Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2001, Blaðsíða 13
„Aldrei Iíður sd dagur að ég grípi ekki í gítar-
inn eða orgelið" segir Björn Birgisson.
helgi. Pabbi lagði stóra kojubílnum á
stæðið fyrir utan til að hlýða á Önnu
Láru en mamma og Ingólfur á Höfn
voru inni við veitingasölu á barnum.
Eina helgina þetta sumar voru Gautarn-
ir með ball á Höfninni en allur skarinn
var hjá okkur og að endingu sáum við
Gautana sjálfa gægjast inn um dyrnar.
Þetta var gífurlega skemmtilegur tími
og svo margt að gerast í tónlistinni útí
heimi, á Islandi og á Sigló.
Eg bý að þessum tíma enn og aldrei
líður sá dagur að ég grípi ekki í gítarinn
eða orgelið. Ég á um 100 lög á bandi og
gríp í þau að af og til. En mig vantar til-
finnanlega texta við þau flest og hef ver-
ið að reyna að koma mér í samband við
textaskáld með tóneyra, en það er sitt-
hvað að semja ljóð og að gera texta við
lag.
Þegar að mamma dó átti ég fullgert
lag sem Steini bróðir gerði texta við að
beiðni organistans í Fossvogs-
kirkju og var það flutt við
jarðarförina. Kór kirkjunnar
fór gífurlega vel með þetta án
nokkurra æfmga og ég fékk
mikið út úr þessu. En Karla-
kór Siglufjarðar hefur í
hyggju að taka lagið upp á
efnisskrá sína nú í vetur.
Lýkur hér spjallinu við
Björn. Það er þó gaman að
segja frá því að fyrir nokkru
tjáði mér siglfirsk kona að pabbi lagði stóia kojubílnum á
hún hefði séð í blöðum frá
leikskóla lítillar frænku sinnar
í Grafarvogi fjölritaðan textann af Önnu
Láru ásamt Litlu flugunni hans Fúsa og
öðrum klassískum sönglögum. Það er
því ljóst að hvorki Anna Lára, Bryndís
og Bára eða Lalli Blöndal gleymast í
°nnu Luru’ Bryndísi og Báiu.
bráð!
stœóið fyiir utan ti, að híýda d
Anna Lára, Bryndís, Bára, frænka mín og Lalli Blöndal,
Anna Lára, Bryndís, Bára, frænka mín og Lalli,
Anna Lára, Bryndís, Bára, frænka mín og Lalli Blöndal,
Anna Lára, Bryndís, Bára, frænka mín og Lalli.
O Lalli, ég ætla að fá mér blað,
ó Lalli, ég ætla að lesa það,
ó Lalli, ég ætla að fá mér bók,
og skreppa yfir til Höllu og fá mér eina kók,
og skreppa yfir til Höllu og fá mér eina kók.
Og ef þig skyldi einhvern tíma vanta eitthvað til að lesa,
þá komdu bara vinur, og ég skal redda því.
Hefurðu nokkurn tíman lesið glæparitið um hann Pésa
og í þínum sporum færi strax og fletti því.
O, Lalli, ég ætla að fá mér blað ...
Anna Lára, Bryndís, Bára ...
O, Lalli, ég ætla að fá mér blað ...
Eina bók frá Lalla Blöndal, eina kók frá Bigga Run.
Ertu á leið á Sigló
og vantar húsaskjól?
Mörtuskjól er til leigu
frá einum sólarhring.
Leikfélag Sigluljarðar
Allar nánari upplýsingar í síma 467 1288 eða 866 1269 - Brynja