Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2001, Blaðsíða 4
Brekkusniglar í Vörn
Kjartan Stefánsson gluggar í 40 ára gamla minnisbók sem eldrí bróðir hans,
Sigmundur Stefánsson, hélt um Knattspyrnufélagið Vörn 1961-1963
í ársbyrjun
2001 varð ég
fimmtugur sem
vart er í frásögu
færandi. Meðal
margra góðra
gjafa sem ég
fékk af því tilefni
var lítil bók sem
Kjartan Stefónsson. eldri bróðir
minn, Sigmund-
ur Stefánsson, afhenti mér til varðveislu.
Bókin kom strax kunnuglega fyrir sjón-
ir enda mundi ég eftir því að Simmi
hafði haldið nokkurs konar minnisbók
um ýmsa viðburði tengdum íþróttafé-
lagi á Brekkunni á Siglufirði sem var við
lýði á árunum 1961-1963. Félagið hét
Knattspyrnufélagið Vörnin, KV Simmi
var driffjöðurin í þessum félagsskap og
fyrirliði A-liðs félagsins í fótbolta á
meðan það var og hét og stjórnaði okk-
ur strákunum með miklum sóma. Bók-
in heitir einfaldlega „KV BÓK“ og hef-
ur að geyma 96 handskrifaðar síður.
Ég fletti bókinni strax með nokkrum
spenningi - enda fékk ég aldrei að koma
nálægt henni á sínum tíma - og við lest-
ur hennar rifjuðust upp ýmis skemmti-
leg atvik sem voru löngu gleymd. Bókin
er um margt merkileg samtímaheimild
ekki síst fyrir þá sök að hlutunum er lýst
eins og þeir koma 11-12 ára dreng fyr-
ir sjónir. Hún er í senn fullorðinsleg og
barnaleg en svo lengi sem hún varðveit-
ist geymir hún frásögn af íþrótta- og fé-
lagsstarfi strákanna á Brekkunni á þess-
um árum. Þetta er ekki samfelld saga
heldur frásagnarbrot þar sem 30-40
brekkuguttar á aldrinum 8-12 ára eru
nefndir á nafn. Hér á eftir verður stiklað
á stóru í KV BOK en eins og gefur að
skilja þarf að sleppa mörgu.
Þótt knattspyrna sé sumaríþrótt grein-
ir bókin aðallega frá starfsemi KV á
haustin og veturna og flestir kappleikir
félagsins fóru fram í september og
október. Á því eru eðlilegar skýringar
eins og vikið er að á einum stað í bók-
inni: „Við ætlum að reyna að fá góðan
völl og hafa fastar æfingar þegar síldar-
tíminn er búinn því ekki er hægt að
hafa fastar æfingar yfir mesta síldartím-
ann. Þá geta menn verið ræstir út þá og
þegar.“ Þessi orð segja meira en margt
annað. Vinnan hafði algeran forgang á
Siglufirði á þessum tíma.
Nú verða allir
B-liðs menn að œfa af kappi
KV var stofnað 3. janúar 1961. Fátt er
sagt frá starfi félagsins fyrsta sumarið,
líklega vegna anna í síldinni, en 13.
september það ár er haldinn fundur í
KV og þar er ákveðið að keppa við KS,
aðal knattspyrnuliðið í bænum. Hér er
mikið í húfi og fyrirliðinn ritar í bók-
ina: „... einnig vantar mann í A-lið KV
Nú verða allir B-liðs menn að æfa af
kappi til að komast upp í A-lið KV.“
Fyrsti leikurinn við KS var mánudag-
inn 25. september og tefldi KV þessum
vösku strákum fram:
Brekkuguttar í garðinum við Hóla. Fremstir
sitja talið f.v. Kjartan Stefdnsson og Guð-
mundur Skarphéðinsson. I annarri röð eru Jó-
hann Skarphéðinsson og JónasVdltýsson. í
þriðju röð eru Einar Pdlsson og Jón Sigur-
björnsson. Aftastir standa Karl Alfreðsson, Sig-
mundur Stefdnsson og Kristjdn Elíasson. Óvíst
er hvenœr myndin var tekin en líkleg hefur
það verið drið 1960 eða 1961.
-----------♦------------------
Matti (Marteinn Kristjánsson)
Leifur (Leifur Halldórsson)
Kjartan (Kjartan Stefánsson)
Gummi(Guðmundur Skarphéðinsson)
Gestur (Gestur Jónsson, Skapta á Nöf)
Nóni (Jónas Valtýsson)
Kristján (Kristján Elíasson)
Kjartan (líkl. Kjartan Bragason)
Simmi (Sigmundur Stefánsson)
Kalli (Karl Alfreðsson)
Rabbi (Rafn Elíasson)
B ok
Því miður
verður að við-
urkennast að
leikurinn end-
aði 10 gegn 0
fyrir KS. Aftur
var leikið 30.
september og
þá fór leikur-
inn 9-0 fyrir
KS. Auk þessa
atti KV kappi
við KK,
knattspyrnu-
félag strák-
anna suður á
b ö k k u m , ervM - - og merkt
Reyni, sem sem > fa 9rei« árgjaldið
var knatt- 6 kronur-
spyrnufélag í Reitnum
að mig minnir, og félag sem hét KB.
Verður ekki annað sagt en að íþróttalíf
hafi staðið í blóma á Siglufirði en fjög-
ur knattspyrnufélög voru starfandi fyrir
utan KS. Brekkusniglarnir töpuðu að
vísu stórt fyrir KS en þeir burstuðu KK
8-0 og 12-4 í tveim fyrstu leikjunum en
þriðji leikurinn fór 3-O.Tvisvar var leik-
ið við Reyni og lauk þeim leikjum með
4-2 og 2-1 sigri KV Og leikurinn við KB
endaði 13-0 fyrir KV. Árangurinn var
því viðunandi.
Fyrsta síðan í KV Bntc r,
... og verður það œsandi leikur
Margt dreif á daga KV veturinn 1961-
1962 og stóð félagið meðal annars fyr-
ir áramótabrennu. En um vorið taka
önnur verkefni við: „KV hefur margt á
prjónunum, til dæmis útilegu og