Bjarmi - 01.07.2008, Page 17
66
ÓTRÚLEGUSTU MEIN OG
SJÚKDÓMAR LÆKNAST OG VITAÐ
ER UM 20 MANNS SEM HAFA
VERIÐ ÚRSKURÐAÐIR LÁTNIR EN
HAFA VAKNAÐ TIL LÍFSINS Á NÝ
ÞEGAR BEÐIÐ VAR FYRIR ÞEIM
99
FOLK ALLS STAÐAR AÐ
Lakeland er orðinn áfangastaður and-
legrar ferðamennsku. Fólk kemur úr
öllum heimshornum til að verða vitni
að vakningunni og upplifa lækningu
á eigin líkama. Eitt kvöldið var fólk frá
öðrum þjóðum kallað upp á pall og
beðið fyrir því. Svo virtist sem um vel á
annað hundrað manns væri að ræða,
jafnvel meira. Flestirvorufrá Englandi,
Hollandi og Þýskalandi en einnig var
þarna fólk frá Norðurlöndum, aust-
urhluta Evrópu, Afríku- og Asíuríkjum
auk Ástralíu og Nýja Sjálands. Að
þessu leyti minnir þetta á Tóronto-
blessunina og Pensekólavakninguna
á síðasta áratug. Einar Ekerhovd frá
OASE í Noregi hefur tvisvar heimsótt
Lakeland og nokkrir íslendingar hafa
látið sjá sig á samkomunum í Lake-
land. Todd Bentley hvetur fólk til að
koma og „get some", þ.e. að fá eld-
inn með sér heim. í Flórída eru fínar
strendur og Disneyland. Síðan má
stunda samkomurnar á kvöldin og
taka þátt í annarri dagskrá á daginn ef
fólk vill. Þá er einnig fræðsla á morgn-
ana og þjálfun sjálfboðaliða sem fara
út á göturnar eftir hádegi til þess að
vitna og biðja fyrirfólki.
GUÐFRÆÐI
OG ÁHERSLUR TODDS
Starf Todds, Fresh Fire Ministries í Kan-
ada, er ekki bundið neinni kirkjudeild.
En á heimasíðu þeirra eru kjarnagildin
sett fram og samkvæmt því sem þar
birtist er hann á hinum karismatíska
væng eða nálægt hvítasunnugeira
kirkjunnar. Hið sama á sjálfsagt við
um starfsaðferðir og stíl. Todd er hins
vegar í samstarfi við fólk úr mörgum
kirkjudeildum og vill ekki fá á sig of
mikinn stimpil. Sjálfur talar hann um
þessa vakningu sem nafnlausa og vill
frekar tengja hana Florida og Lake-
land en eigin nafni. Væntingar eru
um að hún nái um víða veröld og alls
staðar muni hennar gæta, fólk frelsast
og læknast. Fyrir áhorfendur og þátt-
takendur er hvatningin mikilvæg og
framtíðarsýnin um vakningu sem
breiðast mun út um heiminn.
Todd leggur mikla áherslu á guðs-
ríkið. Að því leyti er áhersla hans mjög
svipuð og bandaríska lækningapré-
dikarans Bob Johnson en hann varð
sjálfur fyrir miklum áhrifum frá John
Wimber á sínum tíma. Að mörgu leyti
var bók Wimbers Power Evangelism
tímamótaverksem ruddi þeirri hugsun
braut að Guð er hinn sami í dag og
hann var á ritunartíma Biblíunnar.
Ein leið til að benda á Jesú Krist er að
fólk sjái kraftaverkin og í framhaldi sé
þeim bent á hinn krossfesta og upp-
risna Drottin eins og mörg dæmi eru
um í Postulasögunni.
Með því að boða Guðs ríki er boðað
allt Guðs ráð. Þegar Jesús tók til starfa
„prédikaði (hann) fagnaðarerindið um
ríkið og læknaði hvers kyns sjúkdóm
og veikindi meðal lýðsins" (Mt 4.23).
Guðs ríki er hið sama í dag og hlutverk
okkar er að boða fagnaðareindið um
ríkið og lækna sjúkdóma. Jesús Kristur
er upprisinn og nálægur frelsari sem
er annt um okkur mennina.
Todd kemur ekki með ákveðna
uppskrift að lækningu. Segir hann
Guð nota mismunandi leiðir. Hann
veit ekki af hverju sumir læknast og
aðrir ekki. En hann hvetur fólk til þess
að biðja áfram, halda í vonina, leita
áframhaldandifyrirbænarannaðhvort
á samkomunum eða í heimasöfnuði
sínum. Guð vitjar þjóðanna og hann
er ekki háður Lakeland.
Todd gerir sér grein fyrir því að
þessi hugsun er róttæk. Talað er um
vakninguna sem úthellingu í Flórída
(Florida Outpouring) og oft vísað í
úthellingu Andans á hvítasunnudag.
Hann talar um að skírast í Andanum
og skírast með eldi.
Því djarfari sem bænin er þeim
mun harðari verði viðbrögð þeirra
sem tortryggnir eru. Hann segir að
það hafi einkennt kirkjuna of mikið
að „þið fáið ekki af því að þið biðjið
ekki." Við erum alin upp við að hafa
allt á hreinu og viljum ekki of miklar
óvæntar uppákomur. En Guð vill gera
mikla hluti.
í NAFNI JESÚ
Þó svo að vakningin sé eða eigi að
vera nafnlaus er eitt nafn öðrum æðra
sem oft er á vörum Todds og þeirra
sem standa fyrir samkomunum í
Lakeland en það er nafnið Jesús. Todd
biður um lækningu í Jesú nafni, rekur
illt afl og anda burtu í Jesú nafni og
vill að Jesús fái dýrðina þegar lækn-
ing verður. Hann er aðeins verkfæri
sem Guð hefur kosið að nota núna.
Hann segist ekki vita hvers vegna
þetta gerist núna, hvers vegna það
gerist hjá honum eða af hverju það
hafi orðið í Lakeland. En meðan vakn-
ingin heldur áfram mun hann búa í
Lakeland en hann hefur nú flutt konu,
börn og hundinn sinn þangað. Hann
hefur þurft að afboða sig á alls kyns
ráðstefnur og samkomuherferðir á
liðnum vikum. Hann hefur einnig
17