Búnaðarrit - 01.01.1986, Blaðsíða 271
BÚNAÐARÞING
249
mælis á næsta ári, m. a. með því að gefa þá út sögu félagsins
fyrir s.l. 50 ár, en sem kunnugt er, þá kom út aldar
afmælisrit Búnaðarfélags Islands 1937.
Þá hefur líka verið ákveðið að halda landbúnaðarsýningu
á næsta ári. Hún verður haldin í nýju Reiðhöllinni, sem
væntanlega verður þá komin til starfa.
Það er sagt, að sagan endurtaki sig. Því verður ekki á
móti mælt, að það skiptast á skin og skúrir, þegar litið er
yfir liðna tíð. Það kemur fram í sögu Búnaðarfélags Islands,
og það hefur sýnt sig í íslenzkum landbúnaði. Það er gaman
að hafa fylgzt með öllum þeim framförum, sem orðið hafa
hér á landi síðustu áratugina. Það er ævintýri líkast. Þar
hefur landbúnaðurinn síður en svo verið neinn eftirbátur.
Það sjáum við, hvert sem við lítum. Þar hefur alltaf miðað
áfram og gerir enn, þótt á öðrum sviðum sé.
Það er gleðilegt, finnst mér, hve margir bændur reyna að
aðlaga sig breyttum aðstæðum og fitja upp á nýjungum í
búskap.
Það er einginn uppgjafartónn í störfum Búnaðarþings,
heldur þvert á móti, að sækja fram, finna ný verkefni, sem
henta í dreifðum byggðum. Mýrarnar, þær eru dýrmæt
eign, þótt ónotaðar séu, því að þeirra mun síðar verða þörf.
Góðir þingfulltrúar.
Þetta er síðasta Búnaðarþing á þessu kjörtímabili. Ég
þakka ykkur fyrir dyggilega unnin störf. Ég veit að tíminn
hefur verið naumur nú, eins og svo oft áður, en þrátt fyrir
það tókst ykkur með skipulögðum vinnubrögðum, þekk-
ingu og dugnaði að leysa ykkar störf með prýði af hendi.
Þið hafið nú eins og jafnan áður sýnt mér umburðarlyndi,
og það þakka ég. Ég mun ekki vera fulltrúi á Búnaðarþingi
framvegis, en það hef ég verið í rúm 30 ár, og viðloða
Búnaðarþing í 36 ár, tími til kominn að hætta.
Ég þakka ánægjulegt samstarf nú og á undanförnum
árum. Ég hef notið þess og lengi búið að því, hve mörgum
afburðamönnum ég hef kynnzt á Búnaðarþingi. Það mun