Búnaðarrit - 01.01.1983, Blaðsíða 376
370
BÚNAÐARRIT
þröngu húsnæði. Það var Halldór Pálsson, sem kom þessari
sæðingarstöð upp með aðstoð Guðmundar Gíslasonar og
starfsliðs hans, en hrútar voru valdir úr fjárskiptahólfinu á
milli Þjórsár og Hvítár aðallega og sæðingarsvæðið var
einkum Borgarfjörður, Snæfellsnes og Húnavatnssýslur, en
einnig nutum við hjá Búnaðarsambandi Suðurlands þar
góðs af.
A hrútasýningunuml963 voru sýndir 1.260 hrútar 2 vetra
og eldri og hlutu 637 þeirra I. verðlaun. Sæðingarhrútar
voru aðeins 41, sem hlutu I. verðlaun eins og meðfylgjandi
tafla sýnir.
1. tafla.
1. Kollur, Teygingalæk, synir.........
2. Kollur, Hólabrekku, synir ........
3. Búri, Stærribæ, synir ............
4. Durgur, Fjalli, synir.............
5. Gulur, S-Seli, Stokkseyri, synir .
6. Garðar, Hlíð, synir ..............
7. Gyllir, St.-Ármóti, synir ........
8. Prúður, St.-Ármóti, synir ........
9. Steypir, Oddgeirshólum, synir.....
10. Glói, Oddgeirshólum, synir .......
11. Hnykill, Þrándarholti, synir .....
12. Hlunkur, Oddgeirshól, synir ......
4 fótlengd 133,5 mm
3 fótlengd 133,7 mm
1 fótlengd 131,0 mm
11 fótlengd 131,6 mm
2 fótlengd 128,5 mm
2 fótlengd 133,5 mm
3 fótlengd 126,8 mm
2 fótlengd 131,0 mm
8 fótlengd 131,8 mm
2 fótlcngd 126,0 mm
2 fótlengd 129,5 mm
1 fótlengd 132,0 mm
Samt. og mt.
41 131,2 mm
Árnes- og Rangárvallas., samt. 637 hrútar með meðalfótlengd 132,7 mm.
Ég hef ekki við hendina nógu góðar heimildir til þess að
fjalla ýtarlega um þessar sæðingar, en get þó slegið því
föstu, að á þessum árum var enn stigið stórt spor áfram í þá
átt að bæta sæðingartæknina, og þá var lagður nýr grund-
völlur að fjárræktarstarfinu á Hestbúinu og einnig að
hyrnda fjárstofninum á Snæfellsnesi og í Húnavatnssýslum,