Melkorka - 01.06.1957, Blaðsíða 29

Melkorka - 01.06.1957, Blaðsíða 29
H.f. Eimskipafélag íslands Aðalfundur Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags íslands verður haldinn í fund- arsalnum í húsi félagsins í Reykjavík laugardaginn 1. júní 1957 og hefst kl. 1 e. h. D AGSKRÁ: 1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. des. 1956 og efnahagsreikning með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu ársarðsins. 3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra, sem úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins. 4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess, er frá fer, og eins varaendur- skoðanda. 5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins. 6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að vera borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönn- um hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 27.-29. maí næstk. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðal- skrifstofu félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir, að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins í hendur til skrásetningar, ef unnt er 10 dögum fyrir fundinn, þ. e. eigi síðar en 19. maí 1957. Reykjavík, 8. janúar 1957. STJÓRNIN Melkorka 61

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.