Búnaðarrit - 01.01.1986, Blaðsíða 222
200
BÚNAÐARRIT
að frumkvæði stjórnar Rannsóknastofnunar landbúnaðar-
ins í febrúar 1985. Nefndin átti að hafa það meginverkefni
að kanna rekstur Rannsóknastofnunarinnar, tilraunastöðv-
anna og annarra þeirra stofnana, er fást við rannsóknir í
þágu íslenzks Iandbúnaðar og gera úttekt á starfi þeirra og
semja frumvarp til nýrra laga, ef ástæða þætti til.
Þessi könnun var hafin með því, að ráðinn var erlendur
sérfræðingur til að aðstoða nefndina við úttektina. Hann
hefur nú skilað skýrslu um málið, og ber hún það með sér
við yfirlestur, að um áfangaskýrslu sé að ræða. Til dæmis er
þar lítið sem ekkert fjallað um leiðbeiningaþjónustuna og
um það, hvernig tilraunaniðurstöðum sé skilað út til
bænda, og mun honum ekki hafa gefizt tími til að kynna sér
málið frá öllum hliðum.
Nefndin hefur því, að því, er virðist, byrjað á öfugum
enda með því að semja frumvarp til nýrra laga um
Rannsóknastofnunina, áður en úttektinni var lokið.
Um frumvarpstillöguna er það að segja, að ýmislegt
orkar þar tvímælis, svo að ekki sé meira sagt, og mjög er
hæpið, að breytingar þær, sem þar eru gerðar, miðað við
gildandi lög frá árinu 1965, séu til bóta.
Það er mikið vafamál, hvort leggja beri niður tilrauna-
ráð, sem tengir rannsóknastarfsemina m. a. þeim aðilum,
sem færa eiga niðurstöður hennar út til bænda, svo sem
leiðbeiningaþjónustu Búnaðarfélags Islands og bændaskól-
anna.
Á síðustu árum hefur náðst samkomulag milli Rann-
sóknastofnunarinnar annars vegar og bændasamtaka í hér-
aði hins vegar um rekstur einstakra tilraunastöðva. Þeir
samingar, sem þar hafa verið gerðir um ákveðinn samrekst-
ur, eru allrar athygli verðir og rúmast á allan hátt innan
gildandi laga. Tíminn og reynslan skera svo úr um gildi
þessa fyrirkomulags. Hins vegar verður að tryggja, að um
leið og tilraunastöðvarnar setja út eigin tilraunir, verði þar
áfram vettvangur fyrir vísindalegar rannskóknir sérfræð-