Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2001, Side 14
Vorferð
Stelpurnar fyrir
„sunnan“ úr ár-
gangi ‘SS lögðu
land undir fót
(eða dekk undir
bíl) og tóku sér
ferð á hendur á
heimaslóðir til
Siglufjarðar
fyrstu helgina í júní í vor. Lagt var af
stað á tveimur bílum seinnipart föstu-
dags, átta skvísur úr árgangi ‘SS. Lent
var á Siglufirði seint um kvöldið. Marí-
anna Jónasar (Stefánssonar í Rauðku)
og hennar systur eiga nú húsið að
Hverfisgötu 2 og allar komust við
fyrir þar þannig að þetta var bara
eins og skátafundirnir í gamla daga.
Eftir smá hressingu á Hverfisgöt-
unni var haldið í gönguferð í Skál-
ina. Þaðan rakleiðis á barinn í Al-
þýðuhúsinu en dóttir einnar okkar
(Klöru Sigurðar) rekur nefndan bar
ásamt sambýlingi sínum, Svavari
(Brynju Svavars). Ekki voru gestirnir
margir á barnum fyrir utan starfsfólkið
en við stöldruðum við og fengum
okkur eitthvað að drekka. Fljótlega
fóru sumar heim en aðrar tóku til við
að spila billjard. Þegar á Hverfisgötuna
var komið fóru flestar í háttinn og var
lítið slúðrað það kvöldið.
Morguninn eftir var dagurinn tekinn
tiltölulega snemma. Ein okkar var send
út af örkinni í brauðleiðangur en hin-
ar göldruðu fram meðlæti. Að morg-
unverði loknum voru skór reimaðir
og haldið af stað. Byrjað var að skoða
æskuheimili Dóru Jónasar (Björns-
sonar), Hverfisgötu 8. Auðvitað var
húsið bara skoðað að utan því þar
býr núna fólk sem fæstar okkar þekkja. Þá
var farið í Binnuhús á Suðurgötunni en
Dóra og Gunnar Trausti eiga það hús.
Binnuhús var skoðað að innan og utan og
Dóra upplýsti okkur um framkvæmdir,
bæði fyrirhugaðar og það sem gert hefur
verið í endurbótum.
Þegar út úr Binnuhúsi var komið var
stutt til Kidda G. en dóttir hans, Fríða
til Sigló
Birna, er ein úr okkar liði. Þar var vel
tekið á móti okkur, Kiddi sýndi okkur
húsið sem geysilega flott og fint og
skenkti okkur kaffi og sérrí.
Þaðan var ákveðið að heimsækja
skólabróður okkar, Ottar Bjarna, sem
staddur var í sumarbústað sínum hinum
megin við fjörðinn. Gengum við rösk-
lega þangað og skildum við ekkert í því
hvað þetta var nú annars stutt. Einu
sinni virtist þetta nefnilega eins og að
fara yfir hálfan hnöttinn en ekki yfir
fjörðinn! Ottar tók á móti okkur með
kaffi og jólaköku. Þar var áð góða stund
og spjallað.
Svo var gengið til baka og á miðri leið
stjórnaði Stella teygjuæfingum svo eng-
inn vaknaði með stirða leggi eftir göng-
una.
Síðan var arkað beinustu leið á Skálar-
hlíð og Hrefna Hermanns, mamma
Dóru, heimsótt. Þar beið okkar kaffi,
pönnukökur og fleira finerí.
Nú var klukkan orðin margt og tími
til að kveikja upp í grillinu á Hverfisgöt-
unni. Svo var snætt og slúðrað allt
kvöldið. Frábær matur því auðvitað
erum við allar frábærir kokkar! Jæja
þegar líða tók á nóttina var stefnan tek-
in á Hótel Læk, þar ku vera sjómanna-
dansleikur.Viti menn þegar við mættum
á staðinn var þar ekki nokkur sála. Við
urðum að kalla út bæði hljómsveit og
kór. Ekki mættu margir þetta kvöld en
við skemmtum okkur og dönsuðum
mikið. Sumarnóttin var björt þegar
haldið var á Hverfisgötuna. Þar var hald-
ið áfram að slúðra fram undir morgun.
Daginn eftir vöknuðu allir í sól og
blíðu, tekið var til, ættingjar heimsóttir
og síðan haldið úr bænum. Allar mjög
ánægðar með skemmtilega helgi. Þær
sem í hópum voru: Undirrituð, Jóna
Hilmars, Stella Matt (Jóhanns), Elinóra
Jósafats (í Fiskbúðinni), Maríanna
Jónasar (Stefánssonar í Rauðku), Odda
Jóns (á Eyri), Klara Sigurðar (Árnason-
ar), Fríða Birna (Kidda G.) og Dóra
Jónasar (Björnssonar).
íh