Heilbrigðismál - 01.04.1965, Síða 7
snerist mjög um það, hvort veirumeinsemd-
ir kynnu að eiga sér stað í mönnum og hvort
einhver hugsanleg ráð væru til að leiða það
í ljós. Hingað til hefur ekki tekizt að £á
vissu fyrir því að nokkur illkynjuð mein-
sernd í mönnum sé orsökuð af veirum. Þó
eru vissar tegundir illkynjaðra meinsemda,
sem líkur benda til að orsakist þannig. Það
eru sérstakar tegundir af bráða-hvítblæði
hjá börnum, sem sterkur grunur er á að sé
veirumyndanir, en sérstaklega gildir það þó
um hin svonefndu burkitt-lymhóm, sem
koma fyrir í börnum á takmörkuðu svæði
í Afríku. Þessar meinsemdir og margar aðr-
ar eru nú rannsakaðar af mikilli kostgæfni
í fjölmörgum rannsóknarstofnunum um all-
an heim, til að freista þess að einangxa veir-
ur, sem kynnu að valda þeim.
Það eru þrjár leiðir, sem sérstaklega eru
farnar þegar reynt er að gera sér grein fyrir,
hvort veirur valdi meinsemdum hjá mönn-
um.
1. Reynt hefur verið að finna veirur í
meinsemdum, sem skornar hafa verið úr
mönnum, með hliðstæðum aðferðum og
notaðar hafa verið til að færa sönnur á þær
hjá dýrum. Erfiðleikarnir eru miklir vegna
þess að ekki er hægt að beita þeim aðferð-
um við menn, er skara langt fram úr í dýra-
tilraununum, sem sé að sprauta efninu, sem
á að prófa, inn í tilraunadýrin nýfædd. Það
er óþarft að taka fram, að slíkt kemur ekki
til greina, þegar menn eiga í hlut. Því verð-
ur að fara þá leið að sprauta lifandi frum-
um úr meinsemdunum, eða súpa úr }i>eim
í nýfædd tilraunadýr. Þetta dregur mjög úr
líkunum að ná fullkomnum eða jákvæðum
árangri, því það er fullkunnugt, að veirur
vaxa bezt í frunuim sömu dýrategunda og
veirurnar komu frá.
Til þess að auka líkurnar fyrir jákvæðum
árangri er iðulega reynt að setja hluta úr
meinsemdinni í samband við heilbrigðar
frumur úr vefjum manna, sem ræktaðar eru
í tilraunagiösum. Séu veirur í meinfrumun-
FRÉTTARRÉF UM HEILRRIGBISMÁL
um, er talið hugsanlegt að þannig geti þær
margfaldast og stofninn orðið sterkari og
þéttskipaðri og hæfni hans vaxið til að
rnynda meinsemd, þegar hann er fluttur í
tilraunadýrið. Það er þegar vitað að á þenn-
an hátt er hægt að fá þéttskipaðar breiður
af svokölluðum polyomaveirum.
2. Önnur aðferð byggist á því að setja
meinfrumur, eða hluta úr meinsemdum, í
samband við frumur úr mannsfóstrum sem
hafa verið ræktaðar í tilraunaglösum og
fylgjast þannig með hvort heilbrigðu frum-
urnar kunni að breytast og verða illkynja.
Það er þegar margsannað að t. d. Rousveir-
an og fleiri veirutegundir geta á þann hátt
ummyndað heilbrigðar vefjafrumur dýra í
meinfrumur. Þetta er hægt að sanna með
því að flytja frumurnar, sem þannig er búið
að meðhöndla, í tilraunadýr af sama stofni
og fóstruirumurnar voru frá. Þegar frum-
urnar taka að vaxa í dýrinu og mynda mein-
semd, sem að lokum drepur dýrið, er ekki
lengur um neitt að viilast, það er örugg
sönnun þess, að frumurnar voru orðnar
meinfrumur þegar þær voru fluttar í dýrið,
og tekist hefur að greina slíka ummyndun
á heilbrigðum dýrafrumum í tilraunaglös-
um, sem háfa öll einkenni illkynja myndun-
ar. Frumurnar verða meira og minna kringl-
óttar, í stað þess að heilbrigðu frumurnar
eru spólulaga og liggja í reglubundnum lög-
um hlið við hlið, en hinar vaxa án nokk-
urrar reglu, snúa í allar áttir og mynda ó-
reglulegar breiður eða þykkni.
Það hefur tekizt að sýna fram á að Rous-
veiran og önnur veirutegund til orsaka um-
rnyndun á mannafrumum í tilraunaglösum,
sem líkjast mikið þeim breytingum, sem ske
þegar meinsemdir verða til. Hvort hér er
um raunverulega myndun meinsemdar að
ræða hefur ekki enn tekizt að sanna. Full-
komin sönnun þess er miklum vanda bund-
in, því að þá kernur að því sem áður var
drepið á, að lielzt þyrfti að flytja frumurnar
yfir í lifandi viðtakanda af sama stofni, sem
7