Vesturland - 24.12.1963, Page 4
4
VESTURLAND
Séra Sigurður Kristjánsson
Á Eyri í Skutulsfirði var
kirkja helguð Maríu mey og
Jóhannesi postula, þeim, sem
Kristur ávarpaði á krossinum
þessum orðum: Kona, sjá þar
er sonur þinn, sjá þar er
móðir þín. Ekki er vitað,
hvenær kirkja á Eyri var
reist og hún varð sóknar-
kirkja, en það mun hafa verið
snemma á öldum. Þar er fyrst
getið í heimildum, svo vitað
sé, um prest um eða fyrir
1333. Ekki er ólíklegt, að
kirkja hafi þá staðið á Eyri
svo öldum skipti enda risu
kirkjur víða upp þegar fljót-
lega eftir kristnitöku. Og
mjög miðsvæðis var kirkjan
hér á Eyri og betur í sveit
sett innan sóknar en víða á
landinu jafnvel allt fram
undir vora daga, þar sem til-
viljun hefir svo oft ráðið því,
hvar kirkjur voru settar
niður eða reistar, í flestum
tilfellum á setri sveitarhöfð-
ingjans, eftir því sem ætla
má. Svo hefir t.d. verið um
kirkjuna á stað á Snæfjöllum
og á Kirkjubóli í Langadal,
svo dæmi séu nefnd um þessa
hluti. Ekki er því óliíklegt
að fjöldi bænhúsa hér á landi
eigi að nokkru rót sína að
rekja til þess, hversu langt
var á aðalkirkjuna, sóknar-
kirkjuna, þótt þess megi líka
til geta, að bænhúsin hafi að
einhverju leyti verið tízku-
fyrirbæri síns tíma, enda með
ólíkindum bænhúsafjöldinn
hér í Eyrarsókn. Bænhús var
í Arnardal neðra fram yfir
1710 og á Fossum og í Engi-
dal, auk hálfkirkju á Kirkju-
bóli. Einnig er talið, að bæn-
hús hafi verið á Tungu. Þá
f TILEFNI af 100 ára afmæli ísafjarðarkirkju í sumar,
kom út bæklingur um sögu kirkjunnar, sem sóknarprestur-
inn, sr. Sigurður Kristjánsson prófastur, hafði tekið saman.
Er þar rakin ýtarlega saga kirkjunnar og safnaðar- ^
starfsins, og hefur Sr. Sigurður góðfúslega leyft VESTUR-
LANDI að birta þennan útdrátt, þar sem rakin eru helztu
atriði úr bæklingi hans.
og ógleymanleg öllum, sem
viðstaddir voru. Þá er komið
var úr kirkju bauð sóknar-
nefnd, í nafni safnaðarins,
hinum útlendu gestum ásamt
viðstöddum prestum, bæjar-
fógeta og fleirum til vígslu-
veizlu.
var bænhús í Heimabæ í
Tnífsdal, svo ekki skorti
guðshúsin í sókninni langt
fram eftir öldum. Annars náði
Hyrarprestakall, sem gefið
/ar nafnið Isafjarðar presta-
kall árið 1907, yfir strand-
iengjuna frá Arnardal út í
Súðavík ytri og var tvær
sóknir, Eyrarsókn og Hóls-
sókn, en árið 1925 var Hóls-
sókn gerð að sérstöku presta-
kalli, Bolungarvíkurpresta-
kalli, en jafnframt var þáver-
andi Isafjarðarsókn skipt í
tvær sóknir, ísafjarðar- og
Hnífsdalssókn. Svo langt sem
maður veit, hefir Eyrarkirkja
verið höfuðkirkjan, og á Eyri
hafa prestarnir setið svo
lengi, sem menn vita. Þar
hefir því aðal guðsþjónustu-
hald sóknarinnar farið fram
im aldaraðir.
Núverandi kirkja, sem er
'mburkirkja, var reist á ár-
unum 1858—1863 af séra
Hálfdáni Einarssyni, presti á
Eyri og vígð 11. s.d. eftir
þrenningarhátíð, eða 16. ág.
1863, samkv. bréfi hans til
biskups 1. sept. þ.á.
Hinn 14. júní 1872 fór fram
afhending á kirkjunni og á-
höldum hennar úr höndum
séra Árna Böðvarssonar, en
þá hafði Isafjarðarkaupstaður
keypt stað og kirkju, en til
þessa dags hafði kirkjan verið
lénskirkja, sem kallað var,
en að öllum líkindum í upp-
hafi vega sinna verið bænda-
kirkja. Var kirkjan afhent
bæjarstjórn Isafjarðarkaup-
staðar.
Árið 1912 kom erindi frá
bæjarstjórn ísafjarðarkaup-
staðar þar sem skorað er á
söfnuðinn að leita eftir því
með atkvæðagreiðslu, hvort
hann vilji taka að sér kirkj-
una. Þá kom einnig áskorun
frá biskupi um hið sama. Og
árið 1913, hinn 8. júní var
svo samþykkt á fundi með 24
atkvæðum gegn 4 að söfnuð-
urinn tæki að sér kirkjuna.
Tók söfnuðurinn formlega
við henni hinn 8. júní 1915.
Hefir hún verið safnaðar-
kirkja síðan.
Við afhendingu kirkjunnar
til safnaðarins var orna-
mentum og instrumentum
kirkjunnar þessi:
1. Messuskrúði, góður
2. altarisbúningur, góður
3. kaleikur með patinu
4. skírnarfontur með fæti
5. bakstursdósir og vín-
kanna
6. tveir altarisstjakar
7. fjórar ljósakrónur
8. átta minni stjakar og
fjórir veggstjakar
9. harmoníum
10. sálmabækur nægar
11. tvær söngtöflur.
Þess má geta hér, að hinn
27. ágúst 1925 fór fram
prestsvígsla á Isafirði. Var
vígður hér grænlenzkur prest-
ur, Abel Lars Seier Abelsen
að nafni, en frásögn um þann
atburð er lýst í samtíðar-
heimild á þessa leið:
Vígslan var fimmtudaginn
27. ágúst kl. 10 árdegis.
Framkvæmdi hana danskur
prófastur, Schulz Lorentsen.
Fór athöfnin fram á þessa
leið: Sóknarpresturinn, séra
Sigurgeir Sigurðsson lýsti
vígslunni og flutti að því
búnu bæn. Gekk þá prófastur
fyrir altari og hóf vígsluna.
Fór hún fram á líkan hátt og
venja er til um vígslu presta
hér á landi, nema að því leyti,
að allt var flutt á græn-
lenzkri tungu. Sungu Græn-
lendingar sjálfir sálma sína,
en organisti kirkjunnar lék
undir á hljóðfærið. Að af-
lokinni vígslunni tók sóknar-
presturinn prófast, hinn ný-
vígða prest og alla viðstadda
presta til altaris, en þeir voru,
auk sóknarprestsins, séra
Páll Stephensen í Holti í
Önundarfirði, séra Böðvar
Bjarnason Hrafnseyri, séra
Sigtryggur Guðlaugsson,
Núpi, séra Óli Ketilsson,
prestur í Ögurþingum, séra
Jónmundur Halldórsson, Stað
í Grunnvík og séra Magnús
Jónsson, Stað í Aðalvik. Söng-
sveit kirkjunnar söng við al-
tarisgönguna. Lauk athöfn-
inni með því, að sunginn var
sálmur Matthíasar, Faðir and-
anna. Innst í kirkjunni sátu
Grænlendingarnir, 60 að tölu.
Athöfnin var mjög hátíðleg
Voru Grænlendingar þeir,
sem hér um ræðir, á leið
til Scoresbysund, sem liggur
á 70. br. gr., þar sem á-
íormað var að búa þeim safna
stað og stofna nýlendu, og
tækifærið notað, að koma hér
við til vígslunnar, en hínn
danski prófastur sendur hing-
að frá Danmörku að fram-
kvæma vígslu hins græn-
lenzka kandidats, sem gerðist
prestur hinnar fyrirhuguðu
nýlendu.
Má með sanni segja, að
þetta sé einn hinn merkasti
atburður, sem skeð hefir í
Isafjarðarkirkju og móttökur
allar orðið ísfirðingum til
mikils sóma og borið þeim
gott vitni. Barst síðar um
haustið þakkarbréf frá Sjá-
landsbiskupi fyrir veitta að-
stoð og greiða við þessa sér-
stæðu athöfn.
Það næsta og mikilvægasta,
sem gerðist í kirkjumálum
var það, að árið 1934 var
hafið máls á því að kaupa
hið gamla Dómkirkjuorgel
hingað, sem var pípuorgel,
sem þá var til sölu vegna
orgelskipta þar. Ákveðið var
að kaupa orgelið og byggja
við kirkjuna orgel- og söng-
stúku út úr norðurhlið henn-
Isafjarðarkirkja.