Melkorka - 01.06.1957, Page 25

Melkorka - 01.06.1957, Page 25
hlaut að vera þakklát þeira konum, sem lagt höfðu þann skerf til islenzkrar menningar, sem þar gat að líta. Sumar höfð'u ekki liaft á öðru ráð en strjálum eða stopulum tómstundum en aðrar höfðu lagt á þyrn- Uln stráða braut listamannsins. En allar liöfðtt þær sannað, þó siLt með hverju móti væri, að menning ís- lands væri minni ef hendur og heilar kvénna kæmu þai ckki við sögu. Valborg Bentsdóttir Athugasemd. Ekki verður manni alltaf að ósk sinni. Helzt hefði ég kosið að minnast ekki einu orði á þessa sýningu í grein minni um KRFÍ og ætlaði því að láta tvö °rð nægja. Nú eru skrif um hana orðin á heila síðu! Þegar svo lílill salur sem bogasalur Þjóðminjasafnsins ei' til umráða og þar á að hafa saman bókasýningu og santsýningu á listaverkum kvenna, þá verður maður að Vera strangur um úrval þess sem sýnt er og hér var af "'iklu að taka. Hve það tókst báglega var höfuðgalli sýn- úigarinnar og setti sinn óhjákvæmilega svip á hana. Þessi staðreynd snertir ekki fyrirkonutlag og niðurröðun. Ég efa ekki, að sýningarnefndin hafi haft mikið ómak í sam bandi við sýninguna, en það er ekki mælikvarði á hvern- 'g tókst. Mér skilst á V. 15., að lnin ætlist til, að við konur ÚUitn þessa sýningu öðrum og mildari augum af því að konur stóðu að henni, en það er í litlu samræmi við kjör- °rð K.R.F.Í.: sami réttur, sömu skyldur. — N. Ó. Utan úr heimi í janúar samþykkti stjórnmálanefnd Sameinuðu þjóð- anna (Second Political Committee) að víta kynþátta- ofsóknir stjórnarinnar í Suður-Afríku. Nefndin álítur, að framkoma stjórnarinnar í þesstt efni brjóti í bágd við stefnuskrá Sameinuðu þjóðanna. # Frönsk kvennasamtök hafa sent frönsku stjórninni mótmæli vegna embættisveitingar nazistaforingjans Speidels, en hann hefur verið skipaður yfirforingi herja Atlantshafsbandalagsins í Suður-Evrópu. í bréfinu til stjórnarinnar segir m. a.: „Þessi embættisskipun er móðgun við minningu föðurlandsvina, sem samkvæmt skipun lrans (Speidels) voru líflátnir, eða sendir í opinn dauðann x fanga- búðir á styrjaldarárunum . . . Her okkar mun ckki geta fallizt á þetta ... Margir ungir hermenn, seni verða undir stjórn hans, eru synir manna úr mótspyrnu- hreyfingunni, sem voru drepnir samkvæmt fyrirmælum Speidels ...“ Bréfið hvetur frönsku stjórnina til að mótmæla þess- ari embættisveitingu. Hafið þér athugað: 1. að það er tiltölulega mjög ódýrt að ferðast með strandferða- skipum vorum í kringum land, en fátt veitir betri kynni af landi og þjóð. ☆ 2. að siglingaleið m.s. ,,Heklu“ að sumrinu til Færeyja, Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur er mjög skemmtileg og fargjöldin hófleg. Skipaútgerð ríkisins Melkorka 57

x

Melkorka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.