Vesturland

Árgangur

Vesturland - 24.12.1963, Blaðsíða 9

Vesturland - 24.12.1963, Blaðsíða 9
VESTURLAND 9 litið inn til okkar núna, heyrt glaðværðina og séð vellíðan okkar, er ég hræddur um að samúðin með okkur myndi kólna. — Máske hafa þau það ekki mikið betra. — Aldrei fyrr hef ég að minnsta kosti Mfað í þvílíkum munaði. Hugsið ykkur þvílíkan há- degisverð sem í dag: 1. Uxahalasúpa. 2. Fiskbúðingur með kart- öflum, og bræddu smjöri. 3. Hreinkjötssteik með „petits pois“ sniðbaun- um, kartöflum, og rauð- berjasultu. 4. Myltuber og rjómi. 5. Kransakaka og marsí- pan. notalegum sal upplýstum með stóra olíulampanum, og öðr- um minni lömpum, — þegar við þá höfum ekki rafmagns- Ijós, — stöðug glaðværð, spil, heildarútgáfur af góðu og fræðandi lesefni, og svo næg- an og góðan svefn, — hvers getur maður þá óskað sér frekar?........ „Þriðjudagur 26. des. Ann- ar jóladagur. Frostið er 38° á C. kaldasti dagur ferðar- innar til þessa. Er ég fór i langa gönguferð norður yfir ísinn í dag, varð fyrir mér stór vök lögð nýjum ís, en þó opin í miðju, ísinn bylgj- aðist undir fótum mínum svo af urðu bárur úti í vökinni . . Nansen og Johansen á ísnum. (það síðasta var kærkomin gjöf frá bakara leiðangurs- ins, við blessuðum vel og lengi þann mann.) Og svo hið fræga Ringnes bokköl. Er þetta hádegisverð- ur fyrir menn sem eiga að herða sig gegn ógnum heims- skautanæturinnar ? Um kvöldið voru allir það vel mettir að enginn treysti sér í venjulegan kvöldmat, honum var því sleppt. Seinna var svo framreitt kaffi með hunangsköku, vaniMukrönsum, systraköku, kókosmakkorón- um, o.m.fl. allt saman úr jólabakstri Juells, þessa fjöl- hæfa matsveins okkar, og að síðustu, gráfíkjur, rúsínur og möndlur. Svo skulum við Mta á mat- seðilinn frá morgunverðinum, þá höfum við allan daginn: 1. Kaffi með nýbökuðu brauði, og jólakaka, danskt herragarðssmjör, geitarostur, lykilostur, uxatunga, bauti, appel- sínumarmelaði. Og ef einhver heldur að þetta sé eitthvað sérstakt, af því að það er jóladagur í dag, þá er það misskilningur. Slikur matur er daglega á borðum hjá okkur að undan- skildum kökum og öðru sæl- gæti, sem ekki tilheyrir hinu venjulega fæði okkar. Þegar svo við þetta sællífi bætist gott og traust heimili, með Allan daginn er af miklum ákafa kastað örvum á skot- skífu, vinningurinn er vindl- ingar. Skotskífan og örvarnar, var jólagjöf Johansens frá fröken Fougner." Sunnudagur 31. des. gaml- ársdagur. Ennþá einu sinni fögnum við nýju ári. Já, langt hefur það verið, og margar stundir ánægju og erfiðleika hefur það fært okkur. Það byrjaði vel er það gaf mér litlu Liv, en erfitt var það á skilnaðar- stundinni. — Og síðan langur tími 'í bið og þrá. Árið skilaði okkur máske ekki eins langt áleiðis, og það hefði átt að gera, en þrátt fyrir það var það í rauninni gott ár. Hafa ekki vonir okkar og áætlanir gengið okkur betur í haginn en við gátum vænzt. Og erum við ekki á fullu reki einmitt á þeim stað sem ég hafði óskað og vonað. Það er aðeins eitt sem ber skugga á. — Á rekinu hefur skútan fariö miklu fleiri króka, en ég hefði trúað að óreyndu . . . í salnum er líf og fjör, fyrst er blaðið lesið upp eingöngu bundið mál. Síðian voru born- ar fram veitingar, ananas, kökur, fíkjur, og konfekt, og um miðnættið kom Scott- Hansen með toddý og Nor- dahl með vindla og vindUnga. Á augnablikinu þegar gamla árið kvaddi, stóðu allir upp, og ég sagði nokkur orð í ræðustíl, minntist þess er það hafði gefið okkur, sem í rauninni var aðeins gott, ég þakkaði fyrir samveruna og allar gleði- og ánægjustund- irnar sem að við höfum átt saman, og óskaði þess að nýja árið mætti verða okkur jafn gjöfult, einnig að því leyti líka. Það er undarlegt að hugsa til þess að hér fögnum við áramótunum núna, en heima koma þau ekki fyrr en eftir átta tíma. Og vafalaust verð- ur hugsað til okkar þaðan. Klukkan er orðin fjögur. Ég hafði hugsað mér að vaka, þangað til að nýja árið væri komið einnig heima íí Noregi, en nei, ég fer í háttinn, vil reyna að sofna, og láta mig dreyma heim. — Og farðu þá vel gamla ár, og hafðu þökk fyrir alla og allt. „Mánudagur 1. janúar 1894. Árið byrjaði vel, Juell vakti mig með sinni glöðu rödd, og góðum nýársóskum, og færði mér tyrkneskt kaffi í rúmið, sem hann hafði fengið í jólagjöf, frá fröken Fougn- er. Veðrið er hið fegursta, með 38° frosti. Mér sýnist dags- brúnin í suðri hafa hækkað, í dag var hún 14° yfir sjón- deildarhringnum. — Kl. 6 hátíðarmatur: 1. Tómatsúpa. 2. Þorskshrogn með bræddu smjöri, og kartöflum. 3. Hreinkjötssteik, með grænum baunum, kart- öflum og rauðberjasultu. 4. Myltuber og mjólk. 5. Ringnes bokköl. Ég efast nú um að það sem að framan er sagt, gefi á- stæðu til að halda, að við þjáumst af vanlíðan og sökn- uði .... Ég ligg í rúminu, skrifa les og læt mig dreyma. Ein- kennilegt að skrifa nýtt ártal í fyrsta skipti. Þá er ekki lengur um að villast að gamla árið er liðið. Og nýja árið er sem óráðin gáta. Hver veit hvað það ber í skauti sínu. Sjálfsagt stund- ir bæði gleði og erfiðleika. Nær takmarkinu og heimilinu, það getur ekki orðið öðru vísi. Já, gefðu okkur ef ekki takmarkið, — það er of snemmt — þá skilaðu okkur áleiðis að því, styrktu okkur í voninni. En máske — nei, ekkert máske. — Þeir eiga það skilið þessir góðu félagar mínir. Það er ekki til efi í þeirra sál, í norður stendur hugur þeirra allna, ég sé það á þeim, það skín út úr hverju auga. Það má heyra stunu von- brigða, á hvert skipti sem okkur rekur í öfuga átt, til suðurs. En fögnuðurinn leynir sér heldur ekki, þegar okkur ber norður yfir, inn í hið ó- þekkta. Og það er á mig og mínar hugmyndir sem þeir hafa sett allt sitt traust. Eru þessar hugmyndir mínar rangar, og er ég að leiða þá afvega. Ég gat ekki farið öðru vísi að. Erum við nokkuð annað en verkfæri í hendi æðri máttar- valda. í upphafi erum við öll fædd undir heilla eða óheilla- stjörnu, ég hlaut heillastjömu í vöggugjöf, og hún hefur skinið skært síðan, ætlar hún nú að daprast mér. Ég er ekki hjátrúarfullur, en á stjöm- una mína trúi ég. Og þú föðurland, hvað færði gamla árið þér, og hvað ber hið nýja á skauti sínu, þér til handa. Ég ætla mér ekki þá dul að geta til um það, En mér verður litið á málverkin okkar, af Weren- skiold, Munthe, Kitty Kiel- land, Skredsvig, Hansteen, Eilif Petersen, og þá er ég heima .... 1 ársbyrjun árið 1895 er Fram hafði verið á reki um íshafið í 18 mánuði, þóttist dr. Nansen sjá fram á, eins og reki skútunnar hafði verið háttað til þess tíma, að hon- um yrði ekki að þeirri von sinni, að þá myndi á rekinu bera yfir norðurskautið, en þá er það sem að til verður með honum, fífldjarfasta hug- myndin, um frekari fram- vindu leiðangursins, til þess að hinn vísindalegi árangur mætti verða sem beztur, en hún var þessi: Yfirgefa Fram fyrir fullt og allt, og freista þess við annan mann að ferðast á hundasleða á sjálft skautið, og halda svo þaðan heimleiðis með stefnu á Spitsbergen, eða Franz Jósefs land í von um að hitta þar fyrir selveiði- skip, og koamst með því heim samsumars, eða að öðrum kosti að hafa þar vetursetu. Ég vil geta þess að allan tímann meðan á leiðangrinum stóð, var alinn heill hópur gi’ænlenzkra sleðahunda um borð í Fram, og til var í skipinu allur útbúnaður til sleðaferða, var sá viðbúnaður gerður í öryggisskyni fyrir leiðangursmennina, ef að það ólán skyldi henda þá að skip- ið yrði ísnum að bráð, og þeir yrðu til neyddir >að leita til byggða á ferðalagi yfir ísinn. Og 14. marz er teningnum kastað, er dr. Nansen ásamt einum félag sínum, að nafni Johansen, yfirgefur Fram, skipið var þá statt á 84° Blaðsíða úr dagbók Nansens

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.