Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2001, Blaðsíða 5

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2001, Blaðsíða 5
A-Iið KV 1961 eins og þaó var skipað í þriója leiknum við KK þaó ár. með félagssjóðinn undir hendinni í þann mund sem ég kom æðandi inn sótsvartur af reiði og til alls líklegur. Einnig er greint frá meintu svindli Jónasar Valtýs og hvarfi Karls Alfreðs- sonar úr félaginu: „A æfingu uppi á hól var farið í boðhlaup eftir fótboltann. Þá hlupu saman Nóni og Kalli. A leiðinni til baka sagði Kalli að Nóni hefði ekki hlaupið alla leið og hægði á ferðinni. Þá kallaði ég: Afram bakarabrauð!, því pabbi hans er bakari. Þá reiddist hann og hætti í KV daginn eftir.“ Kalli gekk í félagið aftur skömmu seinna og hlaut lofsamleg ummæli þegar hann fluttist burt úr bænum næsta haust: „Góður meðlimur félagsins flutti ... og var mik- ill missir þegar hann fór.“ Annar góður félagi lenti eitt sinn upp á kant við okkur en sá hafði greitt fé- lagsgjald sitt, sem var 25 krónur, með efni í skúr sem brekkuguttar höfðu byggt: „Einn meðlimur í KV, Einar Páls- son, skaffaði hjarirnar á skúrinn. Einu sinni tók hann hjarirnar af skúrnum. Þá rákum við hann úr KV Alveg síðan er hann alltaf að biðja um inngöngu." Ein- ar gekk að sjálfsögðu til liðs við félagið aftur og lék um tíma með A-liðinu. ymis átök urðu síðan milli strákanna, bæði innan félagsins og á milli hverfa: „Ekkert var safnað í dag vegna rigningar en stolið var undan seglinu helling af drasli og stolið úr ein- um skúrnum. A morgun ætlum við að rannsaka hverjir það hafa verið.“ Enn halda átökin áfram: „Það var gerð til- raun til þess að kveikja í einum skúrn- um og við gátum slökkt þegar einn kassi var brunninn." Baráttan við sigl- firsku vetrarveðrin kom einnig við sögu. Fyrirliðinn er með allan hugann við söfnun í brennuna og hættir sér meira að segja út í óveður: „Voða skafl- ar eru komnir og voða flóð og bryggjur hafa brotnað í spón og fólk hefur þurft að flýja hús sín. Það skolaði upp 2 dekkjum sem ég tók og hirti og flyt þau upp í brennu þegar veðrinu slotar." íþróttamót sem reynt verður að hafa tvisvar," skrifar Simmi en sumarið 1962 voru kappleikirnir þó færri en árið á undan. Leiktíðin hófst í júní og í bók- inni segir: „A laugardaginn 16. júní stendur til að 5. flokkur KV keppi við 5. flokk KS og verður það æsandi leikur." A-lið KV hafði breyst frá árinu áður. Nóni var kominn í markið og Matti á hægri kantinn. Simmi var ekki í liðinu þar sem hann var vaxinn upp í 4. flokk. Fasti kjarninn í liðinu voru Kjartan Stef, Gestur, Gummi og Kristján en meðal nýliða voru skráðir: Nonni Baddi (Jón Baldvin Hannesson), Tommi (Tómas Jónsson) og Haukur (Haukur Snorra- son). Tveir síðastnefndu voru ekki brekkuguttar en fengu samt inngöngu í KV. Leikurinn fór 4-6 fyrir KS. Skömmu seinna er sagt frá leik KV og KK sem fram fór 28. september. Þá spil- uðu með A-liðinu í fyrsta sinn Þorsteinn Kárason og Jóhann Skarphéðinsson. Um þann leik segir í bókinni: „...en KV vann með 7 mörkum gegn 0 mörkum. Leik- urinn var lélegur og átti KV allan leikinn og KK menn voru heppnir að fá ekki á sig upp undir 20 mörk.“! Félagar í KV lögðu stund á fleiri íþróttagreinar en knattspyrnu. Þeir tóku þátt í skíðamótum með góðum árangri og æfðu frjálsar íþróttir; hlaup, stökk, spjótkast og kúluvarp. Keppt var í frjáls- um íþróttum á innanhússmótum í KV og árangur hvers og eins brekkugutta í þessum greinum var skráður í bókina. Áfram bakarabrauð! Yfirleitt gekk samstarfið í félaginu vel en stundum slettist upp á vinskapinn. Frá því er sagt í bókinni þegar höfundi þessarar greinar sinnaðist við bróður sinn einn kaldan vetrardag. Hótaði ég þá að segja mig úr félaginu og taka það sem ég hafði greitt í félagssjóðinn. Simmi hljóp strax heim og rétt náði að forða sér út um bakdyrnar á sokkaleystunum Allt saman lygi hjó Matta Einn líflegasti kafli bókarinnar fjallar um það þegar strákarnir í KV söfnuðu drasli í áramótabrennuna. Hér verður gripið niður í bókina þegar söfnunin er vel á veg komin: „Nú er heldur orðið þröngt hjá okkur um geymslupláss. Við erum búnir að fylla 4 skúra og setja drasl undir segl uppi í gili.“ Næsta skrefið var að útvega olíu en það fór á annan veg en ætlað var í fyrstu: „Það var allt saman lygi hjá Matta um að hann hefði fengið olíutunnu á tombólunni." Matti kemur ekki meira við sögu en Ur sögunni Frásögn af starfsemi KV lýkur í janúar 1963. I lok KV bókar vottar fyrir trega þegar Simmi skrifar: „KV starfsemin hefur legið að mestu niðri í vetur en í dag 2. janúar mundi ég eftir því að KV væri 2 ára á morgun og þá spurði ég Gumma hvaða dagur væri á morgun og hann svaraði: Já, það er fimmtudagur. Ég veit það sagði ég en manstu ekkert merkilegt við þennan dag. NEI! Hann mundi það ekki. Þannig var KV nærri komið úr sögunni eftir 3 mánaða stopp. “ Verið ávallt velkomin BIFREIÐAVERKSTÆÐI

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.