Melkorka - 01.06.1957, Page 22

Melkorka - 01.06.1957, Page 22
Faðir minn svaraði ekki, honum var örðugt um andardrátt. Nú hélt hann þéttar um hönd mína að ég hrasaði ekki í dimmunni. Loks svaraði hann: Barnið mitt, það sem bíður okkar, er flóttinn út í óvissuna undan eyðileggingunni, sem mennirnir hafa áskapað okkur, voldugir menn, ekki guðir, því við erum arftakar þeirra örlaga, er biðu fólksins í Nagasaki og Hiroshima. Og nú að loknum páskum, með stærsta blað landsins í höndum, flaðrandi upp um erlendan hershöfðingja, sem mælir sléttum munni spekúlationina með íslenzkt land og fólk — er mér langpíndum lesanda þessa „stærsta blaðs“, eins og ferskt loft eftir pest að lesa þessi viðvörunarorð skáldsins frá Munaðarnesi. Kvæðið lieitir Eldur: Hví hleður þú að liúsi mínu bálköst og leggur logandi sprek að grænu þili úr gömlum viði? Og hús mitt brennur, heimili, lffsstarf. Hús föður míns og móður minnar, hús ættfólks míns og minnar þjóðar. En þú stendur kyrr, með gullskúfa á báðum öxlum og gyllta hnappa úr dýrum málmi, f ísgrárri treyju, og þú glottir, — köldu nístandi glotti undir gylltum hjálmi. Kímnin er aðeins aukatónn í þessari bók, en hin fáu dæmi hennar sýna hve skopið er Sigríði náið, sbr. kvæðin JJngar stúlkur og Þá var brú yfir lækinn. Það leynir sér ekki að þá yrkir Sigríður bezt, er ljóðið er óbundið af rími; þá nær hún svo staklega góðu samræmi í efni, orða- vali og formi, að mér finnst ljóð liennar með þeim beztu sem nú birtast. Lesendum Melkorku er Sigríður kunn af einu og einu kvæði, sem birzt hefur eftir hana í þessu riti. Nú gefst tækifæri til að kynnast nánar hinum góða skáldskap henn- ar með því að kaupa bókina. Það svíkur engan, hvort sem liann hallast að hefð- bundnu eða óbundnu formi ljóða. Milli lækjar og ár er gefin út á forlagi Heimskringlu, mjög smekklega. Káputeikn- ingu hefur frú Anna Guðmundsdóttir gert, einnig mjög smekklega. N. Ó. Stefán Jónsson: Hanna Dóra ísafoldaiprentsmiðja h.f. 1956. í fyrra í jólaösinni vann ég í bókabúð og meðal alls þess grúa, sem ég afgreiddi eru mér minnisstæðir tveir ungir rnenn, auð- sjáanlega bræður. Þeir komu til að kaupa bækur eins og aðrir, en ekki til að gefa í jólagjöf, heldur handa sjálfum sér. Ég tók fram bókina Hlustað á vindinn eftir Stefán Jónsson, þá nýkomna, og tók að hrósa henni í kaupmannstón. Þá greip annar ungi mað- urinn frammí og sagði: „Þú þarft ekki að segja okkur neitt um Stefán Jónsson, við vitum áreiðanlega meira um hann en þú og eigum allar hans bækur.“ Síðan keyptu þeir bókina, sitt eintakið hvor til að eiga. Þannig er það, ég ætla ekki að segja ykk- ur neitt um Stefán Jónsson, því ég veit hve vel þið jrekkið hann en samt leyfi ég mér að minna á, að hann hefur skrifað enn eina bók handa okkur. Það er sagan um Hönnu Dóru eða Klingenbergfólkið eða lieimilis- fólkið á Staðarhöfða. Bækur Stefáns eru svo margt í senn. Undir gamansömu yfirborði er lifandi kvika, ótal fínir strengir, sem titra. Það er ef til vill ástæðan fyrir því að sagt er um Stefán að bækur hans séu barna- 54 MELKORKA

x

Melkorka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.