Búnaðarrit - 01.01.1983, Blaðsíða 460
454
BÚNAÐARRIT
mestur fyrstu 6 vikurnar, 120 g/dag, allmikið hægari næstu
10 vikurnar, 83 g/dag, en jókst aftur við kálbeitina og var
101 g að meðaltali um haustið. Ekki var marktækur munur
milli hálappa og láglappa með tilliti til skrokkvaxtar
nokkurt þessara þriggja tímabila. í sambandi við vaxtar-
hraða einstakra vefja er rétt að benda á, að summa þeirra
er í öllum tilfellum nokkru lægri en vaxtarhraði skrokksins.
Sá munur er á bilinu 6,4%—11,2% og stafar í fyrsta lagi af
vökvatapi frá slátrun til krufningar (3—5%) og hins vegar
af öðrum vefjum (taugum, sinum) og úrgangi við krufn-
ingu. Taflan sýnir, að beinvöxtur var örastur fyrstu 6
vikurnar, eða 12,6% af heildarvexti, en u. þ. b. helmingi
hægari síðari tvö tímabilin. Athyglisvert er, að beinvöxtur
var áþekkur í báðum tegundum á unga aldri, en mun hægari
í láglöppunum, 3,0 g/dag (38%), milli 6 og 16 vikna aldurs.
Sá munur dróst aftur saman á kálbeitinni. Vöðvavöxtur var
einnig mestur fyrstu 6 vikurnar, nam þá að meðaltali 60—
65% af skrokkvextinum, en var næstu 10 vikurnar rúmlega
helmingur af heildarvexti skrokksins.
3. tafla. Vöxtur skrokks og skrokkvefja.
Fæð.—6 6—16 16—24
vikna vikna vikna
Vcfur Tcg.g/dag g/dag g/dag
Skrokkur................... Hál. 122 80 104
Lágl. 117 85 98
Bcin ...................... Hál. 15,5 8,3 7,6
Lágl. 14.8 5,3* 6,5
Vöðvi ..................... Ilál. 74,1 44,8 50,6
Lágl. 68,5 42,4 44,5
Fita....................... Hál. 18,7 21,8 40,6
Lágl. 20,9 32,1" 40,0
Athyglisvert er, að gagnstætt útbreiddri skoðun uxu vöðv-
arnir áfram, jafnvel hraðar en áður á kálbeitinni, enda þótt
hlutdeild þeirra í heildarvexti væri komin niður fyrir 50% á
því tímabili. Sá munur, sem taflan sýnir á vöðvavexti