Melkorka - 01.06.1961, Blaðsíða 13
r
Listakonan Barbara Arnason
fimmtug
Barbara Árnason, ein at okkar ágætustu listakonum, varð fimmtug 19.
april síðast liðinn. í tilefni afmælisins efndi Bandalag islenzkra lista-
manna til yfirlitssýningar á verkum listakonunnar, sem vakti verðskuld-
aða athygli. Melkorka leyfir sér að tilfæra hér stuttan kafla úr grein unr
listakonuna eftir Líneyju Jóhannesdóttur:
í tuttugu og fimm ár hefur Barbara dvalið nteðal okkar. Börn þessa
lands fletta bókum síuum af meiri gleði eftir komu hennar. Skreyting
l)óka var hér hartnær óþekkt, vandasamt og erfitt verk, þar sem fylgja
þarf orðum annárra, en gefa jafnframt eigin listsköpun óbundnar hend-
ur. Ung lærði Barbara þessa merkilegu listgrein. Betri förunaut á hugar-
flugi sínu fær æskan ekki. Varla hefur
annar listamaður farið næmari höndum
og af meiri skilningi um barnslega við-
kvæmni.
Ef leitað er í því skríni, sem geymir
pensla og hnífa, krítir og ritblý Barböru,
rékuiiist við á hlut. sein ætið hefur verið
tryggur förunautur konunnar. Gamla nál-
in á þar sinn heiðurssess. Ið.in í iðnum
liöndum hefur hún löngum stagað og
bætt, en flestar konur hafa einnig l>eitt
henni í þrá sinni til listsköpunar. I hönd-
um Barböru hefur hún gegnt hvoru-
tveggja hlutverki sínti, þótt engum þyki
það fyrra umtalsvert. l’eir listmunir sem
hún hefur lieitt nálinni við, bera merki
sérkennilegrar þróunar og hafa margoft
leitt huga minn til fornra egypzkra lista-
verka.
Fagurt form einkennir allar hugmynd-
ir listakonunnar, einfalt og viðkvæmt
túlkar það á undarlega næman hátt
innsta kjarna sköpunargáfu hennar .. .
„Sildarstúlkur", veggteppi eftir
Barböru Arnason.
49