Búnaðarrit - 01.01.1986, Page 238
216
BÚNAÐARRIT
fréttamenn um málefni landbúnaðarins, veita almenn-
ingi upplýsingar um landbúnaðinn og afla upplýsinga
um bæði íslenskan landbúnað og landbúnað annarra
landa fyrir aðildarfélögin, sé þess óskað. Upplýsinga-
þjónusta landbúnaðarins skal fylgjast með þróun land-
búnaðarins, koma fram fyrir hönd hans og vinna að
hvers konar öðrum verkefnum í upplýsingamiðlun en
hér eru upp talin í samvinnu við aðildarfélögin.
2. Aðild að Upplýsingaþjónustu landbúnaðarins geta átt
allar þær stofnanir, félög eða fyrirtæki, sem starfa í
landbúnaðinum, s. s. Framleiðsluráð landbúnaðarins,
Búnaðarfélag íslands, Stéttarsamband bænda, land-
búnaðarráðuneytið, Rannsóknarstofnun landbúnaðar-
ins, sölusamtök bænda, búgreinafélög og samtök af-
urðastöðva í landbúnaði.
3. Aðildarfélög Upplýsingaþjónustunnar tilnefna fulltrúa
í fulltrúaráð skv. aðild sem hér segir: A-aðild 5
fulltrúar, B-aðild 3 fulltrúar, C-aðild 2 fulltrúar og D-
aðild 1 fulltrúi. Fulltrúaráðið mótar í meginatriðum
starf Upplýsingaþjónustunnar, það fer með æðsta
ákvörðunarvald um málefni hennar og samþykkir fjár-
hagsáætlun stofnunarinnar fyrir hvert ár á aðalfundi,
sem halda skal í upphafi hvers árs. Fulltrúaráðið skal
koma saman eigi sjaldnar en tvisvar á ári og oftar, ef
þurfa þykir. Fulltrúaráðið kýs sér fimm manna stjórn
og skulu tveir stjórnarmenn kosnir skv. tilnefningu
Framleiðsluráðs landbúnaðarins, en þrír án sérstakrar
tilnefningar. Sjórninni er heimilt að ráða Upplýsinga-
þjónustunni forstöðumann og annað starfsfólk eftir
því, sem þurfa þykir.
4. Aðildarfélög Upplýsingaþjónustunnar greiða árlega
framlag til starfseminnar eftir ákvörðun aðalfundar.
Heimilt er að innheimta sérstakt gjald af aðildarfélög-
unum vegna sérstakra verkefna, sem samkomulag er
um, að ráðist skuli í. Um afmörkuð verkefni, sem