Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2001, Page 10
Alinn upp í Villimannahverfi
- segir Gylfi Ægisson
Gylfa Ægisson er óþarfi að kynna. Hann
hefur verið eitthvert ástsœlasta dœgurlaga-
skáld þjóðarinnar og hver platan á fœtur
annarri ratað í gull eða platínu. En Gylfi er
Siglfirðingur þó svo að Eyjamenn vilji eigna
sér hann. Gylfi er alinn upp í Villimanna-
hverfinu svokallaða. En svo sterk viðbrögð
hafði nafnið á hverfinu að það var talað um
að börnin í suðurbcenum vœru öll ósynt því
þau þorðu ekki í gegnumVilIimannahverfið!
Hvernig var að alast Jtarna upp?
■ Jú, það var gott, segir Gylfi og
það tekur sig upp gamall glampi.
Við félagarnir Jóhann Sigurðs-
son, læknir, Friðbjörn Björnsson,
endurskoðandi, Ævar Friðriksson,
ökukennari og Humbi og
Drumburinn synir Jóns og Ingu á
Eyri, höfðum í nógu að snúast alla daga.
Villimannahverfið náði frá Oldubrjótn-
um upp að Bakaríi suður að Þormóðs-
brekkunni og niður að SR.
A þessu svæði voru lýsistankarnir,
Oldubrjóturinn, fjaran og Síldarverk-
smiðjurnar.
Við vorum með kaðla út um allt og
sprönguðum daginn út og inn.
Löggan hafði í nógu að snúast við að
skera niður þessi leiktæki okkar. Einu
sinni ákváðum við Siggi Drumbur að
það væri kominn tími til að safna kað-
albirgðum fyrir sumarið. Þetta var að
vetri til eftir dansleik á Höfninni. Ég
hafði þar troðið upp og spilað á skeiðar
en þá list lærði ég út í Grimsby.
Við höfðum haft spurnir af kaðal-
hönk í skúr á ónefndu söltunarplani. Ég
braut upp lásinn með skeiðunum
og við náðum í
sleðann hans afa
og drógum kað-
alhönkina inn í
skúr sem stóð á
lóðinni fyrir neð-
an húsið okkar.
Það kafsnjóaði
meðan á innbrot-
inu stóð en stytti
upp strax á eftir svo
ekki var vandamál
fyrir lögguna að
rekja förin eftir sleð-
ann beint í skúrinn!
Það voru kaðlar á
löndunartórunum á SR-bryggj-
unni og þar húrruðum við strák-
arnir í sjóinn vikulega. Eitt sinnið
missti Drumburinn takið og fór á
bólakaf. Við náðum að draga
hann upp á bryggjuna en
var stór og þungur eftir aldri.
Þegar upp á bryggjubrúnina var komið
stundi hann ámátlega: „Mamma!“ og
við skelltum upp úr og misstum hann.
Þetta endurtók sig þrisvar sinnum en þá
urðum við að kalla á hjálp því að við
fórum alltaf að hlæja á lokasprettinum!
Kajakarnir voru ekki síður skemmtilegir.
Þetta voru járnplötur sem voru lagðar
saman á endunum og negldur skutur og
stefni úr plönkum. Það var mesta mildi
að ekki urðu stórslys því þetta voru
manndrápsfleytur. Einu sinni ýttu þeir
Fribbi og Jói mér út ára-
lausum í stekkingsvindi í
Hvanneyrarkróknum og
það þurfti að róa eftir
mér. Frímann bróðir
smíðaði sér yfirbyggðan
kajak. Það var töluvert líf
í kringum þetta á sumr-
in og í fjörunni logaði
og kraumaði stálbikið
sem notað var til að
þétta blikkið.
A haustin logaði
síðan allt í óeirðum
milli hverfa í bænum.
Valbjörn Þorláksson
frjálsíþróttakappi á að
hafa skírt hverfið okk-
ar Villimannahverfið. Strák-
arnir þarna voru kjarkaðri og
illskeyttari en annars staðar.
Við börðumst við Bakkagutta
útfrá og suðurfrá,
Brekkugutta, Ola Gosana,
Reitinn og Bæjarguttana.
Stundum mynduðust stærri
hernaðarbandalög og þá tóku
þeir saman suðurfrá
Bakkaguttar og Brekkuguttar á
móti Reitn-
um, Villi-
m ö n n u m
og útfrá
Bakkagutt-
um. Þetta
voru miklir
bardagar og
maður lifði á
þessu allan
veturinn. Bíó-
myndirnar voru
Tarsan, Roy og
Herkúles. Og við
lifðum okkur inn í
þetta. Eftir Herkúlesmyndina fórum við
Steini bróðir að æfa lyftingar.Við lyftum
síldarvagnhjólum og náðum góðum ár-
angri.
Tónlistin var í hávegum höfð á mínu
heimili. Þangað kom snemma grammó-
fónn og pabbi átti og spilaði á harmon-
ikku.Við Lýður bróðir slógumst um það
að fá að spila á hana og oft var sprett úr
spori heim úr skólanum til að verða
fyrstur í nikkuna.
Fyrsta lagið sem ég samdi er Jibbí Jey
sem Pelikan gerði vinsælt. Síðan kom
Minning um mann með Logunum og í
Sól og sumaryl með Ingimar Eydal.
I sól og sumaryl er samið á Akureyri
og séra Pálmi Matthíasson sem var þar
sumarlögga sagði mér frá því að hann
hefði eitt sinn verið kallaður út til að
fjarlægja tvo drukkna menn úr Listi-
garðinum. Þetta voru ég og Siggi Ring-
sted. Siggi bað Pálma að bíða þar til ég
væri búinn að semja lagið sem var í sól
og sumaryl! Síðan komu þeir Rúni Júll
og Gunni Þórðar mér á framfæri þegar
að Halastjörnuplöturnar komu út.
Gunni kom að máli við mig og sagði:
Nú hellir þú úr skúffunni. En ég hafði
Ég og Gerður konan mín erum þessa dagana að
semja og syngja inn á diska sem við seljum í
áskrift og húsasölu.
Siggi tytt sýnir villim
annstakta.
Þorsteinn bróðir Gylfa tba
Herkúlesmyndina.