Heilbrigðismál - 01.01.1969, Blaðsíða 18
um villuskoðunum verður að útrýma, því þær eru
alioft hættulegar og hafa komið af stað mörgum
langvarandi örlagaríkum harmleikum. Aður fyrr
var oft erfitt og ógerlegt að sigrast á sjúkdómi þess-
um, en síðan hin stórvirku fúkkalyf, sulfa og önn-
ur kemisk efni komu til sögunnar, er þetta gjör-
breytt og í langflestum tilfellum er sigurinn vís,
bregðist hvorki læknirinn né sjúklingurinn skyldu
sinni. Ekkert nema ræktun úr þvaginu er örugur
mælikvarði á hvort sjúkdómurinn sé læknaður.
Allar aðrar rannsóknir geta sýnt rangar niðurstöður
og skapað falskt örygi, sem getur orðið alltof örlaga-
ríkt.
Nýlega héldu þýzkir læknar mikinn fund um
nýrnabikara- og nýrnabólgu í Saltzuflen í Vesmr-
Þýzkalandi. Þar var allt tínt til sem yfirleitt er vitað
um sjúkdóminn og meðferð hans, og síðan gefin út
bók sem skýrði frá öllu fundarefninu, er máli skipti.
TÍMAMÓT HJÁ KRABBAMEINSFÉLAGI
REYKJAVÍKUR
frh. af hls. 6
Prófessor Níels Dungal var á þessum fulltrúa-
fundi kosinn formaður Krabbameinsfélags íslands,
en Alfreð Gíslason gerðist þá formaður Krabba-
meinsfélags Reykjavíkur.
Hér verða ekki rakin þau mörgu og heilladrjúgu
störf, sem Krabbameinsfélag Reykjavíkur vann
undir stjórn Alfreðs Gíslasonar. Þó er ekki hægt
annað en minnast á tæki til röntgengeislunar, sem
krabbameinsfélagið gaf Landspítalanum, er kostuðu
stórfé, á mælikvarða þess tíma og voru af mjög full-
kominni gerð miðað við það sem þá tíðkaðist. Þetta
varð til þess að byggt var yfir röntgentækin, en að
auki bætt allmiklu húsnæði við röntgendeild Land-
spítalans, þannig að starfsaðstaðan þar varð allt önn-
ur og betri en áður.
Seinna færði Krabbameinsfélag Reykjavíkur
Landspítalanum nokkra fjárupphæð til þess að
krabbameinssjúklingar fengju forgangsrétt að pláss-
um í Landsprtalanum bæði til geislalækninga og
skurðaðgerða.
Zapp, einhver þekktasti þvagfæra sérfræðingur
fundarins, sagði í niðurlagsorðum ræðu sinnar, að
svo fullkomnar umræður, sem þarna hefðu átt sér
stað um nýrnabikara- og nýrnabólgur og sem svo
mikill fjöldi lækna úr öllum greinum hefði sótt,
ætti að hafa mjög örvandi áhrif í þá átt að sjúk-
dómurinn yrði læknaður og fyrirbyggður. Hann
taldi þær umræður, sem þarna hefðu farið fram
mjög þýðingarmiklar fyrir hinn almenna lækni, sem
í langflestum tilfellum er ábyrgur fyrir að finna
sjúkdóminn og annað hvort að sjá um lækningu
hans og langvarandi meðferð eða að sjá til þess að
sjúklingurinn hljóti fullkomna, sérfræðilega með-
ferð. Það væri æskilegt, sagði hann - mjög svo
æskilegt, að sem allra flestir almennir Iæknar læsu
þessa bók, og ef þeir gerðu það, mundi það spara
miklum fjölda sjúklinga örorku og örkuml jafn-
framt því að lengja líf þeirra að miklum mun.
Fyrir atbeina Alfreðs var Almenna krabbameins-
leitarstöðin stofnuð. Hún starfaði um nokkurt skeið
á vegum Krabbameinsfélags Reykjavíkur, en síðar
tók Krabbameinsfélag íslands við henni og rekur
hana enn í dag.
Það sem þegar hefur verið sagt sýnir hvernig
spjall tveggja hugkvæmra manna varð kveikjan að
stofnun krabbameinsfélaganna á íslandi, og allri
þeirri baráttu sem þau hafa háð gegn k.abbamein-
inu á undanförnum 20 árum. Ég er ekki viss um
að margir hafi gert sér grein fyrir þessu, eða hvað
þjóðin á þessum mönnum raunverulega að þakka,
fyrir hugkvæmni þeirra og góða tilgang, auk þess
sem þeir lögðu báðir af mörkum, um skeið, með
störfum sínum í stjórn Krabbameinsfélags Reykja-
víkur.
Það ber að meta og þess skal geta sem vel er gert.
Fréttabréfið færir þeim margfaldar þakkir á þessum
trmamótum.
Jafnframt vill það nota tækifærið ásamt stjórn
Krabbameinsfélags íslands að færa núverandi stjórn
Krabbameinsfélags Reykjavíkur sérstakar þakkir
fyrir glæsileg og árangursrík störf á undanförnum
árum, sérstaklega ánægjulegt samstarf og hamingju-
óskir á þessum tímamótum.
18
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL