Búnaðarrit - 01.01.1986, Blaðsíða 73
SKÝRSLUR STARFSMANNA
51
sóknum), sem norræna ráðherranefndin stendur að og
styður fjárhagslega. Forstöðumaður stofunnar, dr. Ólafur
Oddgeirsson, dvelst nú um nokkurra mánaða skeið við
A.B.R.O. rannsóknarstofnunina í Edinborg í sambandi við
þetta verkefni. í fjarveru hans hefur Brynjólfur Sandholt,
dýralæknir, veitt rannsóknarstofunni forstöðu. Ný stjórn
tók við í september, skipuð til 2ja ára. f henni eiga sæti: Af
1. sölusvæði þeir Pétur Sigurðsson, Mjólkursamsölunni, og
Hörður Sigurgrímsson, bóndi, Holti, af öðrum sölusvæðum
þeir Hlífar Karlsson, Mjólkursamlaginu á Húsavík, og
Þorsteinn H. Gunnarsson, bóndi, Syðri-Löngumýri. Fram-
leiðsluráð endurskipaði undirritaðan formann stjórnar-
innar.
Önnur nefndar- og stjórnarstörf. Stjórn Búnaðarfélags
íslands skipaði mig á árinu í 3ja manna ritnefnd vegna
fyrirhugaðrar útgáfu 150 ára afmælisrits búnaðarfélags-
skaparins. Vísast um undirbúning þess máls til skýrslu
búnaðarmálastjóra.
Stjórn félagsins óskaði eftir því við Pál A. Pálsson,
yfirdýralækni, og okkur Diðrik Jóhannsson, starfsmenn
félagsins, að við endurskoðuðum reglugerð um búfjársæð-
ingar. Höfum við komið saman og lagt fram ábendingar um
það, hvernig að því verki verði staðið.
Ekki varð úr, að ég gæti starfað í nefnd til undirbúnings
frjótækninámskeiðs, sem haldið var 28. okt. — 20. nóv.
Hins vegar flutti ég nokkra fyrirlestra á námskeiðinu, sem
var hið 8. í röðinni, síðan djúpfrysting nautasæðis hófst hér
á landi.
Nefnd um ófrjósemi í nautgripum kom saman til fundar á
árinu nreð þeim Þorsteini Ólafssyni, dýralækni, og Jóni
Eldon, líffræðingi, sem sjá um framkvæmd rannsóknar á
frjósemi kúa í Eyjafirði og á Suðurlandi, sent Rala og
Tilraunastöðin á Keldum standa að ásamt búnaðarsam-
böndunum í þessum héruðum. Skýrðu þeir frá framvindu
þessarar áhugaverðu rannsóknar. Nefndin ræddi síðan um