Vesturland - 24.12.1963, Blaðsíða 12
12
VESTURLAND
— Kynin tvö —
EFTIR F. P. A.
stafkirkja 1 Noregi. Elzti
hluti kirkjunnar mun vera
um 800 ára gamall, en hún
er talin vígð 25. okt. 1147.
Á 13. öld var kirkjan stækk-
uð, eins og hún lítur út í
dag.
Talið er að um 1860 hafi
verið til um 300 stafkirkjur
í Noregi, en nú munu aðeins
standa uppi 27 þeirra.
Háfjallahótel í Tuddal.
Áfram var haldið upp til
fjalla og ekið upp skógivaxn-
ar hlíðarnar. í 830 m. hæð
yfir sjó stendur háfjallahó-
telið í Tuddal. Þar er mjög
víðsýnt og dásamleg náttúru-
fegurð.
Hótelið er stórt bjálkahús
og þegar inn kemur, er inn-
rétting öll í gömlum stíl og
fjöldi gamalla muna, sem
eigandinn hefir safnað. Þama
var matur á borð borinn og
voru stúlkurnar sem gengu
um beina, klæddar norskum
þjóðbúningum, Eigandi hó-
telsins, gamall og léttlyndur
karl, var einnig klæddur þjóð-
búningi og lék á als oddi.
Hann flutti þama mjög
skemmtilega ræðu.
Um kvöldið bauð rafveitan
til veizlu í frímúrarasalnum
í Tönsberg.
Olíuhreinsunarstöð
Esso í Slagen.
Þriðjudaginn 25. júní skoð-
uðu gestirnir sig um í bænum
fyrir hádegi, en kl. 13 var
heimsótt olíuhreinsunarstöð
Esso í Slagen, sem er rétt hjá
Tönsberg.
Olíuhreinsunarstöðin hefir
víðáttumikið land til umráða
og er þar komið fyrir fjöl-
mörgum tönkum, leiðslum og
1. Karlmaður hringir.
„Eddi? . . . Borðum saman
í hádeginu á morgun. Naust-
inu. Gott.“
2. Kona hringir.
„Halló. Miðstöð. Miðstöð?
Get ég fengið 129273, takk.
Nú, hvað, er þetta 129273?
Ó, ég bið yður að afsaka,
mér þykir mjög fyrir þessu.
hreinsunarstöðvum, ásamt
stórri byggingu fyrir skrif-
stofu, tilraunastofu o. fl.
Þama var okkur sýnd kvik-
mynd frá byggingu og starf-
semi þessarar stóru stöðvar.
Árlega eru þar losaðar 2
milljónir tonna af hráolíu,
sem hreinsuð er og breytt í
olíu fyrir skip og báta, húsa-
kyndingu og iðnað. Benzín
fyrir bifreiðar, vinnuvélar og
flugvélar og auk þess gas-
olíu.
Um 1000 skip koma til
stöðvarinnar árlega, annað
hvort til að losa hráolíu eða
taka hreinsaða olíu og benzín,
sem flutt er um allan Noreg
og auk þess til nágrannaland-
anna.
Hér mun vera um að ræða
stórkostlegan sparnað þjóð-
ina, auk þess sem starfsemi
þessi tryggir miklu f jölbreytt-
ari og betri olíu og benzín
fyrir allt athafnalíf landsins.
Við ókum í bílum um allt
þetta stóra svæði og skýrðu
leiðsögumenn allt, sem fyrir
augun bar.
í borðsal stöðvarinnar vom
Ég hélt að þetta væri Mið-
stöð, ég hefi átt í svo mikl-
um erfiðleikum með símann
að undanförnu. Mætti ég fá
að tala við Lillu Jóns, ef
þér vilduð gjöra svo vel?
Ó. er það hún, sem talar?
o, ég bið yður að afsaka.
Er þetta fröken Jóns? Ert
þetta þú, Lilla? Ég kannaðist
að lokum framreiddar veiting-
ar.
Mótinu slitið.
Bæjarstjórn Tönsberg bauð
erlendu gestunum ásamt
fjölda heimamanna til loka-
hófs í Hotel Klubben. Þar var
veizlumatur á borðum, marg-
ar ræður fluttar og mikið
sungið. Að lokum var stiginn
dans fram eftir nóttu.
Daginn eftir kvöddu hinir
erlendu gestir Tönsberg.
Vinabæjamótið í Tönsberg
var heimamönnum til mikils
sóma. Allt var gert til þess
að gera okkur þessa daga sem
ánægjulegasta og sýna okkur
allt hið markverðasta.
Þessi hópur fulltrúa frá
vinabæjunum fimm, var eins
og ein stór fjölskylda og allir
gerðu sitt til þess að mótið
yrði sem ánægjulegast.
Við Isfirðingarnir, sem tók-
um þátt í þessari ferð, kom-
um heim ánægð og margfróð-
ari um líf og störf frænda
okkar Norðmanna og fengum
að kynnast því, hve gott er
að vera íslendingur í Noregi.
ekki við röddina strax. Ertu
með kvef, eða hvað? Nú, mér
heyrðist það bara á röddinni.
Það er svo mikið um það
þegar tíðin er svona slæm.
Ég hefi aldrei á ævinni vitað
annað eins. Jæja, mér þykir
vænt um að þú skulir ekki
vera með kvef, þó að ég
verði að segja, að það var
að heyra fyrst á röddinni
að þú værir með það . . .
Ég var rétt áðan að tala
sekúndu við Ellu, og hún var
svo slæm af kvefi, að hún
gat varla talað. Það var þess
vegna, sem ég spurði þig.
Það er svo mikið um það
þegar tíðin er svona slæm . .
. . O, sosum ekkert sérstakt
. . . . Æ, jú, það var annars
nokkuð. En kjánalegt af mér.
Ég var svo niðursokkin af
því, sem þú varst að segja,
að ég var næstum búin að
gleyma því. Lilla, hvað ertu
að gera á morgun? . . . .
Nei, um hádegisbilið. Eða
svolítið fyrr. Eða svolítið
seinna. Það, skiptir ekki máli.
Ég býst við að verða á ferð-
inni í grenndinni við þig um
það ieyti, um matarleytið,
kannske um eitt eða hálftvö
eða þarumkring, ég á tíma
klukkan hálfeitt, og það ætti
ekki að taka mig nema hálf-
tíma, eða í mesta lagi þrjú
korter.ábyggilega ekki meira
en klukkutíma, það er ég viss
um, og líklega verð ég búin
á hálftíma, en hvað sem því
iíður, þá ætti ég að vera
búin að öllu klukkan hálftvö,
og ég gæti hitt þig hvar
sem þú segir . . . . Já, ég
veit það, en það eru alltaf
svo mikil þrengsli á Borg-
inni um það leyti, og getum
við ekki farið á einhvern stað,
sem er nær? Ég á að mæta
í tíma rétt hjá Laugavegi og
Snorrabraut — nei, það er
líklega nær Ingólfsstræti. En
það gerir ekkert til, ég fæ
mér bara leigubíl. Hefurðu
nokkurn tíma lent í öðru eins
og að fá leigubíl þessa dag-
ana. Ég skal segja þér, elsk-
an, að í gærkvöldi tók það
mig tuttugu og fimm mín-
útur að ná í bíl, svo að ég
varð of sein í kvöldverðar-
boð og ég veit að fólkið trúði
mér ekki. Nú, en ef ég næ
ekki í bíl, þá labba ég bara.
Þetta er svo stutt. Það ætti
ekki að skaða mig að fá
svolitla hreyfingu. . . . Borg-
ina .... Hvemig lízt þér
Framhald á 17. síðu
Stafkirkjan í Heddal
Útsýnisturninn í Slottsfjellet.