Búnaðarrit - 01.01.1986, Síða 71
SKÝRSLUR STARFSMANNA
49
Ferð til Skotlands vegna innflutnings á nautasœði. Ákveð-
ið hafði verið í byrjun ársins að flytja inn til notkunar á
sóttvarnarstöðinni í Hrísey djúpfryst sæði úr Galloway
nautum í Skotlandi, en mjög var þá gengið á birgðir
stöðvarinnar. Var annars vegar um að ræða samtals 100
skammta úr nautunum Plascow Conquest (P.C.) og Grange
Covenanter (G.C.), sem flestir yngri gripirnir á stöðinni eru
undan. Auk þess var talið æskilegt að flytja inn 100
skammta úr óskyldu nauti eða nautum. Á Southbar
nautastöðinni nálægt Glasgow var til sæði úr nautinu
Glenapp Laird (G.L.), sem uppfyllti þær sóttvarnarkröfur,
sem hér eru gerðar um innflutt nautasæði. Var ákveðið, að
ég færi til Skotlands 25. apríl til að skoða þetta naut og kálfa
undan því, svo og föður þess og dætur hans (hálfsystur
G.L.). G.L., sem nú er 6 ára, er stórvaxinn, sterklega
byggður, en fremur grófur að gerð. Er hann stærsta
Galloway nautið,sem sæði hefur verið tekið úr á Southbar.
Varð úr að kaupa umtalað sæðismagn, og kom ég með það
til landsins 30. apríl. Fyrirgreiðsla í Skotlandi var sem fyrr
hin bezta, en um hana sá Mr. B. Speight, yfirmaður
nautgriparæktarstarfseminnar í Skotlandi. Ekið var með
mig á bæi í Suðvestur- og Suðausturhéruðum Skotlands,
svo og til nautastöðvarinnar í Newlands í Perth, alls um 700
km.
Ferð til Austurlands. Ég hafði hugsað mér að ferðast
talsvert um landið s.h. árs og fræðast af bændum, sem
reynslu hafa í kjötframleiðslu af geldneytum, sumir ára-
langa, aðrir skemmri. Með því að kynnast því, hvernig að
framleiðslunni væri staðið, vissi ég, að fást myndi öruggari
grundvöllur til að byggja leiðbeiningar á og enn fremur um
tilhögun skýrsluhalds, þegar þar að kæmi. Hafði ég útbúið
eyðublöð til skráningar á helztu þáttum, sem máli skipta,
þótt ég gerði mér ljóst, að svör gætu í fæstum tilvikum orðið
nákvæm. Ég valdi Austurland sem fyrsta svæðið, þar sem
áhugi bænda þar á nautakjötsframleiðslu hefur verið meira