Búnaðarrit - 01.01.1986, Blaðsíða 34
12
BÚNAÐARRIT
ekki útrætt. Nefndin vann áfram með landbúnaðarráðu-
neytinu og fulltrúum stjórnarflokkanna að gerð frumvarps
til bráðabirgða breytinga á jarðræktarlögum, sem síðan var
samþ. á Alþingi 19. júní. Nefndin hefur síðan unnið að
endurskoðun laganna og mun leggja tillögur fyrir Búnaðar-
þing. í nefndinni eiga sæti: Bjarni Guðráðsson, bóndi,
Nesi, Hermann Sigurjónsson, bóndi, Raftholti, og Sigurður
Þórólfsson, bóndi, Innri Fagradal.
Milliþinganefnd til að endurskoða búfjárræktarlög var
kosin af Búnaðarþingi 1985. í nefndinni eiga sæti Stefán
Halldórsson, bóndi, Hlöðum, sem var kosinn formaður,
Jón Ólafsson, bóndi, Geldingaholti, og Össur Guðbjarts-
son, bóndi, Láganúpi. Nefndin hóf störf þegar að loknu
þinginu og hefur aflað mikilla gagna og mun leggja málið
fyrir Búnaðarþing.
Milliþinganefnd kosin í samrœmi við ályktun Búnaðar-
þings í máli nr. 24 um samræmda heildarendurskoðun laga
um málefni landbúnaðarins. í nefndina voru kosnir: Birkir
Friðbertsson, bóndi, Birkihlíð, formaður, Egill Bjarnason,
ráðunautur, og Sveinn Jónsson, bóndi, Ytra-Kálfsskinni.
Nefndin hóf fljótlega störf og hefur unnið að öflun gagna og
mun fyrst beina störfum sínum að athugun á félagskerfi
landbúnaðarins.
Aðild að stjórnum, föstum nefndum og innlendum sam-
tökum.
Stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins. Hjörtur E. Þórar-
insson, stjórnarmaður B.Í., tók sæti í stjórninni tilnefndur
af stjórn B.í.
Stjórn Bjargráðasjóðs. Formaður B.Í., Asgeir Bjarna-
son, á sæti í stjórninni tilnefndur af stjórn B.í.
Stjórn Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins. Jónas Jóns-
son situr í stjórninni tilnefndur af stjórn B.í.