Búnaðarrit - 01.01.1983, Blaðsíða 94
88
BÚNAÐARRIT
Tvær vorsýningar voru haldnar, önnur 24. apríl, sem
tókst ekki nógu vel vegna illviðris og þungrar brautar, og
hin 28. maí, þar sem kynbótanefnd dæmdi alla tamda fola
og tók ýmsar ákvarðanir um framtíð þeirra. Allir folar
mældir 16. janúar og 28. maí. í notkun voru sendir út 47
folar eða allir þeir, sem að gagni gátu komið.
Eftirtaldir folar voru seldir vanaðir á uppboði 13. nóvem-
ber: Mósi, f. ’77; Flugar, f. ’77; Rosti, f. ’78; Eyvindur, f.
’79; Svalur, f. ’74; Steinn, f. ’76. Þá var Ái frá Nýjabæ,
Borg, f. ’76, seldur óvanaður.
Afkvæmarannsóknir voru gerðar á 7 stóðhestum og var
framlag til þeirra kr. 100 800. Úttekt fór fram sem hér
segir:
(tamningastöð og úttektardagur)
Nr. 74 Júpíter 851, Reykjum......... cink. 7.42 Sauðárkrókur, 6.2
— 75 Óðinn 883, Sauðárkróki ...... — 7.30 Sauðárkrókur, 6.3
— 76 Sörli 876, Stykkishólmi...... — 7.32 Stykkishólmur, 13.3
— 77 Lombcr 945, Kolsstöðum....... — 7.04 Engihlíð, 1.4
— 78 Hlynur 910, Báreksstöðum .... — 7.33 Báreksstaðir, 2.4
— 79 Þröstur 908, Kirkjubæ........ — 7.42 Keldudalur, 15.4
— 80 Svalur, Svignaskarði ........ — 7.20 Keldudalur, 14.6
Á Búnaðarþingi 1982 flutti ég mál nr. 16, þskj. 124, um
útflutning hrossa, er lagt var fyrir búfjárræktarnefnd, þar
sem sú hugmynd er sett fram, að stöðva útflutning kynbóta-
hrossa, en efla því meir vöruvöndun og verðlag á góðum,
geltum reiðhestum.
Fessu var ákaflega fálega tekið, aðeins tveir þingmenn
tóku eindregna afstöðu með málinu, einir fjórir andmæltu,
en aðrir tjáðu sig ekki. Menn virðast ánægðir með það, að
lítið þurfi til íslands að sækja með íslenska reiðhestinn.
Halda skal áfram að styrkja stöðu keppinauta í ræktun
hestsins, svo að sem allra minnst viðskipti þurfi að fara
fram við íslenska framleiðendur. Þetta og margt fleira
kemur fram hjá flestum fulltrúum búnaðarþings ýmist beint
eða óbeint.
Mig langaði að kynnast skoðunum fulltrúanna á máli