Búnaðarrit - 01.01.1986, Page 43
SKÝRSLUR STARFSMANNA
21
Allmargir erlendir blaðamenn eða greinahöfundar komu
til B.í og fengu viðtöl eða upplýsingar. Af þeim, sem áttu
séstök erindi við B.í eða öfugt, má nefna stjórnarformann
og framkvæmdastjóra danska loðdýraræktarsambandsins
og framkvæmdastjóra danska uppboðshússins, þá Anders
Kirkegaard, Helge Olsen og Peter H. Krag, sem komu
hingað til lands til að sitja aðalfund S.Í.L., en B.í. tók
einnig á móti og átti nrikilvægar viðræður við. Þá kom Kaj
Egede, tilraunastjóri og ráðunautur á Grænlandi, hingað til
lands ásamt Ewind Kristófersen, fræðslufulltrúa græn-
lensku heimastjórnarinnar, í lok ágúst og var rætt við þá um
fyrirkomulag á námsdvöl Grænlendinga á sauðfjárbúunr
hérlendis.
Forfalla- og afleysingaþjónusta í sveitum
Búnaðarfélag íslands hefur umsjón nreð forfallaþjónust-
unni. Gunnar Hólmsteinsson, skrifstofustjóri, annast af-
greiðslur og bókhald fyrir hana og vísast til starfsskýrslu
hans.
Verðlaunasjóður bændaskólanna
Að venju voru þeim búfræðingum, sem brautskráðust með
bestunr vitnisburði frá hvorum bændaskólanna fyrir sig,
veitt bókaverðlaun. Að þessu sinni hlutu Sigurður Krist-
jánsson frá Ketilsstöðum á Tjörnesi, búfr. frá Hvanneyri,
og Gunnar Sigurðsson frá Stóru Ökrum í Skagafirði, búfr.
frá Hólum, verðlaunin, sem voru rit Björns Halldórssonar.
Stóðhestastöð
Búnaðarfélagið sér um rekstur Stóðhestastöðvar ríkisins í
Gunnarsholti. í stjórn stöðvarinnar voru auk stjórnar B.í.
Sveinbjörn Dagfinnsson, ráðuneytisstjóri, og Páll A. Páls-
son, yfirdýralæknir. í kynbótanefnd stöðvarinnar voru:
Leifur Kr. Jóhannesson, Páll Pétursson, Ingimar Sveinsson
og Þorgeir Sveinsson auk Þorkels Bjarnasonar. Páll B.