Vesturland

Árgangur

Vesturland - 24.12.1963, Blaðsíða 13

Vesturland - 24.12.1963, Blaðsíða 13
VESTURLAND 13 GARÐAR EINARSSON: Jamboree á Maraþonvöllum Það var 25. júlí síðastlið- inn að ég undirritaður tók mig upp frá Isafirði ásamt tveim ísfirðingum öðrum, þeim Bárði G. Halldórssyni og Ólafi K. Pálssyni og var ferðinni heitið til Maraþon- valla í Grikklandi að taka þar þátt í 11. alheimsmóti drengjaskáta, sem halda átti þar dagana 1.—11. ágúst. Þátttöku í ferð þessari varð að tilkynna ári áður og borga þá tryggingargjald. Okkar fyrsti áfangi var Reykjavík og þangað skilaði einn Fax- inn af gerðinni Douglas Dakota okkur á réttum klukkutíma. í Reykjavík hittust svo allir þátttakendur, sem voru 27 talsins. Vorum við nú beizlaðir og taumarnir lagðir í hendur fararstjóra, sem var Óttar Októsson frá Reykjavík. Allir urðu að vera tilbúnir til fararinnar 27. júlí, en þann dag skyldi lagt upp í ferðina árla morguns eftir að ýmis formasatriði höfðu verið innt af hendi. Stigum við upp í Faxa frá F.l. og var sá af Viscount-gerð. Hann flaug með okkur sem leið lá og skilaði okkur á heldur betri tíma en áætlaður var til Glagsgow, er við komum þar var klukkan að nálgast 11,30. 1 flughöfninni á Renfrew- flugvelli í Glasgow skiptum við um flugvél, og skyldi nú flogið til næsta áfangastaðar, sem var London með flugvél frá B.E.A. Við komumst eilitið í snertingu við skriffinnskuna þarna, en afgreiðsla lipur og gekk nokkuð fljótt fyrir sig. Við náðum áætlun og kl. 13,40 flugum við svo frá Glasgow til London og nú í skrúfu- þotu af Vanguard gerð. Tók hún um 120 farþega fullsetin, en vart mun hún hafa verið meira en hálfskipuð farþegum í þessari ferð. Við komum svo til London eftir klukku- stundarferð, tilbreytingar- lausa ferð. Ýmsir reyndu að sjá eitthvað af því landi, sem við flugum yfir, en lítið var að sjá því bæði flugum við hátt og svo var líka mikið til skýjað. Á flughöfninni í London var nú enn skipt um flugvél og næsta áfanga til Milanó k Italíu átti að fljúga á Cara- velle þotu frá ítalska flug- félaginu Alitalia. Við dvöldum í rúma þrjá tíma á flugstöðinni í London áður en lengra var haldið, og notuðum við tímann til þess að fá okkur hressingu og einnig verzluðum við smá- vegis, margir fylgdust með flugumferðinni sem er mjög mikil, látlaus straumur flug- véla var þarna að koma og fara, flugvélar af ótal gerðum og stærðum, frá ýmsum flug- félögum. Biðin í London kom sér í annan stað vel fyrir okkur, vegna þess, að þegar við vor- um að leggja upp frá Reykja- vík kom það í Ijós að einn félagann vantaði vegabréfið sitt og til þess að hann gæti haldið ferðinni áfram varð að fá annað útgefið af sendi- ráði íslands í London. Það tókst og var það ekki sízt fararstjóranum að þakka. Við lögðum svo upp frá London kl. 18,25. Caravelle- þotan fór geyst upp hina ó- sýnilegu bugðóttu brekku sem henni var ætlað, og var á ótrúlega skömmum tíma komin á sína beinu braut, sem lá í 18.000 fetum beint í steínu á Mílanó. Sessunautur minn i vélinni suðureftir var Breti og fór- um við fljótlega að spjalla saman, eftir því sem mín bágborna enska leyfði. Hann langaði til þess að vita nokkur deili á mér og mínum högum, og svipað var mér farið gagnvart honum. OJíkur var fljótlega borinn icvöidverður og voru honum gerð skil eftir beztu getu. Öðru hverju varð mér litið út um glugga vélarinnar til þess að reyna að sjá land það, sem flogið var yfir. Ekki var mögulegt að greina að nokkru ráði landslagið, en þó mátti gjörla sjá móta fyrir París og Signa sást nokkuð greinilega. Allt í einu kvikn- uðu ljósin á skiltunum — spenna skyldi sætisólamar skýringin á því var, að brátt yrðum við yfir Alpafjöllun- um og búast mætti þar við ókyrrð vegna uppstreymis, en svo fór þó ekki. Eftir að við voru komnir yfir hæstu fjallatoppana fór þotan að lækka flugið og fannst mér hún fara óþægi- lega bratt niður, nú var ekk- ert að sjá útifyrir, því komið var myrkur. Þó sáum við brátt ljósaþyrpingu og viss- um að þar værum við að nálgast Mílanó. 1 Mílanó vorum við svo lentir kl. 20,05, hér skyldi skipt um þotu og haldið á- fram í annarri eins til Róm- ar. Nú fór hitinn að segja til sín. Ef tekið er tillit til þess, að þegar við lögðum upp frá Reykjavík var hitinn ekki nema 7 gráður á Celsius og í London 18 gráður, þá voru þetta nokkuð snögg umskipti að vera kominn á ekki lengri tíma í 35 gráðu hita í Mílanó. Þegar við stigum út úr vél- inni fannst okkur loftið þungt já ég held það hefði mátt skera það með hníf svo rakt var það, og ekki bætti lyktin neitt um. Okkur var nú boðið að ganga inn í flugstöðvar- bygginguna og var mjög gott að koma þar, því að þar inni var loftkæling, byggingin mjög vistleg og trúlega mjög nýleg. Þarna biðum við í rúma klukkustund. Enn var lagt upp og var þá klukkan 21,25 og var lent við Róm kl. 22,20. Nú varð að hafa hraðan á, því að við þurftum að ná í lest í Róm, sem átti að fara þaðan kl. eitt um miðnættið. Það gekk fljótlega að fá far- angurinn í gegnum tollinn, enda vart við öðru að búast, þar sem á flugstöðinni er hátt til lofts og vítt til veggja húsakynnin vel skipulögð og flugstöðvarbyggingin í alla staði mjög nýtízkuleg. Samstilltar hendur drifu nú farangurinn í flýti út í lang- ferðavagn sem beið okkar og síðan var ekið greitt inn til borgarinnar. Keyrslan á járnbrautar- stöðina tók um eina klukku- stund. Við náðum lestinni og hún rann af stað kl. 0,30 og var nú kominn 28. júlí. Við ferð- uðumst svo í lestinni alla nóttina og varð fæstum svefnsamt uppisitjandi í þess- um skröltskjóðum. Við fórum þvert yfir ítalíu til austur- strandarinnar síðan suður eftir henni til hafnarborgar- innar Brindisi. Þangað kom- um við um morguninn kl. rétt um 10. Við höfðum farið um hrjóstrug og skrælnuð lands- svæði af völdum vatnsskorts. Er fór að birta um morgun- inn, sáum við víða mannabú- staði, sem maður hefði varla getað trúað að væru einu sinni gripahús, svo lélegir voru þeir. Það hafði verið á- ætlunin að fara um miðjan dag frá Brindisi áleiðis til Grikklands, en það dróst fram á kvöld. Dagurinn í Brindisi reynd- ist sumum nokkuð erfiður vegna hitans, og sem var ó- bærilegur vegna þess að varla hafði verið um svefn • ! að ræða í rúman sólarhring. Ég var svo óheppinn að fá blóðnasir þegar við vorum rétt að koma á afgreiðslu skipsins, sem skyldi flytja okkur og varð ég því að leggjast fyrir innan um far- angurinn á hafnarbakkanum og láta það jafna sig. Þarna kom þá einn gamall burðar- karl til mín, er hann sá hver vandræði mín voru, og batt hann grannan snærisspotta Greinarhöfundur í Meyjaliofinu í Aþenu. Á leið upp á Vesúvíus.

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.