Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.07.2008, Page 34

Bjarmi - 01.07.2008, Page 34
okkur kærleika sinn, bæði í orði og verki. Afi minn og amma bjuggu í næsta nágrenni og voru útvegsbændur. Rekin var útgerð og fiskvinnsla hjá þeim í Vörum og einnig var þar stund- aður búskapur. Við börnin fengum að taka til hendinni, bæði í fiskvinnu og heyskap. Þarna unnum við með full- orðna fólkinu og lærðum réttu vinnu- brögðin. Við systkinabörnin frá Vörum vorum mörg og oft var glatt á hjalla. í minni mínu var þetta eilíf sæla og það er alltaf gaman að rifja upp æskuárin þegar við hittumst, sem er nokkuð oft. Við systkinadæturnar hittumst árlega og njótum þess vel. Ég er afar þakklát fyrir að hafa fengið að alast upp við svo mikið öryggi og kærleika. Hvernig var skólagöngu þinni háttað? Ég var í Gerðaskóla í Garði frá 7 til 14 ára aldurs og hafði alltaf gaman að því að læra. Mamma var mjög áhuga- söm um að okkur gengi vel í náminu. Pabbi var á sjónum svo hún sá um að halda okkur við efnið og hafði hvetj- andi áhrif á okkur öll. Ég lauk prófi frá Gagnfræðaskóla verknáms í Reykjavík og bjó hjá móðursystur minni þá tvo vetur sem námið tók. Þetta var virkilega góður skóli og kennararnir allir sem einn alveg frábærir. Námið var mjög hagnýtt og hélt ég að þetta væri nú bara alveg nóg fyrir mig. En annað kom á daginn, því að eftir að hafa unnið á dagheimilinu Hagaborg í þrjú ár ákvað ég að fara í Fóstruskóla Sumargjafar og lauk þaðan námi 26 ára. Þá fannst mér ég vera svo gömul að þetta væri nú örugglega síðasti skólinn sem ég færi í, en viti menn, ég átti eftir að fara í einn skólann enn, því þegar ég var 48 ára lauk ég námi frá Kennaraháskóla íslands. Við hjónin fluttum í Garðinn eftir að hafa búið í Reykjavík og á Seltjarnarnesi frá því við giftum okkur 1968. Jóhannes vildi fara í land eftir tuttugu ár á sjónum og fékk vinnu hjá hernum á Keflavík- urflugvelli. Fljótlega eftir að við komum í Garðinn fæddist eldri dóttir okkar og sú yngri rúmu ári síðar. Ég var fljótlega beðin um að taka að mér að verða forstöðumaður nýstofnaðs leikfangasafns Þroskahjálpar, þá var ég einnig fengin til að vera forstöðu- maður leikskólans í Garðinum og jafn- framt kenndi ég nokkrum drengjum í Gerðaskóla að lesa. Þetta voru allt hlutastörf sem ég hefði ekki getað stundað ef maðurinn minn hefði ekki verið í vaktavinnu og mamma komið til aðstoðar þegar hann var ekki við. Fljótlega varð kennslan í Gerðaskóla aðalstarfið og í framhaldi af því fór ég í fjarnám í KHÍ og eru nú 17 ár síðan ég lauk því námi og hef ég alla tíð haft mjög mikla ánægju af því að kenna. Hefurtrú þín áhrif á kennsluna? Ég hef alltaf haft þaðfyrirvenju að biðja með nemendum mínum í byrjun dags og fundið að börnin vilja ekki missa af þeim tíma sem við verjum til þess að biðja. Þau koma oft með bænarefni sem liggja þeim á hjarta og við biðjum með þeim. Það hefur verið auðvelt fyrir mig að halda þessu áfram, því ég þekki vel til barnanna og veit að þau eru skírð til kristinnar trúar og foreldrar samþykkja þetta. Hvað varð til þess að þú tengdist starfi kirkjunnar? Fyrir um 22 árum kom ungur prestur, sr. Hjörtur Magni Jóhanns- son, til starfa í Útskálakirkju. Hann var með mjög líflegan sunnudagaskóla og fór ég strax að mæta reglulega með dætur mínar. Þær höfðu gaman af því sem þær lærðu hjá Hirti Magna, en ég hafði einnig mikið gagn og ekki síður gaman af því sem fram fór. Fljótlega fékk ég það hlutverk að líma miða í bækurnar hjá börnunum og var smávegis til aðstoðar prestinum. Þegar auglýst var leiðtoganámskeið í Skálholti hvatti Hjörtur mig til að fara og eftir það var ekki aftur snúið. Ég tók að mér að vera með níu til tólf ára börnin í kirkjustarfi og hef séð um það síðan og alltaf notið þess að vera með börnunum. Við höfum farið árlega á vormót TTT í Vatnaskógi og hefur það verið skemmtileg og trúarstyrkjandi reynsla. Einnig hef ég verið ásamt fleira fólki með kirkjuskóla Útskála- kirkju. Ég hef farið árlega á leiðtog- anámskeið fræðsludeildar kirkjunnar og hefur það haldið mér við efnið, enda eru þau sem sjá um námskeiðin góðir fræðarar og námsefnið hennar Elínar Jóhannsdóttur er frábært og auðvelt að kenna með svo gott efni í höndunum. Segðu okkurfrá Alfanámskeiðum í Keflavík og Garðinum. Þegar Alfanámskeið hófust í Keflavík skráði ég mig fljótlega og hélt áfram að mæta meðan Ragnar Snær og Sigfús Baldvin Yngvason sáu um þau ásamt eiginkonum sínum Málfríði Jóhannsdóttur og Laufeyju Gísladóttur. Maðurinn minn kom með mér á nokkur námskeið, við höfum alltaf verið samstíga í trúnni og er ég þakklát fyrir það. Ég er ekki frá því að sjómenn séu yfirleitt trúaðri en aðrar stéttir, enda eru þeir svo oft í návígi við náttúruöflin og finna að þeir þurfa styrka hönd Guðs til að stýra farinu heilu í höfn. Jóhanna systir mín kom fljótlega með mér á Alfa og við höfum stutt hvor aðra á trúargöng- unni. Við vorum mörg sem héldum alltafáfram og nutum þess að fræðast hjá þessu góða fólki. Við kunnum að meta fræðsluna, lofgjörðarsöngvana, borðhaldið, bænastundirnar og kær- leiksríka vináttu sem myndaðist. Síð- ast en ekki síst voru helgarnar okkur mikils virði, en þá var fjallað um Heil- agan anda og við urðum flest fyrir sérstakri trúarreynslu. Þau, Ragnar, Sigfús og konurnar þeirra komu af stað heimahópum, þátttakan var góð og við lærðum mikið af þeim. Svo kom að því að þau hættu með námskeiðin í Keflavík, en þá tók sr. Björn Sveinn Björnsson, sem tekið hafði við Útskálaprestakalli, að sér að halda utan um Alfanámskeið í Garðinum. María Hauksdóttir var 34

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.