Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2001, Page 22
Umhverfisverðlaun
afhent á Siglufirði
Birni
Nýlega veitti
Siglufj arðar-
kaupstaður hin
árlegu umhverf-
isverðlaun. Sú
leið hefur verið
farin á undan-
förnum árum
að veita ekki
eingöngu verð-
laun fyrir fal-
legar lóðir
heldur horfa á
heildarum-
hverfi hús-
næðisins.
Bœjarstjórinn d Siglufirði afhendír Asdísi
verðlaunin
Þá hefur verið litið til þess
að á undanförnum tveimur árum hefur orðið mikil vakning
varðandi endurbyggingu gamalla húsa á Siglufirði. Hafa bæj-
aryfirvöld m.a. komið að því máli með stuðningi við aðila
sem viljað hafa forða gömlum húsum frá niðurrifi, sem illa
hafa verið farin. Verðlaunin voru að þessu sinni veitt tveimur
aðilum; hjónunum Birni Jónassyni og Ásdísi Kjartansdóttur
fyrir glæsilega, vel hirta lóð og umhverfi hússins á Suðurgötu
56 og Sigurbirni Pálssyni og Sigrúnu Þór Björnsdóttur fyrir vel
heppnaða endurbyggingu hússins við Lindargötu 9b, auk þess
sem allt umhverfi hússins væri til fyrirmyndar.
Verðlaunagripurinn er hannaður með það í huga að hann sé
unnt að festa á vegg utanhúss en hönnun hans annaðist lista-
konan Brynja Baldursdóttir á Siglufirði.
viltu vera með
á nótunum?
Pá er tilvalið
að gerast áskrifandi
að Siglfirska
bæjarblaðinu
Hellunni
Áskriftarsími 4671288 • Fax 4671472 • Netfang tunnan@isl.is
-------♦------------