Bjarmi - 01.07.2008, Síða 6
I
þau í Khao Lak. Sílas f}ögurra ára og
Regitze þriggja ára nutu lífsins í glæsi-
legri og öruggri þarnalaug.
Flemming kom til Danmerkur
tveimur dögum eftir að hann fékk
vitneskju um hamfarirnar. Ágengir
fjölmiðlar tóku á móti þeim. Flemm-
ing hefur verið þingmaður í 15 ár.
Hann hefur verið ráðherra í tveimur
ríkisstjórnum og leiðtogi Kristilega
þjóðarflokksins í Danmörku í meira en
áratug. Hann var þjóðkunnur. Blöðin
hringdu. Sjónvarpsfréttamenn vildu
fá viðtal. Hann birtist á forsíðu eins
stærsta dagblaðs Danmerkur sem
afinn er óttaðist um afdrif barnabarna
sinna.
- Fyrst tók ég þátt í þessu vegna
þess að ég vissi að því meiri upplýs-
ingar sem kæmu fram þeim mun
líklegra var að ástvinir okkar fyndust,
segir Flemming. Hann var líka hjá CNN
og í fréttaþáttum sem náðu til allrar
þjóðarinnar. Hann vonaði í lengstu
lög að ástvinir hans væru á sjúkrahúsi
eða einangraðir frá umheiminum af
einhverjum sökum.
ÞRJÁR JARÐARFARIR
- Hve lengi höfðuð þið von um að þau
væru á lífi?
- Vonin varð veikari með hverjum
degi. Fjölmiðlar fluttu daglega fréttir
af fólki sem hafði bjargast eða var
fundið en við biðum án árangurs eftir
góðum fréttum, segir Flemming.
Fjórtán dögum eftir hamfarirnar
kom lögreglan til að leita að erfðaefni
í húsi ungu fjölskyldunnar. - Þeir báðu
okkur um að koma með tannbursta
eða leikföng barnanna, segir Flemm-
ing og þá kveðst hann hafa áttað sig á
að öll von væri úti.
Þá varð ekki hjá því komist að
skipuleggja minningarstund. - Það
var erfitt að ákveða daginn. í því fólst
að við höfðum gefið upp alla von,
segir Flemming.
Minnigarstundin var haldin í þétt-
setinni kirkju í febrúar. Hugvekja sem
Jacob hafði skrifað um eilífa lífið var
lesin upp. Það var áhrifaríkt.
FJÓRTÁN DÖGUM EFTIR 66
HAMFARIRNAR KOM LOGREGLAN
TIL AÐ LEITA AÐ ERFÐAEFNI í
HÚSI UNGU FJÖLSKYLDUNNAR.
- ÞEIR BÁÐU OKKUR UM AÐ
KOMA MEÐ TANNBURSTA EÐA
LEIKFÖNG BARNANNA, SEGIR
FLEMMING OG ÞÁ KVEÐST
HANN HAFA ÁTTAÐ SIG Á
11 AÐ ÖLL VON VÆRI ÚTI.
Síðan hafa verið þrjár jarðarfarir.
Öll hafa þau fjögur fundist og kennsl
hafa verið borin á þau. Síðast voru
borin kennsl á hinn fjögurra ára gamla
Sílas. Hann var jarðsettur átta mán-
uðum eftirflóðbylgjuna.
Öll fjölskyldan liggur í sömu gröf
í kirkjugarðinum í Birkerod. Það er
kalt þegar við förum til grafarinnar til
að taka myndir. Hún er bara nokkur
hundruð metra frá heimili Flemmings
og Inger Margrethe. Presturinn segist
finna huggun í trúnni á að hann muni
sjá þau aftur.
- í mínum huga er eilífðarvonin
jafnframt von um að sjást aftur.
TÆKIFÆRI
Flemming hélt áfram að fara í viðtöl
eftir að öll von var úti. Margir vildu
vita hvort presturinn gæti áfram trúað
á Guð.
- Ég leit á þetta sem tækifæri til
að segja frá Guði. Það eina sem veitti
mér huggun við þessar aðstæður
var hin kristna von, segir Flemming.
Hann hafði sérstaklega í huga ákveðið
biblíuvers í þessu samhengi: „Verið
ætíð reiðubúin að svara hverjum
manni sem krefst raka fyrir von-
inni sem þið eigið." (I.Pét 3,15)
Flemming er með stóra stafla af dag-
blaðaúrklippum sem hann getur sýnt.
Auk þess hefur hann verið í mörgum
útvarpsviðtölum og sjónvarpsþáttum.
(apríl kom út bók hans Dauðinn, sorgin
og vonin hjá forlaginu Rosinante sem
er eitt stærsta bókaforlag Danmerkur.
- Ég reyndi að skrifa bókina þannig
að hún næði einnig til þeirra sem
6