að líta á Jiað, að nú orðið höfum við ýmis deyfilyf („pethidine”, „trilene"), sem slá á sársaukann, án þess að hafa áhrif á fæðing- una eða skaða konuna eða barnið en konan er vakandi eftir sem áður og fær um að lilýða því sem henni er sagt að gera. Þess skal getið að lokum, að Jiessar æfing- ar, sem nú hefur verið fjallað nokkuð um, eru sagðar góðar og gagnlegar hverjum sem er, körlum jalnt og konum, ungum sem gömlum, [x') að engin barnsfæðing sé fram- undan, aðeins til að ná góðri hvíld á stutt- um tíma og til hressingar. 39

x

Melkorka

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.