Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.07.2008, Blaðsíða 7

Bjarmi - 01.07.2008, Blaðsíða 7
þekkja kristna trú takmarkað. Þetta er svipað því að halda sjónvarpsguðs- þjónustu. Boðskapurinn er hinn sami og áður en ég legg sérstaka áherslu á að allir skilji, segir Flemming. Hann hefur fengið mikil viðbrögð, bæði við bókinni og því sem hefur komið fram í fjölmiðlum. - Mjög margir hafa látið í sér heyra. Flestir hafa verið þakklátir. Þar er einkum um að ræða syrgjendur, segir Flemming sem einnig hefur verið beð- inn um að flytja hundruð fyrirlestra um sorg sína og von. VANTAR SVÖR - Ég hef lesið margar lýsingar á því hvernig þjáningin hefur breytt lífi sumra og gefið því tilgang. Ég get ekki gert þau orð að mínum. Ég bið Guð daglega um að gefa mér kraft, styrk og djörfung til að sinna verkefnum dagsins. í stuttu máli hjálp til að lifa, segir Flemming. Hann talar rólega og öfga- laust um lífið og trúna eftir harmleik- inn íTælandi. Það virðist ekki auðvelt að koma honum úr jafnvægi. En hann hefur grátið mikið síðustu árin, stundum meðljölskyldunni. Það er ennþá hulið Flemming hvers vegna Guð lét bylgjuna taka ást- vini hans. Þegar hann kom með Inger Margrethe konu sinni á staðinn þar sem harmleikurinn varð fengu þau að heyra að bylgjan hefði verið átta metra há og hraðinn hefði verið að minnsta kosti 600 kílómetrar á klukkustund. Fjögurra tonna lögreglubátur sem lá rétt fyrir utan ströndina hefði færst þrjá kílómetra inn í land. En aðeins nokkra metra frá staðnum hefði orðið mikið minni skaði. - Spurningin verður alltaf þessi: Hvers vegna verndaði Guð þau ekki gegn slysinu? Við vitum að hann gat það en við vitum ekki hvers vegna hann gerði það ekki. Það er og verður mér óskiljanlegt, segir Flemming. Jacob var 28 ára gamall og hann var prestur í kristilegu stúdentahreyf- ingunni í Danmörku. Flemming finnst sérlega erfitt að skilja að Guð mætti missa Lisbeth og Jacob. - Jacob var góður prédikari og þau Lisbeth ætl- uðu að þjóna Guði með lífi sínu og vera presthjón. Þá verður enn erfiðara að skilja að Guð hafði ráð á að láta þau deyja. HELDUR FAST VIÐ VONINA Sem guðfræðingur hefur Flemming alltaf lagt áherslu á að Biblían sé rausæ um afleiðingar syndarinnar. - Frá degi syndafallsins hefur syndin skilið að Guð og menn. Hún hefur valdið fjandskap milli manna og hún hefur haft áhrif á allt sköpunar- verkið. Þess vegna koma jarðskjálftar, farsóttir og óskiljanlegar hörmungar, segir Flemming. En hann bætir við: - En dag einn verður allt fært í lag. Þá skaparGuð nýjan himin og nýja jörð. Skömmu áður en Kofod-Svensen fjölskyldan fór til Tælands var öll fjöl- skyldan saman komin. Flemming tal- aði á sunnudegi í kirkjunni þar sem hann hefur haft guðsþjónustur frá áttunda áratug síðustu aldar. Textinn fjallaði um hina síðustu tíma: „Tákn munu verða á sólu, tungli og stjörnum og á jörðu angist þjóða, ráðalaura við dunur hafs og brimgný" (Lúk 21,25). - Ég hef oft hugsað um hve merki- legt það er að einmitt þessi texti var í brennidepli síðasta skiptið sem ég var með Lisbeth, Jacobi og börnunum. Flóðbylgjan sýndi okkur hvað getur gerst „við dunur hafs og brimgný." Hið mikilvægasta í orðum Jesú er að það munu verða nýr himinn og ný jörð. Haraldur Jóhannsson þýddi 7

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.