Melkorka - 01.06.1959, Qupperneq 3
MELKORKA
TÍMARIT KVENNA
Ritstjórn:
Nanna Ólajsdóttir, Reykjalilið 12, Reykjavik, sitni 13156 . Þóra í'igfúsdóttir, Þingholtsstrceti 27, Rvik. simi 15199
Útgefandi: Mál og rnenning
Skuggar Atlantshafsbandalagsins
Eftir Drífu Viðar
Mikið liefur verið talað vegna 10 ára af-
mælis Atlantshafsbandalagsins. Það voru
haldin tvö útvarpskvöld með viðeigandi ó-
hróðri um þá sem afmælisbarnið fæddist
gegn í upphafi. Mér virtist að mestu gleym-
ast að tala um afmælisbarnið sjálft. Og því
miður hlýtur mér að fara sem þeim, mér
væri ómögulegt að hrósa afmælisbarninu.
Það er ekki af tómri illkvittni sem ég segi
þetta, ég vildi óska þess að ég gæti sagt því
eitthvað í vil, en hvernig sem ég rannsaka
hugann er mér það ómögnlegt. Ég vildi
geta sagt eins og þeir: „Það er friðar- og
frelsisbandalag“. En við vitum að það er að
búast til stríðs. Ég vildi geta sagt: „Þetta er
varnarbandalag frjálsra þjóða,“ en það væri
mér ómögulegt af því að þetta er bandalag
nokkurra ríkra kalla sem eru að verja hags-
muni sína í löndum og lausunr aurum til
þess að ekki verði hægt að skipta auðnum
jafnt, bandalag sem ásælist auðlindir ann-
arra, bandalag sem kemur af stað vígbúnað-
arkappldaupi. Ég vildi hafa mátt segja með
afmælisbarninu, að það hefði staðið fremst
í flokki fyrir menningu og framförum eins
og sagt var við stofnun þess, að lilntverk
þess eigi að vera. Að lokum, ég vildi óska
þess af heilum hug að það hefði verið svo
ábyrgt að reyna að hindra vetnissprengju-
tilraunirnar, sem gerðar hafa verið í brjál-
melkorka
æði og ábyrgðarleysi, í trássi við neyðaróp
vísindamanna, í trássi við vilja mannkyns-
ins, í trássi við lífið á hnettinum. En At-
lantshafsbandalagið hefur hvorki meira né
rninna en allar sprengingarnar á samvizk-
unni, sprengjukapphlaupið er þess sök.
Hershöfðingjum bandalagsins kemur ekkert
við lífið á jörðinni, heldur dauðinn.
Og það veit enginn hversvegna þeir eru
að þessu.
Ráðamenn bandalagsins vita svar við því:
Það er baráttan gegn kommúnismanum.
Það var sarna vígorð sem Hitler notaði til
þess að drepa og tortíma, bæði mönnurn,
kynþáttum, öllu andlegu lífi og frelsi þjóð-
anna.
T Vestur-Evrópu kveður svo rammt að
þessum kommúnisma, það er hvorki meira
né minna en öll hámenning Vestur-Evrópu
sem talin er til hans. Það er vígbúist gegn
þessari hámenningu, komið sér upp her,
flota, sprengjum, flugvélaflota. Ég þarf ekki
annað en líta til míns heimalands og verða
þá fyrir mér róttækir rithöfundar í fremstu
röð okkar andans manna, vakandi um liag
litla mannsins að hann verði ekki borinn
fyrir borð. Það þarf her, flota, sprengjur og
flugvélar til þess að sigrast á málstað þeirra
og bæla í þeim rostann, en einnig til þess
að fæla aðra frá því að feta í fótspor þeirra.
35