Búnaðarrit - 01.01.1983, Blaðsíða 26
20
BÚNAÐARRIT
Á árinu var gefin út ,,Handbók í blárefarækt“. Fjölrituð
þýðing af meginhluta danskrar bókar, ,,Hándbog i blá-
reveavl“, eftir H. Konnerup-Madsen og Mogens Hansen.
Guðmundur Jónsson, alifuglaráðunautur, þýddi, en Sigur-
jón Bláfeld og Matthías Eggertsson lásu handrit. Þetta var
gert til að bæta nokkuð úr brýnni þörf fyrir fræðsluefni um
loðdýrarækt.
Ættbók íslenskra hrossa, fyrsta bindi af útgáfu Búnaðar-
félags íslands, kom út seint í nóvember. í þessu bindi er
skrá yfir stóðhesta með ættbókarnúmeri frá 750—966 að
báðum meðtöldum. Þorkell Bjarnason, hrossaræktarráðu-
nautur, gerði handrit og naut til þess aðstoðar Jóns Trausta
Steingrímssonar, aðstoðarsérfræðings á Rala. Gísli B.
Björnsson, teiknari FÍT, sá um uppsetningu og útlit bókar-
innar og fylgdist með setningu og annarri prentvinnu.
Myndir eru af öllum stóðhestunum í bókinni utan einum.
Bókin er vönduð og hefur kostað mikla vinnu.
Styrkir til náms- og kynnisferða af fé, sem Búnaðarþing
leggur til á fjárhagsáætlun, voru veittir eftirtöldum starfs-
mönnum landbúnaðarins:
kr
Árni G. Pétursson, ráðunautur B.Í., til að kynna sér
lurkabrennara o. fl. í Danmörku og Svíþjóð........... 15 000
Axel V. Magnússon, ráðunautur B.Í., vegna ferðar til
Norðurlanda og Hollands ..................................... 8 000
Einar E. Gíslason, ráðunautur í Skagafirði, vegna kynnis-
ferðar til Danmerkur á sviði loðdýraræktar................... 4 000
Bjarni Arason, ráðunautur í Borgarfirði, kynnisferð til
Noregs á sviði fiskræktar ................................... 5 000
Matthías Eggertsson, ritstjóri B.Í., v. námskeiðs í Noregi
um leiðbeiningaþjónustu...................................... 3 278
Guðmundur Jóelsson, Hólum, v. þátttöku í norrænu ung-
bændastarfi ................................................ 2 000
Ólafur R. Dýrmundsson, ráðunautur B.Í., v. þátttöku í
ráðstefnu EAAP............................................... 2 000
Sveinn Hallgrímssom, ráðunautur B.Í., v. þátttöku í ráð-
stefnu EAAP.................................................. 3 026
Hjalti Gestsson, ráðunautur á Suðurlandi, v. þátttöku í
ráðstefnu EAAP............................................... 10 000