Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.07.2008, Qupperneq 35

Bjarmi - 01.07.2008, Qupperneq 35
66 EG TEL AÐ KIRKJUR LANDSINS ÞURFI MIKIÐ Á FYRIRBÆNUM AÐ HALDA. í HEIMAHÓPUM OG BÆNAHÓPUM í KIRKJUNNI GEFAST GÓÐ TÆKIFÆRI TIL AÐ BIÐJA FYRIR SAFNAÐARSTARFINU OG VAKNINGU í KIRKJUM LANDSINS 99 okkur mikill styrkur til að byrja með. Við höfum svo haldið áfram að halda námskeiðin nokkuð reglulega í Garði og Sandgerði til skiptis. Hvaða máli skiptir trúin? Sá trúarstyrkur sem Alfanám- skeiðin gáfu okkur varð til þess að við höfðum kjark til að vera í forsvari og öðluðumst vilja til að halda áfram, því við vildum að fleiri fengju að kynnast Jesú á sama hátt og við höfðum gert. Ég hef orðið vitni að því að margir hafa öðlast trúarvissu, innri frið og gleði sem skín af andlitum þeirra - og þetta gefur mér djörfung til að halda áfram að opna leiðir til að ná til sem flestra með boðskap Jesú Krists. Hvað gerðuð þið þegar Alfa- námskeiðin hættu? Nú eru tveir heimahópar hér í Garðinumsemurðutil íframhaldi Alfa- námskeiða. Á síðasta námskeiðinu nú í haust var Kjartan Jónsson með nokkra fyrirlestra. Hann sagði mér að nokkrir hópar væru að fara af stað í Reykjavík með að lesa bókina Tilgangsríkt//Teftir Rick Warren. Ég hafði heyrt af þess- ari bók og spurði hvort við mættum vera með í 40 daga átakinu þeirra, ef heimahóparnir mínir hefðu áhuga. Kjartan sagði það sjálfsagt og eins og fyrir kraftaverk voru báðir hóparnir sammála þessari hugmynd. Ég pant- aði bækurnar hjá bókaútgáfunni Salti og við hófum lesturinn um leið og þau í Reykjavík. Það var mjög dýrmætt að fá að vera undir verndarvæng Kjart- ans, hann sendi okkur daglega upp- örvandi hugleiðingar og við gátum sótt samkomur hjá Salti kristnu samfélagi. Við upplifðum þetta átak svipað og við höfðum áður upplifað Alfanámskeiðin. Eftir 40 daga átakið var ákveðið að halda áfram að lesa bókina saman í heimahópunum og er mikil ánægja með það fyrirkomulag. Nú hefur fjölgað aðeins hjá okkur, en það eru konur sem hafa frétt af bók- inni og vilja vera með okkur í að lesa hana, enda er það mjög gefandi að lesa með öðrum, því þá er hægt að skiptast á skoðunum og vitnisburðum sem gefa dýpri skilning á efninu. Hvaða afleiðingar hafði lestur þinn á bókinni Tilgangsríku lifí? í framhaldi lestrar Tiigangsríks lífs fékk ég mikinn áhuga á að gefa fólki í söfnuðinum okkar kost á að koma saman í kirkjunni vikulega til að lesa orð Guðs og biðja. Ég fann hve mik- ilvægt það er kirkjunni að beðið sé fyrir henni, prestinum og safnaðar- starfinu. Ég tók því að mér að halda utan um biblíulestra og bænastundir í Útskálakirkju á miðvikudagskvöldum. Jóhanna systir mín er með mér og er það mikill styrkur. Það er von mín að þessar bænastundir okkar verði til þess að fleiri og fleiri bætist í hóp- inn og við biðjum stöðugt fyrir því að vakning verði í söfnuðinum okkar. Sjáið þið einhvern árangur af öllu þessu starfi? Við erum búin að sjá svo mörg bænasvör að við vitum í raun að Guð mun leiða fleiri til okkar, það er líka undir okkur komið að við gefumst ekki upp, en höldum ótrauð áfram. Sr. Björn Sveinn hittir heimahóp- ana báða saman einu sinni í mánuði og hafa þær stundir verið okkur dýr- mætar. Hann skýrir texta úr Biblíunni og við ræðum þá af einlægni og erum öll virkilega uppörvuð og fáum dýpri skilning á orðinu. Hver er framtíðarsýn þín fyrir kirkjuna og kristni á íslandi? Ég tel að kirkjur landsins þurfi mikið á fyrirbænum að halda. í heimahópum og bænahópum í kirkjunni gefast góð tækifæri til að biðja fyrir safnaðar- starfinu og vakningu í kirkjum lands- ins. Við verðum hvert og eitt að halda vörð um safnaðarstarfið, gefa af tíma okkar og hvetja aðra til að koma með í starfið. Það hefur sýnt sig að þeir sem hafa fengið tækifæri á borð við Alfa- námskeiðin, 40 tilgangsríka daga og biblíu- og bænastundir í kirkjunum hafa öðlast innri frið og sannfæringu um tilgang Guðs með líf sitt. Það er einmitt þetta sem íslenska þjóðin þarfnast, þegar hraði, tímaskortur og peningahyggja eru allsráðandi. Að lokum, áttu einhver góð hvatn- ingarorð handa lesendum Bjarma? Viðerum minntá þaðað viðeigum að gefa tíma okkar bæði okkar nán- ustu og öðrum sem á þurfa að halda. Við eigum að þjóna öðrum og sýna kærleikann í verki. ( Filippíbréfinu segir: „Lítið ekki aðeins á eigin hag, heldur einnig ann- arra." Þetta eru góð hvatningarorð til okkar allra. Við eigum að vera með sama hugarfari og Jesús, hann sýndi okkur að við eigum að sýna öllum kærleika, þjóna og boða Guðs ríki og þannig stuðla að því að fleiri öðlist lif- andi trú. 35

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.