Melkorka - 01.06.1961, Blaðsíða 12
urinn hennar vann í kæliskápaverksmiðju,
en missti vinnuna litlu síðar og fékk ekki
vinnu aftur fyrr en eftir frelsunina. Hann
reyndi að framfleyta sér og fjölskyldunni
sem farandsali. Sui-ying var rekin úr verk-
smiðjunni þegar hún varð ólétt. Alveg pen-
ingasnauð fluttu þau í útjaðar Shanghai til
þess að rækta lítinn jarðarskika. Tveimur
árum síðar tókst henni að fá vinnu aftur í
verksmiðjunni, varð að nota reiðhjól manns-
ins til að komast liina löngu leið í vinnuna.
Aftur varð hún ólétt; þegar barnið kom,
varð hún að sjá um allt sjálf, það fæddist á
moldargólfinu, hún var of þróttlítil til að
skríða upp í rúmið. A tíunda degi varð hún
að senda barnið til annarra, þar sem hún
liafði ekki efni á að halda því. Um þetta
leyti var luin þegar búin að eignast fjögur
börn. Fyrsta barnið dó, þriðja barnið var
gefið burt, og nú dó annað barnið í veik-
indum. Enn einu sinni fór Chang Sui-ying
í verksmiðjuna en varð að gefast upp; siður
var að verkamaðurinn gaf verkstjóranum
einhverja gjöf, en hún átti enga peninga,
því setti liann lienni fyrir erfiðari vinnu en
hinum og kvaldi liana stöðugt. Hún fór
aftur að selja grænmeti; tíu mánuðum síð-
ar kom frelsunin, og í október 1949 var
Chang Sui-ying beðin að fara aftur að
vinna í verksmiðjunni.
Þegar liingað er komið sögu hverfur ó-
framfærni Sui-ying. Skuggi af brosi færist
yfir andlitið. Fingur liennar hætta að toga
í vasaklútinn, hendurnar opnast og hún
hreyfir þær eins og væri hún að heilsa nýju
lífi.
Nú liafa þau atvinnu bæði hjónin, hún
hefur 80 yuan í kaup á mánuði. Heilsa
hennar fer batnandi af því að hún getur
keypt sérstakt mataræði í mötuneytinu,
vinnuaðstæður allt aðrar. í þessari verk-
smiðju þar sem hún er búin að vinna í 20
ár, er allt gerbreytt. Það eru varnir gegn
slysum, góð loftræsting, á sumrin er jafnvel
svo þægilegt að verkafólkið kýs heldur að
vera inni; á vetrum er miðstöðvarhiti. Nýir
snyrtiklefar handa konunum, meira að
segja vöggustofa. Samkvæmt nýju löguntim
eiga konur rétt á sömu vinnuskilyrðum og
meðferð og karlmenn. Þær vinna 8 klukku-
stundir á dag við sama kaup og sömu rétt-
indi samkvæmt vinnutryggingarlögunum.
Læknishjálp er ókeypis, sömuleiðis spítala-
og hælisvist ef þörf gerist. Kostnaður við
læknisskoðun á meðgöngutímanum og við
fæðingu er greiddur af verksmiðjunni eða
ríkinu. Sui-ying er nú aðstoðarmaður í
deildarstjórn og lifir Iiamingjusömu og
auðugu lífi, sem hún mundi aldrei hafa
dirfzt að vonast eftir áður fyrr. Hún á enn-
þá heima í sama húsi, en búið’ er að byggja
við það fleiri herbergi og það er komið raf-
magnsljós og vatnskranar. Þau eiga von á
íbúð í nýrri samstæðu.
„Dóttir mín 12 ára, Chang Si-yuan, er í
5. bekk og liún er að lijálpa mér að læra.
Áður var ég ólæs en nú er ég komin í 4.
bekk.“
Frásögn hennar, einföld, óskreytt, er bú-
in. Hún verður að fara, er á vakt seinni
part dags. Þegar Chang Sui-ying og Dymp-
hna Cusack ganga að lyftunni, tekur hún
allt í einu hönd Dymphna Cusacks í báðar
sínar og hlær upphátt. Hún er óþekkjanleg.
„Og hjartað hlær í mér,“ segir hún, „af því
að ég Iiitti í fyrsta sinn erlendan vin. Ég vil
kalla þig Ta-chieh, „Eldri systur“.“
Ljúffengur sumarréttur
Hvítkál og ostur
Þvoið hvítkálshöfuð vel, tjarlægið yztu blöðin. Brytj-
ið smátt niður. Sjóðið í saltvatni 10—15 mín. Látið í
sigti og vatnið síað vel frá. Stnyrjið ehlfast mót vand-
lega og látið dálítið af kálinu í botninn. Þynntu tómat-
mauki hellt yfir, því næst er ostur rifinn yfir í nokkttð
þykkt lag og yfir stráð smáttskornum lauk. Látið aftur
kál í rnótið og aftur þykkt lag af rifnum osti og hellið
svo tótnat-mauki yfir allt. Stráið salti og pipar yfir, þá
brauðinylsnu og stingið f litlum smjörhitum hér og
þar. Rétturinn er bakaður í heitutn ofni uin stundar-
fjórðung.
48
M ELKORKA