Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2001, Side 2
SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ í REYKJAVÍK OG NÁGRENNI
FRÉTTABLAÐ
ÚTGEFANDI:
SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ í REYKJAVÍK OG NÁGRENNI
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR
S. JÓNA HILMARSDÓTTIR
Kæru Siglflrðingar.
Tíminn flýgur og flýgur og
félagið okkar er orðið 40 ára!
I október 1961 komu nokkrir
Siglfirðingar saman í Reykjavík
og stofnuðu Siglfirðingafélag,
þökk sé þeim. Félagsstarfið hefur gengið í bylgjum þessi
ár, stundum mikið um að vera og stundum lítið eins og
gengur. En alltaf eru árvissir viðburðir eins og
Kaffidagurinn í maí, jólaballið í desember, aðalfundur á
haustin og svo auðvitað árshátíð eða einhverskonar skrall.
Og nú er stefnt að viðamikilli afmælishátíð í tilefni
afmælisins. Verður hún haldin á Hótl Sögu laugardaginn
13. október nk. Allan veg og vanda að hátíð þessari er í
höndum Ola Bald, Helgu Ott og Gumma Jóns (sjá nánar
um afmælishátíðina hér hægra megin á síðunni).
Sama stjórnin hefur verið svo að segja óbreytt í 10 ár.
Nú verður breyting þar á þar sem Karl (gjaldkeri) og Jón
Sæmundur (formaður) hafa ákveðið að láta af störfum. A
aðalfundinum sem haldinn verður 30. október verður kos-
in ný stjórn. Hvetur félagið sitt fólk til að mæta og sína
samstöðu og styrk með félaginu sínu (sjá nánar um aðal-
fundinn á baksíðu).
Undirrituð hefur ritstýrt Fréttablaðinu undanfarin mörg
ár. Að þessu sinni með góðri hjálp Gunars Trausta. Hjálp-
aði hann til við efnisöflun, prófarkalestur og fleira. Kann
ég honum bestu þakkir fyrir.
Enn einu sinni hvet ég Siglfirðinga til að hafa samband
við undirritaða með skemmtilegar greinar frá æskudögum
á Sigló og/eða myndir.
Sjáumst svo á afmælishátíðinni. Lifi félagið okkar
S.Jóna Hilmarsdóttir • jonahilmars@isl.is
Þörf leiðrétting!
Lesendur þessa blaðs hafa vart komist hjá því að
vita að ritstjórinn er í árgangi ‘55. Svo oft hafa
birst myndir af saumaklúbbi ritstjórans og
vinkonum úr árgangi ‘55. I síðasta blaði var
engin undantekning þar á. Birtist þessi líka fina
mynd af nokkrum úr klúbbnum á leið á
Siglfirðingaball. En undir myndinni stóð að við
færum fæddar 1951 sem er helber mis-
skilningur! Við erum alls ekki fimmtugar,
heldur rúmlega fertugar! Leiðréttist þetta hér
með og biður ritstjórinn hlutaðeigandi forláts
án afláts!
Afmælishátíð
Si g Ifi rði n gaf é lagsi n s
13. október 2001
Undirbúningur að hátíðinni hefur gengið vel að sögn skemmti-
nefndar en í henni eru Ólafur Baldursson, Helga Ottósdóttir og Guð-
mundur Jónsson. Byrjað var að kanna húsnæðismál strax á síðasta ári.
Hótel Saga verð fyrir valinu, bæði hentar Súlnasalurinn mjög vel og
svo var Saga ódýrasti kosturinn.
Undanfarna mánuði hefur
skemmtinefndin átt marga fundi,
heilmikil vinna fylgir því að undir-
búa svona viðamikla hátíð.
Akveðið var að leita samstarfs við
Valgeir Skagfjörð um skemmtiatriði.
Hefur hann samið bráðskemmtileg-
an söngleik um Siglfirðingafélagið
í Reykjavík í 40 ár. Allir leikendur
og söngvarar eru Siglfirðingar. Val-
geir stjórnar einnig sýningunni og
leikur undir á píanó. Æfingar hafa
verið margar og tekist vel.
Jóhannes eftirherma og grínari
skemmtir einnig veislugestum.
Að síðustu koma fram Siglfirskir feðgar sem eiga eftir
að koma mjög á óvart!.
Borinn verður fram þríréttaður málverður, glæsilegur og góður að
hætti Sögu.
Heiðursgestir á afmælishátíðinni verða hr. Óláfur Ragnar Grímsson
og heitkona hans Dorriet Mussaief.
Fyrir fimm árum, á 35 ára afmælishátíð félagsins, voru 3 félagar
sæmdir gullmerki félagsins. Ákveðið hefur verið að heiðra 4 félaga að
þessu sinni með gullmerki félagsins.
Hljómsveit hússins, Saga Class leikur fyrir dansi fram á nótt.
Þannig að ýmislegt verður dl gamans gert og segist nefndin finna
fyrir mikilli stemmningu og hvetur alla Siglfirðinga nær og fjær að
fjölmenna á afmælishátíðina. Miðasala og borðapantanir verða á Hót-
el Sögu 10. október frá klukkan 1 7:00. Allar upplýsingar veitir Ólafur
Baldursson í síma 892 4123.
af skemmtmdndi,
Helga Ott.
Karl Ragnars og Jón Sœmundur hafa gegnt starfi gjaldkera og
formennsku í 10 dr. Hafa þeir nú ákveðið að ldta af störfum og
þakkar félagið þeim vel unnin störf.
♦