Búnaðarrit - 01.01.1986, Blaðsíða 82
60
BÚNAÐARRIT
196), Hrókur 83033 (7500, 30/10, 286), Mari 84001 (7700,
30/10, 267), Hrísi 84005 (0, 30/10, 231), Dúi 84016 (0, 30/
10, 206). Úr 7 nautum fékkst ekkert sæði til frystingar af
ýmsum orsökum og úr 2 ekki eins mikið og ráðgert hafði
verið.
A skrifstofunni voru reikningshald og viskiptaerindi
aðalverkefnin. Innheimt vorugjöld af 33.677 kúm, til að ná
85 % þátttöku búnaðarsambandanna.
í maí7júní þjálfaði ég 2 menn í nautgripasæðingum og
störfuðu þeir með bráðabirgðaleyfum þangað til í október,
er þeir sóttu námskeið í frjótækni, sem Búnaðarfélag
Islands gekkst fyrir. Stjórn Búnaðarfélags íslands fól Er-
lendi Jóhannssyni og undirrituðum að undirbúa og stjórna
námskeiðinu í samráði við yfirdýralækni. Námskeiðið stóð
frá 28. október til 20. nóvember. 15 nemendur sóttu það og
voru 5 nemendur á eiginvegum,en búnaðarsambönd sendu
hina 10, eins og algengast hefur verið. Kennsla fór fram í
Bændahöllinni, í tilraunastöðinni á Keldum og í sláturhúsi
Sláturfélags Suðurlands á Selfossi. Naut ég þar frábærrar
fyrirgreiðslu ráðamanna við verklega kennslu, sem hér er
þökkuð. Aðalkennarar auk mín voru þeir Erlendur Jó-
hannsson og Þorsteinn Ólafsson, dýralæknir, en aðrir 3
kenndu færri stundir. Nemendur heimsóttu Nautastöðina
og uppeldisstöðina í Þorleifskoti.
I júlí og ágúst heimsótti ég 9 frjótækna á Norður- og
Vesturlandi til skrafs og ráðagerða. Aðalfund Frjótækna-
félags íslands sat ég á Blönduósi í október.
Starfsmaður við Nautastöðina auk mín er Ingimar Ein-
arsson og þakka ég honum vel unnin störf. Eins og
undanfarin ár hirti ég nautin þá daga, sem hann var að
heiman, og sunnudaga, alls 129 daga. Ég þakka öllum
ánægjuleg samskipti á árinu.
Ritaö í janúar 1986.
Diðrik Jóhannsson.